Schulii wrote:
Jrourke wrote:
siggik1 wrote:
nákvæmlega
sýnir líka bara hvað nýir ökuþórar gera sér ekki grein fyrir umferðinni, 154 á 70 götu

ég keyri nú venjulega á sirka 90-100 þarna og fynnst það temmilegt, þeas ef ég skil staðsettninguna rétt, fynnst þetta bara vera merki um að ökukennska sé ekki nógu góð.
ég var stoppaður þarna á aðeins yfir hundrað..

Hvernig er hægt að segja að þetta sé eitthvað tengt því að ökukennsla sé ekki nógu góð????
Heldurðu að strákurinn hafi virkilega haldið að það mætti keyra svona hratt þarna?? Að þetta hafi ekki verið meðvituð ákvörðun um að keyra hraðar en löglegt er á þessari götu?? Á ökukennslan kannski að vera það "góð" að eftir að hafa lært á bíl þá bara sé engin hætta á að menn muni keyra svona hratt??
Minns ekki skilja..
Ég er sammála Sigga að því leiti að mér finnst eitthvað hljóti að vanta í ökukennsluna. Hvað það er get ég ekki bent á nákvæmlega en finnst vanta almenna meðvitund í umferðina sem ætti að vera hægt að kenna upp að vissu marki, það er eins og allt gangi út á reglur, lög, merkingar o.þ.h. fá próf vessogú bæ bæ passaðu þig á löggunni en vanta á móti einhverja smá hugsun eða meðvitund í umferðinni. Umferðin hér er því miður eins og stöðugur kappakstur að vera á undan þeim næsta og verja "sinn stað" í umferðinni.
Ágætt dæmi er ökukennarinn minn sem var að mörgu leiti svona gaur, snarskammaði mann t.d. ef maður ætlaði að hæga örlítið á sér svo strætó aðeins framar á Miklubrautinni næði að skjótast inn í umferðina. Þetta væri sko gata með 60km hámarkshraða og væri því ekki venjuleg innanbæjargata og því hefði Strætó engan rétt og skildi bara fá að bíða!
Maður er alltaf að sjá svona dæmi í umferðinni, hann á engan rétt og fær því engan rétt, ég um mig frá mér til mín!
Og aftur með meðvitundina þá finnst mér að það hljóti að vera upp að vissu marki hægt að taka á því í kennslunni. En auðvitað er mikið af hlutum í umferðinni common sense sem er hlutur sem er líklega ekki hægt að kenna ef þú hefur það ekki. Kannski þarf að færa kennslu í "umferðarvitund" neðar í skólakerfið.. dunno...