bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Maður dagsins https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=17688 |
Page 1 of 3 |
Author: | Aron Andrew [ Tue 03. Oct 2006 10:11 ] |
Post subject: | Maður dagsins |
Mamma kallaði á mig í morgun og sagði mér að kíkja á fíflið sem er framaná blaðinu í dag, var það þá ekki bara einn snillingurinn úr l2c. ![]() Quote: Vill ekki drepa sig á hraðakstri
Ársæll Erlingsson er forfallinn bíladellukarl og segist ekki vera einsdæmi um menn sem vilja keyra hratt. Ársæll erlingsson er próflaus eftir ofsaakstur: Hraðametið er 220 - Veit að ég er stórhættulegur - Dreymir um kraftmeiri bíl "ég hef hraðast ekið á 220 kílómetra hraða" segir Ársæll Erlingsson,tvítugur piltur frá Akranesi, sem segist vera forfallinn bílaáhugamaður. Mikið hefur borið á hraðakstri ungs fólks en banaslys eru nú orðin fleiri en á öllu seinasta ári. "Ég var sviptur ökuréttindum þegar ég var tekinn á 100 kílómetra hraða innanbæjar" segir Ársæll en hann missti prófið í þrjá mánuði. Hann segist aðeins einu sinni hafa verið sviptur réttindum, en mögulega missi hann þau aftur vegna punktakerfisins. Hann segist finna mikið "adrenalínkikk" af því að keyra á miklum hraða og líkir því við fíkn. "Þetta er sjúklega gaman" segir hann. Ekki hefur Ársæll alltaf sloppið vel frá hraðanum. Hann lærbrotnaði einu sinni þegar hann velti bílnum á miklum hraða. Hann segist þakka guði fyrir að vera á lífi eftir þá byltu. "Ég á mynd af klesstum bílnum uppi á vegg og hún minnir mig á það hversu vel ég slapp," segir Ársæll, sem heldur samt áfram að aka á ofsahraða. "Ég veit að ég er stórhættulegur og ég fæ alltaf smá sting þegar ég horfi á auglýsingar frá Umerðarstofu" segir Ársæll en bætir við að hann eigi því miður til að gleyma þeim hörmungum sem hafa dunið yfir þegar hann finnur sig frjálsann á þjóðveginum. "Ég hætti eginlega í skóla til þess að fjármagna bæði tjón sem ég hef valdið og til þess að eiga fyrir rúntinum" segir Ársæll en bíladellan hefur bitnað á honum á marga vegu. Í þrígang á síðasta ári varð hann valdur að umferðaróhöppum. Hann segist ekki vera sá eini sem hefur gaman af að keyra hratt og bendir á það mætti draga stórlega úr hættunni ef sómasamleg aðstaða væri til þar sem unnt yrði að keyra hratt og fá útrás. Ársæll tekur það fram að hann tefli ekki farþegum sínum í tvísýnu með hraðakstri. Hann segist meðvitaður um afleiðingar þess að keyra hratt og hann vilji ekki lifa með það á samviskunni að hafa orðið valdur að dauða annara. "Ég geri mér grein fyrir að ég gæti dáið einn daginn en ég vil ekki drepa mig á hraðanum." segir hann. Ársæll á sér draum um kraftmeiri bíl." |
Author: | Djofullinn [ Tue 03. Oct 2006 10:34 ] |
Post subject: | |
Hey hvað er aftur nickið hans á L2C? Hann er allavega með mynd af sér í avatar ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Tue 03. Oct 2006 10:40 ] |
Post subject: | |
SurtZ |
Author: | jens [ Tue 03. Oct 2006 10:42 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | jens [ Tue 03. Oct 2006 10:49 ] |
Post subject: | |
Ég er viss um að ef þetta "" hraðamet "" er tekið og deilt með 2 og útkoman er dreginn frá greindarvísitölu þessa drengs þá kemur samt út mínustala. |
Author: | Hannsi [ Tue 03. Oct 2006 10:50 ] |
Post subject: | |
já því við hér allir erum svo saklausir um hraðakstur ![]() |
Author: | ///MR HUNG [ Tue 03. Oct 2006 10:53 ] |
Post subject: | |
Þetta er vinsælasti maður internetsins í dag ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Tue 03. Oct 2006 10:53 ] |
Post subject: | |
Hannsi wrote: já því við hér allir erum svo saklausir um hraðakstur
![]() Það er ekki málið, en þessi gaur er í blaðaviðtali og hljómar eins og algjört fífl, segjandi að hann hafi hætt í skóla til að geta borgað tjón og svona semi "montar" sig af því að hafa verið valdur af 3 tjónum, hefði betur þagað um hraðakstur og reynt að gera eitthvað gott fyrir bíladellufólk! |
Author: | Djofullinn [ Tue 03. Oct 2006 11:18 ] |
Post subject: | |
Þetta allavega eykur bara ofsann í mönnum sem vilja fá hraðatakmarkara og annað rusl í gang ![]() |
Author: | Hannsi [ Tue 03. Oct 2006 11:23 ] |
Post subject: | |
fínnt segi ég þá kannski möguleiki að íslendingar drullist til að standa í hári stjórnvalda hér í stað þess að sitja á rassgatinnu og fylgja straumnum ![]() |
Author: | freysi [ Tue 03. Oct 2006 11:33 ] |
Post subject: | |
afsakið en,,,, ÞVÍLÍKUR HÁLFVITI!!11!!1 Hvernig í ósköpunum getur maðurinn látið svona útúr sér við blaðamenn. Þetta er allravegna ekkert að hjálpa okkur bílaáhugamönnum í umræðunni sem er búin að vera í fjölmiðlum upp á síðkastið. Sérstaklega þeim heilbrigðu ![]() |
Author: | siggir [ Tue 03. Oct 2006 11:34 ] |
Post subject: | |
Maður dagsins? Fífl dagsins ![]() |
Author: | fart [ Tue 03. Oct 2006 11:34 ] |
Post subject: | |
Ég get ekki opnað þetta... fæ bara "LOW I.Q. WARNING" á skjáinn. |
Author: | freysi [ Tue 03. Oct 2006 11:39 ] |
Post subject: | |
Hannsi wrote: fínnt segi ég þá kannski möguleiki að íslendingar drullist til að standa í hári stjórnvalda hér í stað þess að sitja á rassgatinnu og fylgja straumnum
![]() Finnst þér þetta alltílagi að koma svona á forsíðu með þessar fullyrðingar? Ef að það myndi fara útí það að hraðatakmarkarar yrðu settir í bila hér á landi þá eru íslendingar ekkert að fara mótmæla frekar en fyrri daginn. Þessi frétt hjálpar engum í þessari baráttur heldur ýtir frekar undir hræðslu yfirvalda og húsmæðra. Greinilegt að maður er virkilega í hættur hérna í umferðinni ef að fleiri eru með svona hugsunarhátt. ps. ég er ekki að gera sjálfan mig að engli hérna, mér finnst þetta bara fyrir neðan allar hellur! ![]() |
Author: | siggir [ Tue 03. Oct 2006 11:41 ] |
Post subject: | |
Hannsi wrote: fínnt segi ég þá kannski möguleiki að íslendingar drullist til að standa í hári stjórnvalda hér í stað þess að sitja á rassgatinnu og fylgja straumnum
![]() Það hefur margsannað sig að fokkðesistem stefnan virkar engan veginn. Þeir sem standa í því fara í fangelsi og hinir lenda undir smásjánni. |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |