bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Hraðahemlar í alla bíla?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=16174
Page 1 of 2

Author:  nitro [ Mon 26. Jun 2006 23:49 ]
Post subject:  Hraðahemlar í alla bíla?

Hafið þið lesið Blaðið í dag (mánudagur)?
Þar er haft eftir Sturlu Böðvarsyni samgönguráðherra og Einari Magnúsi Magnússyni, að það komi til greina að skoða hraðahemla, s.s. búnað sem gerir bilum ókleift að fara yfir 90km/h!
Þetta reyndar er á miklu frumstigi og það er bara verið að skoða þetta, en að fólk skuli láta sér detta svona lagað í hug?

Stefán Ásgrímsson ritstjóri FÍB-blaðsins er greinilega greindari maður en Sturla og Magnús, og er náturlega mikið á móti þessua og likir þetta við fasískar reglur.

Hvað yrði svo næst? Að setja tölvukubba beintengda við heilan sem lætur lögregluna vita hvenær við hugsum eitthvað "óæskilegt", a bit extreme, en hví ekki?
Við erum greinilega ekki fær um að bera ábyrgð á okkur sjálf að mati Sturlu.

Ég er nokkuð viss um að 99% hér er á móti þessu, en ef þetta er ekki eitthvað sem vekur reiði þá veit ég ekki hvað.

Author:  Aron Andrew [ Tue 27. Jun 2006 00:27 ]
Post subject: 

Það er bara ekki séns að það verði eitthvað úr þessu :!:

Author:  pallorri [ Tue 27. Jun 2006 00:29 ]
Post subject: 

Þetta verður aldrei að veruleika :wink:

Author:  bjahja [ Tue 27. Jun 2006 00:35 ]
Post subject: 

Sammála, þetta verður aldrei en ef þetta verður þá erum við bara einu skrefi nær """brave new world"""

Author:  Bjarki [ Tue 27. Jun 2006 01:23 ]
Post subject: 

bjahja wrote:
einu skrefi nær """brave new world"""


það fyrsta sem mér datt í hug!

Author:  zazou [ Tue 27. Jun 2006 10:59 ]
Post subject: 

Bjarki wrote:
bjahja wrote:
einu skrefi nær """brave new world"""


það fyrsta sem mér datt í hug!

Best að gefa karlinum soma.

En ekki skrítið að pólitíkusar reyni að leita leiða til að hefta þann hraðakstur sem er alltaf í fréttunum.

Author:  siggir [ Tue 27. Jun 2006 12:11 ]
Post subject: 

zazou wrote:
Bjarki wrote:
bjahja wrote:
einu skrefi nær """brave new world"""


það fyrsta sem mér datt í hug!

Best að gefa karlinum soma.

En ekki skrítið að pólitíkusar reyni að leita leiða til að hefta þann hraðakstur sem er alltaf í fréttunum.


Þetta er bara ekki rétta leiðin. Frekar að efla löggæsluna heldur en að vera að járna okkur svona.

Ég ræddi þetta við lögfræðinemann vin minn og við komumst að þeirri niðurstöðu að í sjálfu sér sé ekki bannað að brjóta lög en ef menn gera það þá þurfa þeir að taka afleiðingunum. Við höfum alltaf þetta ákveðna val um að fara eftir leikreglunum eða ekki og það er ekki hægt að þvinga okkur til þess að gera það.

Author:  Schnitzerinn [ Tue 27. Jun 2006 12:22 ]
Post subject: 

Ætli það sé til sá alþingismaður sem hefur ekki keyrt hraðar en á 90 km. hraða og keyrir alltaf á 90 á þjóðvegum landsins ? Mér þykir það hæpið. Þetta er svo yfirgengilega heimskulegt að láta sér detta þetta í hug að maður á ekki til orð.

Author:  Schulii [ Tue 27. Jun 2006 13:35 ]
Post subject: 

Auðvitað er þetta ekkert yfirgengilega heimskulegt. Þetta er bara svo ógeðslega leiðinlegt! Við viljum bara brjóta lögin. Ég heyrði einn tala um í útvarpinu í gær að það vantaði bara betri ökukennslu og fræðslu!?! Einmitt, gaurinn sem var tekinn á 180 var örugglega bara eitt stórt spurningamerki og sagði: "Ó, þetta var mér ekki kennt að mætti ekki!"

Eins og ég segi að auðvitað er skiljanlegt að þeir skoði þennan möguleika. Það er ekkert víst að það sé nóg að efla löggæsluna, við gerum þetta samt en erum kannski oftar tekin fyrir það.

Ég ætla ekki að fara að halda því fram að öll banaslys séu útaf hraðakstri en spáum samt í einu; Það deyja rúmlega 20 manns á hverju ári í umferðinni. Ef það myndi hrapa ein innanlandsfarþegavél á hverju ári og 20 farast með henni, værum við þá ekki í sjokki? Myndum við ekki skoða ALLA hugsanlega möguleika til að koma í veg fyrir svoleiðis harmleiki? Ég held að það væri aldrei ásættanlegt ástand.

Við viljum ekki gera það sem þarf til að gera umferðina öruggari því okkur finnst það sem þarf til þess svo leiðinlegt!!

Author:  A.H. [ Tue 27. Jun 2006 17:04 ]
Post subject: 

Nokkuð til í þessu hjá Skúla.
Hins vegar er ýmislegt annað sem mælir gegn hugmynd ráðherrans.

T.d. sjónarmið um neyðarrétt. Þú ert kannski úti á landi og þarft að keyra með einstakling á spítala og hver sekúnda getur skipt máli.

Önnur pæling. Þú ert að keyra á þjóðvegi á 90 og fyrir framan þig er ökumaður á löngum vörubíl á 79-81 km hraða. Þú ætlar að taka fram úr. Til þess að framúrakstur geti verið öruggur þá verður hann að geta átt sér stað nokkuð hratt, a.m.k. ekki löturhægt. Í tilviki sem þessu eru bílarnir á frekar svipuðum hraða og því tekur það talsverðan tíma fyrir bílinn að komast fram úr (ef e-r nennir þá getur hann reiknað það út hversu lengri tími þetta er heldur en ef þú þrykkir í 125 og skjótist fram úr eins og margir myndu gera).
Mætti líka nefna það að bílalestir yrðu fljótar að skapast við svona aðstæður.
Dæmi um bílalest á 70 km hraða:
Fremstur er vörubíll<-jeppi með hjólhhýsi leggur ekki í að taka fram úr <-ein gömul kona<- svo fer þetta að hlaðast upp.

Þetta eru bara svona pælingar sem mér dettur í hug í fljótu bragði og tel að ættu að leiða til þess að hugmynd ráðherrans eigi ekki að verða að veruleika.

Eigum við ekki bara að fara að nota e-ð af bílatengdum sköttum/gjöldum í að bæta vegina og auka akreinafjölda? Mér skilst að þetta fari yfirleitt í e-ð allt annað...

Author:  Bjarki [ Tue 27. Jun 2006 17:24 ]
Post subject: 

Það deyja um 20 á ári í bílslysum, það er mjög slæmt.
En ég vil vita hversu margir er eftir af þessum 20 þegar þeim sem eru fullir er sleppt, þeim sem eru ekki í beltum er sleppt, þeim sem stunda glæfraakstur er sleppt, þeim sem ekki huga að ástandi ökutækja er sleppt.
Þá hugsa ég að það kæmi í ljós að fyrir alla þá sem eru með toppstykkið svona í sæmilega góðu lagi sé mjög öruggt að fara út að keyra.

Author:  sindrib [ Tue 27. Jun 2006 17:31 ]
Post subject: 

einmitt skemmtilega að komast framúr, ég var að vinna á bíl sem komst ekki hraðar en 90 og það var búið að takmarka bensín gjöfina, ef maður reyndi að komast fram úr var það bara stór hættulegt, og munaði oft miklu að maður olli miklum árekstrum.

þetta frumvarp á aldrei eftir að verða að veruleika

Author:  ///M [ Tue 27. Jun 2006 17:55 ]
Post subject: 

Það var nú sagt á sínum tíma að það kæmi aldrei til með að ganga að
sekta fólk fyrir að vera ekki í belti...

Mér þætti samt gaman að sjá hversu lengi ég væri að rífa limiterinn úr
eftir að ríkið installaði honum :lol:

Author:  burgerking [ Tue 27. Jun 2006 18:08 ]
Post subject: 

///M wrote:
Það var nú sagt á sínum tíma að það kæmi aldrei til með að ganga að
sekta fólk fyrir að vera ekki í belti...

Mér þætti samt gaman að sjá hversu lengi ég væri að rífa limiterinn úr
eftir að ríkið installaði honum :lol:


sénsinn að ég myndi bara yfir höfuð láta þá koma nálægt bílnum mínum :P...

Crap.. nema kannski á skoðunarstöðunum :?

Author:  nitro [ Tue 27. Jun 2006 18:44 ]
Post subject: 

Afhverju ekki gera það sem svíar hafa gert siðustu 10 árin með td þá sem stunda ölvunarakstur? Þar er sett tölva í bíla hjá þeim sem hafa gerst sekir um að aka undir áhrifum sem neyðir þig til að blása áðuren þú keyrir, og ef þú ert ekki edrú fer bílinn ekki i gang. Þetta náttla stoppar ekki ef þú ert á annara manna bíl, en það eru ekkert allir að lána ölvuðu fólki bílana sína.
Og það væri þessvegna hægt að koma svipuðu fyrir í sambandi við bílbelta notkun, í stað þess að hafa bara vælandi hljóð, þá bara startar bílinn ekki nema þú spennir beltið, og passir að þú spennir það ekki bara bakvið eins og margir gera. Littlir hlutir sem bögga ekki mikið en bjarga miklu...

Svo er það nú ekki viltaus hugmynd um að takmarka hversu kraftmikla bíla fólk fær að hafa fyrstu árin, það er nú þegar gert með mótorhjól, því ekki bíla? Fúllt kannski, en flestir 17 ára eru ekki nægilega góðir ökumenn fyrir Transam og camaroa...

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/