bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
New York ferð https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=18998 |
Page 1 of 1 |
Author: | bimmer [ Wed 13. Dec 2006 03:44 ] |
Post subject: | New York ferð |
Er búinn að vera að þvælast hér í New York í tæplega viku með frúnni. Er að koma til USA 2. skipti - kom síðast hingað þegar flestir á Kraftinum fyrir utan mig, Sæma og Alpina voru ekki fæddir eða voru nýfæddir, þe. 1986. New York er HUGE, LOUD og CROWDED. Erum á hóteli upp á 94. stræti sem er ekki alveg í center en subwayið bjargar málunum algerlega - er mjög fljótvirkt. Stressið hér er mikið og ekki til snefill af þolinmæði. Umferðarmenningin er einnig spes og það mætti halda að flautan sé tengd við bremsupedalann á bílunum hérna. Það er svoleiðis legið á flautunni ef einhver dirfist að hægja á sér. Fórum fyrsta daginn í ferð með túristastrætó um Manhattan (mæli með því): ![]() (ath. myndir teknar ýmist á imbavél eða síma => vond gæði) Gaman að sjá mismunandi hverfi á Manhattan og hvað það er mikill munur. Reyndar skildi maður ekki allt sem guideinn var að segja - hún var úr kínahverfinu og talaði mjög tæpa ensku og virtist þar að auki vera á einhverjum sterkum efnum. Næsta dag var farið með bus í fyrirbæri sem heitir Woodbury Common. Þetta er klukkutíma ferð yfir til New Jersey. Þetta dæmi er Outlet markaður þar sem helstu merkin eru með búðir. Það var svolítið freaky stemmning þarna - allt squeaky clean og fínt, músík í hátölurum og reynt að búa til svona smábæjarstemmningu. Mér fannst ég hins vegar vera staddur í The Truman Show - veruleikinn var svo tilbúinn: ![]() Það var allt fáránlega ódýrt þarna. Það var frekar fyndið að fyrsti BMW bíllinn sem ég sá hérna úti var E30 cabrio, hvítur með svörtum toppi. Eigandinn var verulega stoltur af honum eins og félagi hans á klakanum. Annars er allt morandi í X5 hérna - liggur við að meira en helmingur af þeim BMW sem maður sér hérna séu X5. Hér eru annars 2 sem ég sá eitt kvöldið. Fyrst er það lagleg sexu blæja - flott svona hvít: ![]() Svo var það ein verulega sver sjöa - LLi eða bara L........i : ![]() ![]() Svo var náttúrlega tekinn rúntur að skoða frelsisstyttuna og Ellis Island: ![]() ![]() Maður má ekki fara upp í styttuna út af 9/11 stressi sem er alveg í full force úti. Það var vopnaleit áður en við fórum í ferjuna, gegnumlýsing á dóti etc. Svo þegar við fórum frá Liberty Island (þar sem frelsistyttan er) yfir til Ellis Island þá fylgdu 2 svona gaurar ferjunni: ![]() Mér fannst hins vegar frekar fyndið að sjá svona vítismaskínu knúna HONDA!! ![]() ![]() Það var gaman að skoða Ellis Island og hér er mynd úr salnum þar sem milljónir þurftu að fara í gegnum á leið sinni til USA: ![]() Það er safn þarna þar sem var farið í gegnum innflytjendamálin í kringum 1900 þegar mest var að gera þarna. Sýnt þegar var verið að kenna útlendingunum ensku og hvernig USA virkaði, auglýsingar og blöð á pólsku, rússnesku, etc. Skyndilega fékk maður bara nett deja vu - þetta er eins og Ísland í dag ![]() Hér er síðan mynd á leiðinni frá Ellis Island þar sem kerlingin sést í sólsetrinu: ![]() Á sunnudaginn fórum við í þessa búð, BHPhoto sem er ein rosalegasta ljósmynda/video/græjusjoppa í heimi. Þarna er ALLT til - sjá http://www.bhphoto.com: ![]() Búðin er rekin af gyðingum og frekar fyndið að sjá þá þarna með pottaleppana á hausnum og krullað hár/skegg niður á axlir innan um allar græjurnar. Það var hins vegar svo stappað þarna að maður gat ekki hugsað - hvað þá verslað - þannig að við ákváðum að koma aftur á mánudeginum. Byrjuðum þann dag á að fara upp í Empire State en þar fyrir utan rakst ég á þennan kagga á BBS stuffi: ![]() Uppi var útsýnið flott en mikil helv. mengun er þarna ![]() ![]() Svo hélt ég að ég væri að verða klikkaður þegar ég sá Concorde niður við á: ![]() En þetta er satt og rétt - það er Concorde þarna á safni. Furðulegt að sjá hana þarna samt. Hér er síðan útsýnið af 102 hæð í átt að Central Park: ![]() Fórum síðan aftur í BHPhoto og þar gerði ég heiðarlega tilraun til að bræða úr kreditkortinu. Þegar ég var að tala við sölumann og spurði hann hvort það væri alltaf svona þétt að gera þá sagði hann að þetta væri nú bara rólegt - daginn áður (sunnudaginn) höfðu 10.000 manns komið í búðina!!!!! (segi og skrifa tíu þúsund). Anyways, leggjum í hann aftur heim á morgun. Þetta er búið að vera fínt. Það sem stuðar mann samt mikið hérna er hvað það er allt miðað við að fólk geti ekki hugsað. Mikið af óþarfa störfum hér þar sem fólk er í fullri vinnu við að raða í raðir (ekki að grínast), segja manni að fljúga ekki á hausinn þegar maður fer úr rúllustiga, etc. etc. Full mikið idiot proofing fyrir minn smekk. Það góða er að hér er verðlag gott, hrikalega mikið úrval og nóg að gera og skoða. Fór í Sony Store hér í dag og þar er BARA mikið flott stuff til sölu og maður fékk þar margar flugur í höfuðuð - kannski meira um það síðar ![]() |
Author: | HPH [ Wed 13. Dec 2006 03:57 ] |
Post subject: | |
Váááá hvað mig langar mikið til NY. En þessi sjöa er þetta ekki XXLi s.s. eitt X fyrir hvern auka glugga. |
Author: | siggik1 [ Wed 13. Dec 2006 09:38 ] |
Post subject: | |
+uff geggjað, var næstum farinn til ny núna í des |
Author: | Henbjon [ Wed 13. Dec 2006 11:50 ] |
Post subject: | |
Var í new york ágúst þar síðastliðinn í 2 vikur. Skemmtileg borg! Allar svonalitlar tækjaverslanir reknar af gyðingum eða indverjum, og maaaan hvað þeir hleypa manni ekki út nema maður kaupi eitthvað. "1500 dollars just for you my friend!" "uuh.. no i'm not looking for a laptop" "1499 with usb-key 256 mb!! only today my friend! svo fór hann alveg niðrí 1000 og meira.. ótrúlegir |
Author: | ömmudriver [ Wed 13. Dec 2006 11:56 ] |
Post subject: | |
Flott að fá svona mydir/ferðasögu ![]() ![]() |
Author: | bimmer [ Wed 13. Dec 2006 14:44 ] |
Post subject: | |
ömmudriver wrote: Flott að fá svona mydir/ferðasögu
![]() ![]() Nei, geri það seinna. Vélin er á stóru safni sem tekur smá tíma að skoða: http://www.intrepidmuseum.org/ |
Author: | IngóJP [ Wed 13. Dec 2006 15:37 ] |
Post subject: | |
Finnbogi,, hérna á spjallinu er líka úti í kanalandi Florida samt en alltaf jafn gaman að skoða ferðaþræði hjá þér Þórður |
Author: | Leikmaður [ Wed 13. Dec 2006 16:25 ] |
Post subject: | |
ömmudriver wrote: Flott að fá svona mydir/ferðasögu
![]() ![]() Helv. nett að tékka á concordinum, er að mig minnir ofan á litlu flugmóðurskipi! Ég rölti þarna að þegar ég var að bíða eftir þyrlufluginu mínu sem er 5 mín. frá ![]() |
Author: | saemi [ Wed 13. Dec 2006 17:24 ] |
Post subject: | |
Góða skemmtun Þórður og ferð heim ![]() Alltaf gaman í stóra eplinu. Ég trúi ekki öðru en þú hafir tapað þér örlítið í B&H ![]() Ég skal veifa þér þegar þú kemur í fyrramálið, verð sennilega yfir Grænlandi á leið til N.Y. þegar þú verður á leiðinni heim frá N.Y. ![]() |
Author: | ömmudriver [ Wed 13. Dec 2006 17:33 ] |
Post subject: | |
saemi wrote: Góða skemmtun Þórður og ferð heim
![]() Alltaf gaman í stóra eplinu. Ég trúi ekki öðru en þú hafir tapað þér örlítið í B&H ![]() Ég skal veifa þér þegar þú kemur í fyrramálið, verð sennilega yfir Grænlandi á leið til N.Y. þegar þú verður á leiðinni heim frá N.Y. ![]() Verður þú þá að fljúga fraktaranum ![]() |
Author: | saemi [ Wed 13. Dec 2006 17:36 ] |
Post subject: | |
ömmudriver wrote: saemi wrote: Góða skemmtun Þórður og ferð heim ![]() Alltaf gaman í stóra eplinu. Ég trúi ekki öðru en þú hafir tapað þér örlítið í B&H ![]() Ég skal veifa þér þegar þú kemur í fyrramálið, verð sennilega yfir Grænlandi á leið til N.Y. þegar þú verður á leiðinni heim frá N.Y. ![]() Verður þú þá að fljúga fraktaranum ![]() Mjá ![]() |
Author: | ömmudriver [ Wed 13. Dec 2006 17:39 ] |
Post subject: | |
Very nice, engvir farþegar ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |