Bjarkih wrote:
Kristjan PGT wrote:
Kristjan wrote:
Þetta er líka bara áhættan sem maður tekur þegar maður vinnur svart...
já okey...og ef maður er svikinn um þá vinnu er það þá bara tough luck? Það græða báðir aðilar á því að fá vinnuna svart og þú borgar það sem þú lætur vinna fyrir þig.
Hvernig græða báðir aðilar á því? Verkkaupi hefur enga tryggingu fyrir gæðum verksins og iðnaðarmaðurinn borgar t.d. ekki í lífeyrissjóð og þess háttar sem skiptir töluverðu máli ef maður hefur gáfur til að hugsa fram í tímann. Þeir sem vinna svart eru að taka vinnu af heiðarlegum iðnaðarmönnum sem borga sitt til samfélagsins þannig að ég vorkenni þeim ekki rassgat þó að þeir lendi í einhverjum svona hremmingum, líkur sækir líkan heim.
já, því að lífeyrissjóðir hafa verið að koma svo vel út? En það er nú alveg efni í nýjan þráð.
"Hvernig græða báðir aðilar á því?" Veistu hvernig svört vinna gengur fyrir sig? Munurinn á t.d. umræddum sólpalli þar sem vinna er 1,6 milljón uppgefinn gæti verið 500þúsund krónum ódýrari ef sanngjarnt er samið.
Að sjálfsögðu þurfa menn að fara varlega í þessum viðskiptum eins og öðrum. Og oftast er nú greitt eftir á þannig ef þér líkar ekki eitthvað þá er hægt að semja um það, bæta eða jafnvel slá af verðinu.
Þú skalt athuga það að það er sjaldnast iðnaðarmaðurinn sem hefur frumkvæði af því að hafa vinnuna nótulausa.
Og ertu gjörsamlega frá þér að segja að þeir sem vinna svart séu að taka vinnuna af heiðarlegum iðnaramönnum...blabla...
Nefndu mér einn iðnaramann sem nennir að vinna á kvöldin eða um helgar sem gefur allt upp og skrifar nótu á hverja einustu parketlögn...