| bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
| toyota druslan mín https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=15140 |
Page 1 of 2 |
| Author: | Turbo- [ Sat 22. Apr 2006 12:55 ] |
| Post subject: | toyota druslan mín |
þessi á kannski ekki alveg heim hérna enn hann er búinn að vera á meiginlandi BMW næstum alla sína tíð. kom ekki til íslands fyrr en 2001(var búinn að vera í þýskalandi frá 1992). ég keypti hann tjónaðan 2004 og var þá ný orðinn 15 ára. já þetta er s.s 1992 módelið af mr2 turbo
það næsta sem ég geri er að setja hann á númer og mála felgurnar svartar með póleruðum kanti |
|
| Author: | Svezel [ Sat 22. Apr 2006 13:00 ] |
| Post subject: | |
þetta er virkilega cool bíll svo er ekki mikið mál að gera svona mr2 turbo að SVAKA græju. |
|
| Author: | bjahja [ Sat 22. Apr 2006 13:05 ] |
| Post subject: | |
Ég hef alltaf fílað þessa týpu af mr2 mega vel og þú ert búinn að gera þennan virkilega flottan |
|
| Author: | Turbo- [ Sat 22. Apr 2006 13:06 ] |
| Post subject: | |
thx ein mynd af honum eins og hann var þegar ég keypti hann
|
|
| Author: | Djofullinn [ Sat 22. Apr 2006 13:12 ] |
| Post subject: | |
Þetta er BARA í lagi hjá ykkur feðgunum Það væri líka gaman ef þú myndir henda inn myndasögunni eins og á kvartmílunni. Það er helvíti skemmtileg skoðun/lesning |
|
| Author: | Turbo- [ Sat 22. Apr 2006 13:14 ] |
| Post subject: | |
ok hérna er sagan einu sinni enn áður en ég keypti hann leit bíllinn út svona grænn og fínn
mig langaði alltaf í svona bíl þegar ég var minni en það fjaraði út vegna þess að ég hélt að það væru engir svona bílar hérna á íslandi þangað til 23 Desember 2005 þá kallaði pabbi í mig þegar hann var að skoða uppboð hjá TM og sagði "sjáðu mr2" og ég bað hann um að bjóða í hann. þá leit hann út eins og kaka
jæja svo kom hann heim til mín 28 Desember og þegar hann er á pallinum sjáum við pabbi þetta fallega merki á sílsaristunum sem stendur á Turbo og þá varð ég mikið spenntari, svo var allt rifið í tætlur og farið með bílinn niður í vinnu til pabba þar sem hann var réttur og allt mátað á. *afgangurinn kemur seinna er í annari tölvu* og svo var hann svona í einhverja mánuði á meðan við biðum eftir framrúðunni til að halda áfram
jæja þá var rúðan komin og haldið var áfram og bíllinn dreginn aftur niður í vinnu til pabba og þar var allt rétt sem átti eftir að rétta.
þá var bara slípað niður lakkið svo að það var hægt að grunna bílinn
þá var slípaður grunnurinn (ekki það skemmtilegasta sem að maður gerir)
svo var bíllinn málaður og komið með hann heim á flutningabíl og þar var allur pappi rifinn úr honum
og svo var hennt á hann skottlokinu
svo var öllu raðað á kvikyndið sem var hægt
næst voru það rúðurnar en þeim var fyrst hennt í Hauk og Steina í Icefilmum og þær voru filmaðar verulega vel og vandlega.
næst kom mælaborðið. það var rifið úr vegna skemmda sem er búið að gera við núna skemmdin er þarna við gleraugun mín
jæja svo var bara afgangnum raðað á ásamt því að setja í mælaborðið
verið að máta stuðarann á
ég fékk vitlausan lit á mælaborðið en það reddaðist. efsta klæðningin sýnir réttan lit
mælaborðið komið í
jæja áfram að raða saman
og svona er nú staðan í dag.
|
|
| Author: | Stanky [ Sat 22. Apr 2006 13:22 ] |
| Post subject: | |
Vá, þetta var/er flott project hjá þér maður Vel gert! |
|
| Author: | Kristján Einar [ Sat 22. Apr 2006 13:25 ] |
| Post subject: | |
dáist af þessum, ofbóðslega fallegur litur líka! flott framtak, vonandi skemmtuð þið ykkur við þetta |
|
| Author: | jens [ Sat 22. Apr 2006 14:42 ] |
| Post subject: | |
Flottur bíl hjá þér, hlakka til að sjá hann eftir að þú ert búinn að sansa felgurnar. |
|
| Author: | IvanAnders [ Sat 22. Apr 2006 16:36 ] |
| Post subject: | |
geggjaður! |
|
| Author: | Turbo- [ Sat 22. Apr 2006 17:21 ] |
| Post subject: | |
IvanAnders wrote: geggjaður!
hef ekki prufað að keyra hann. enda er ég bara 16 ára gutti vélarsalurinn er svolítið drullugur og þessi mynd var tekin fyrir málingu
|
|
| Author: | Geirinn [ Sat 22. Apr 2006 18:16 ] |
| Post subject: | |
Myndi þessi bíll vera: 200hö 275nm 1180kg eða 1300kg 0-100 km/klst 6,8 sek ?? |
|
| Author: | Turbo- [ Sat 22. Apr 2006 18:24 ] |
| Post subject: | |
200hö 271nm 1290kg 0-100km/klst 6,2sek hef heyrt þetta og lesið |
|
| Author: | Schnitzerinn [ Sat 22. Apr 2006 18:31 ] |
| Post subject: | |
Hann er virkilega flottur hjá þér og vel að verki staðið Mér finnst hann kjánalega þungur miðað við stærð |
|
| Author: | Turbo- [ Sat 22. Apr 2006 18:37 ] |
| Post subject: | |
Schnitzerinn wrote: Hann er virkilega flottur hjá þér og vel að verki staðið
Mér finnst hann kjánalega þungur miðað við stærð á eftir að taka hvalfjörðin einhverntíman og þá vigta ég hann hann er samt ekkert mikið minni en carinan. kannski nokkrum cm styttri og mjórri |
|
| Page 1 of 2 | All times are UTC |
| Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |
|