bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Fallega lagt!!!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=17838
Page 1 of 2

Author:  ömmudriver [ Wed 11. Oct 2006 21:13 ]
Post subject:  Fallega lagt!!!

Ég vildi bara hrósa hr. Burgerking fyrir að leggja bílnum sínum mjög svo fallega fyrir utan Elko í dag. Ég vill jafnframt koma því á framfæri að mér er alveg sama hver leggur í stæði fyrir fatlaða, svo lengi sem viðkomandi er fatlaður :wink:

Author:  IngóJP [ Wed 11. Oct 2006 21:48 ]
Post subject: 

Þetta er m5 hann má taka stóru stæðin

Author:  bjahja [ Thu 12. Oct 2006 00:27 ]
Post subject: 

Að leggja í fatlaðra stæði er ekki kúl

Author:  Jss [ Thu 12. Oct 2006 00:38 ]
Post subject: 

bjahja wrote:
Að leggja í fatlaðra stæði er ekki kúl


Tek undir það, sama hvernig bíl fólk er á.

Author:  Þórir [ Thu 12. Oct 2006 08:02 ]
Post subject:  idiot

bjahja wrote:
Að leggja í fatlaðra stæði er ekki kúl


Heyr heyr. Eitt af því ömurlegasta sem maður sér "fullfríska" menn gera.

Author:  saemi [ Thu 12. Oct 2006 08:20 ]
Post subject: 

Maður leggur ekki í stæði fatlaðra og fer ekki yfir á rauðu. Það er bannað.

Author:  fart [ Thu 12. Oct 2006 09:07 ]
Post subject: 

Maður slysast stundum yfir á bleiku, en að leggja í fatlaðastæði er ásetningur.

Author:  siggir [ Thu 12. Oct 2006 11:19 ]
Post subject: 

Ég hef oft velt því fyrir mér hvort geðfatlaðir megi leggja í stæði fyrir fatlaða.

Eins velti ég fyrir mér hvort heimska teljist geðfötlun.

Author:  fart [ Thu 12. Oct 2006 12:35 ]
Post subject: 

siggir wrote:
Ég hef oft velt því fyrir mér hvort geðfatlaðir megi leggja í stæði fyrir fatlaða.

Eins velti ég fyrir mér hvort heimska teljist geðfötlun.


Ef þú ert með mynd í glugganum af hjólastól þá máttu leggja í þessi stæði. Get ekki ímyndað mér að geðfatlaðir fái þannig, enda snýst þetta um líkamlega fötlun en ekki andlega.

Author:  krullih [ Thu 12. Oct 2006 13:26 ]
Post subject: 

Ég er einmitt sammála - sama hversu flottur bíllinn er, hversu dýr eða sjaldgæfur hefuru aldrei rétt á að leggja í stæði hreyfihamlaðra.



Og ég lít svo á að ef þú ert á flottum bíl og leggur í svoleiðis merkt stæði - er er eitthvað að þeim einstakling og heilabúi hans.

Author:  Spiderman [ Thu 12. Oct 2006 14:10 ]
Post subject: 

Ég vann einu sinni með flottum kalli sem labbaði alltaf upp að bílum sem lögðu í stæði fatlaðra og spurði bílstjórann, hvort hann ætti að bera hann inn :lol: Menn voru fljótir að finna sér nýtt stæði :evil:

Author:  BMWBEGINNER [ Thu 12. Oct 2006 19:42 ]
Post subject: 

Bara að láta draga þetta lið um leið, eða bara 100þús kr sekt á staðnum. Þetta er það aulalegasta sem maður veit um, ef maður er ófatlaður, skítt með lög og sektir, þetta er bara óvirðing við þá sem þurfa að nota slík stæði.

Á fokk upp skalanum þá finnst mér þetta vera það næsta við að keyra fullur.

Ég hef ALDREI lagt í stæði fyrir fatlaða.

Minnir mig á eitt það fyndnasta sem ég hef séð.

Í fyrra var ég að borða á ónefndum veitingastað þegar það labbar lögga inn á staðinn og kallar yfir salinn "hver er á XX-XXX sem lagt er hérna fyrir utan?" , þá stendur upp einn svona sæmilegur súkkulaðigaur og segir " Ég" svona nett pirraður, en hann sat á borði með einhverjum félögum.

Löggan segir þá við hann fyrir framan alla "Þú hefur bara gleymt að setja bláa fatlaðramerkið í rúðuna á bílum þínum,,,,,, þú manst bara eftir því næst vinurinn", síðan labbar löggan út.

Gaurinn var eins og tómatur hann varð svo rauður, og fór beint út og færði bílinn, enda fannnst fólki þetta greinilega svolítið skondið.
Hver segir að það þurfi endilega að sekta fólk hehe.

Bara snilld.

Author:  HAMAR [ Thu 12. Oct 2006 19:57 ]
Post subject: 

Þetta hefur sennilega haft meiri áhrif á gaurinn heldur en sektarmiði í póstkassann, leggur sennilega ekki aftur í fatlaðrastæði :lol: :lol: :lol:

Author:  ValliFudd [ Thu 12. Oct 2006 20:03 ]
Post subject: 

HAMAR wrote:
Þetta hefur sennilega haft meiri áhrif á gaurinn heldur en sektarmiði í póstkassann, leggur sennilega ekki aftur í fatlaðrastæði :lol: :lol: :lol:

hann er litli bróðir minn, ég skal lemja hann smá næst þegar ég sé hann :wink: :lol:

En ég er sammála, maður gerir þetta ekki...

Author:  zazou [ Thu 12. Oct 2006 20:05 ]
Post subject: 

krullih wrote:
Ég er einmitt sammála - sama hversu flottur bíllinn er, hversu dýr eða sjaldgæfur hefuru aldrei rétt á að leggja í stæði hreyfihamlaðra.



Og ég lít svo á að ef þú ert á flottum bíl og leggur í svoleiðis merkt stæði - er er eitthvað að þeim einstakling og heilabúi hans.


Ég hef reyndar aldrei séð sérstök stæði merkt fyrir flotta bíla :lol:
En ég skal bjóða mig fram, free of charge í það að skera úr um hvaða bílar eru verðugir slíkra stæða :twisted:

On topic: þetta er óttarleg vanvirðing og skeytingarleysi þegar líkamlega fullfrískt fólk sér sig knúið í það að leggja í blá stæði.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/