bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Ert þú vitni? https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=19090 |
Page 1 of 1 |
Author: | drolezi [ Mon 18. Dec 2006 08:26 ] |
Post subject: | Ert þú vitni? |
Um fjögurleytið í gær, 17.12.06, var ekið utan í kyrrstæða bifreið fyrir utan verslun BYKO í Kópavogi og stakk tjónvaldur af vettvangi. Þykir það kannski ekki frásögu færandi vegna algengni slíks hátternis en þetta atvik var frábrugðið hinum venjulegu afstungu málum. Það var nefnilega svo að eigendur kyrrstæðu bifreiðarinnar eru eldri hjón. Höfðu þau lagt bifreið sinni í merktu bifreiðastæði fatlaðra með bláum grunni en þau eru með leyfi til þess og var það leyfi sýnilegt í framrúðu bifreiðarinnar. Bifreiðastæði fatlaðra eru stærri en venjuleg bílastæði svo þau þjóni tilgangi sínum sem best. Af upptökum úr öryggismyndavélum BYKO og framburði vitna á vettvangi þykir ljóst að tjónvaldur hefur reynt að koma bifreið sinni inn í þetta sama bifreiðastæði en eðlilega ekki tekist þar sem þetta bifreiðastæði aðeins er gert fyrir eina bifreið, en það er staðsett sem næst inngangi og er ljósastaur þar við. Tjónvaldi tókst með naumindum að koma sér inn á stæðið en sá þá fram á að geta ekki komist út úr bifreið sinni og hætti því við þessar lagningartilraunir sínar. Þegar eldri hjónin komu út úr BYKO blasti við þeim stór dæld og langar rispur á hlið kyrrstæðu bifreiðarinnar og á rúðu bílstjóra hafði verið límdur gulur minnismiði sem á stóð "það er óþarfi að taka 2 stæði - hugsaðu ekki bara um sjálfan þig”. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni í Kópavogi. Ef einhver hér varð vitni að ofangreindu atviki þá er sá hinn sami beðinn um að hafa samband við lögregluna í Kópavogi í síma 5603050. |
Author: | Steinieini [ Mon 18. Dec 2006 15:11 ] |
Post subject: | |
Vá hvað fólk getur verið SVAÐALEGA heft ![]() Númerið sést væntanlega ekki á upptökum ? |
Author: | pallorri [ Mon 18. Dec 2006 16:41 ] |
Post subject: | |
Endalaust af þessum borderline mongolítum sem eru í umferðinni ![]() |
Author: | JonHrafn [ Mon 18. Dec 2006 17:27 ] |
Post subject: | |
það dugar ekki að vera andlega fatlaður til að leggja þarna |
Author: | bragi1 [ Mon 18. Dec 2006 18:57 ] |
Post subject: | |
Er eiginlega aldrei hlyntur ofbeldi en svona fólk hefur gott af því að labba á hnefa. |
Author: | Arnarf [ Mon 18. Dec 2006 19:14 ] |
Post subject: | |
Með mest extreme fávitaskap sem maður heyrir af. Ekki beint að það tengist þessu, Var að fara út í bíl áðan, tók eftir því að það var búið að ýta hægri rúðispeglinum að bílnum og spegillinn hékk á 2 vírum. Spegilinn er líka brotinn (2 sprungur alveg gegnum hann) Fatta ekki alveg hvernig þetta átti að geta gerst, þar sem spegillinn brotnaði, eins og einhver hafi lamið í spegilinn sjálfan með einhverri kylfu eða e-ð. Sýnist þetta samt ekki vera mikið tjón, ætti að vera nóg að kaupa bara nýjan spegil, vona að það sé hægt, þeas. þurfi ekki að kaupa allt júniitið Þetta er annað "skemmdarverkið" sem bíllinn minn hefur orðið fyrir. Hitt var miklu verra, lyklaður alveg þvílíkt. 50þús kall sem kostar að sprauta, næ vonandi að gera það á fyrri hluta næsta árs. Núna er það alveg á hreinu að ég sé að fara stela bílastæði foreldrana og gamla corolan þeirra fær að fara á almenningsstæðið. |
Author: | Jón Ragnar [ Mon 18. Dec 2006 19:14 ] |
Post subject: | |
Vá hvað fólk er óþolandi HEIMSKT alltaf ! ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |