bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 20. Jun 2025 04:12

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 55, 56, 57, 58, 59, 60, 61 ... 246  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 09:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Ég veit ekki enn ég er búinn að vera með í maganum yfir upprisu íslands og hegðun íslendinga núna í nokkur ár, þess vegna hef ég aldrei með góðri samvisku tekið mér bílalán og hvað þá undir erlendu fjármagni.

Þar sem ég var að vinna í flugstöðinni þá sá ég útlanda ferðalög íslendinga á hverjum degi, hundruði bíla á bílastæðunum lögðum vikum samann því að fólk var hætt að fá fjölskyldu meðlimi til að skutla sér uppá völl eins og hefur alltaf tíðst á íslandi og fólk fann sko ekki fyrir neinu að geyma bílinn þar.

Svo fólk sem hefur unnið að eignast húsnæði sitt að fara endurfjármagna heimili sitt frá 50% veði í 100%, mismuninum svo eytt bara í "vitleysu" ef svo má að orði komast, semsagt fólk eyddi peningum sem það hafði ekki unnið fyrir og á núna eftir að eiga næstum ómögulegt að eignast næstu ár.

Ég mann árið 2001 þá sagði einn samstarfsmaður minn að greiðsluþjónustann hjá honum og konunni væri 200k á mánuði,
ég hreinlega missti andlitið,
þetta var þá húsið, sjónvarp, græjur, visa reikningar, dvd spilarinn og svo framvegis, núna síðustu ár þá hefur maður verið að heyra fólk sem hefur verið að greiða margfalt það allt á þeim stoðum að ekkert mun koma fyrir.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 09:57 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
Ævintýrið hans farts úti búið?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 10:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Svezel wrote:



Margir miklir menn og þjóðir eiga gjaldþrot á bakinu, þetta er bara spurning um að bera höfuðið hátt, hugsa um það sem skiptir máli og átta sig á því að peningar eða starfstitill er ekki allt.

Fólki á Íslandi leið líka vel fyrir 30-40-50-60árum

Ég tók líka þátt í þessu fylleríi; ég var kominn á margra milljón króna bíla á lánum með þokkalega afborganir í hverjum mánið en áttaði mig þó á því fyrir nokkrum mánuðum að það var bara alls ekki þess virði og ég vildi bara losna út.

Það var voða gaman að vera á nýjum og fínum bíl sem lúkkaði svakalega

Þetta var bara sama dótasyndrome'ið sem maður hafði sem krakki

óþarfi að setja sig á hausinn fyrir dót.

Á Íslandi er gríðarlega mikið af duglegu og kláru fólki sem hefur margt fram að færa

Eitthvað stundarbrjálæði

leit að einhverjum blórabögglum

sjálfsmorð bjargar engu






saemi wrote:
þetta hefur því miður verið yfirvofandi í nokkurn tíma. Þó svo að ég hafi ekki gert mér í hugarlund þvílíkar hamfarir og hafa orðið.

En... nú hefur mikið gerst á einni viku.


Það er samt ferlega fúlt, eins og brandarinn í 24 stundum um daginn með gæjann sem lá á gólfinu ælandi "af hverju er ég með timburmenn, mér var ekki einu sinni boðið í partíið"! 'Við erum búin að vera að borga fyrir saurlifnað annarra í langan tíma með sparnaði okkar. Sem nú er týndur og tröllum gefinn.

það að lífeyrissparnaður fólks og ævistrit þess á hinum og þessum reikningum, sem höfðu svo til enga áhættu, sé strokað út á engum tíma er ekkert annað en glæpsamlegt. Maður hefur verið teymdur áfram eins og asni í síðustu 10-15 ár og borgað í viðbótarlífeyri, sett pening sinn inn í banka í minnstu áhættu sem völ er á og á einni nóttu er alllt farið.

Hvert fór þetta? Jú, kæru vinir. Þetta fór í það að kaupsýslumenn dagsins í dag, fjármálaspekúlantar mikilir voru að búa til peninga.

Það var ekki nóg að hafa innlán okkar sem erum að reyna að eignast þak yfir höfuðið, með verðtrygginingunni sem gerir það að verkum að maður borgar þrefalt verð fyrir húsið sitt sem maður loksins eignast þegar maður er að komast á eftirlaun (ef maður reiknar dæmið rétt og er skynsamur). Nei, klæðskerasaumuðu kaupsýslumennirnir þurftu meiri peninga og því fóru þeir að sauma saman fléttur. Á eins og tug ára, tókst þeim að búa til afleiður, fléttur og koma því þannig fyrir að fjármálafyrirtæki sköpuðu svo mikinn "hagnað" (út frá sparifé okkar mauranna) að hægt var margfalda verðgildi peninganna okkar.

Hvar voru og eru stólpar og bakhjarl þessarra fjármuna?


Skellurinn sem kom núna er því miður leiðréttingin á raunvirði og uppblásnu virði "eigna" í heiminum.



Hvers á maður að gjalda að þurfa að þola hrun samfélagsins þegar maður hefur bara verið að byggja upp. Láta taka af sér peninga á "örruggum" peningabréfum og auknum lífeyrissparnaði.

Ég segi bara: Skammist ykkar þið sem hafið verið að njóta lífsíns á margfaldri lúxuseyðslu á kostnað okkar hinna mauranna. Ég vona að þið sjáið skömm ykkar í því hvernig er komið fyrir okkur öllum. Þið fenguð þó fylleríið, við fáum timburmennina ykkar líka en ekkert fyllerí!




Þetta mun verða erfitt fyrir marga, það er víst. En við verðum að horfa fram á veginn og við Íslendingar erum í góðri stöðu til að ná hlutunum upp aftur fljótt. Við höfum útflutning og ferðaiðnað og þetta muna ná okkur á strik eftir 2 ár eða svo.



Tók og quotadi thad sem mér fannst áhugaverdast

Ansi .. ef ekki allt sem tharna kemur fram hja nafna og saema er einmitt mergur málsins

1) gód ábending hjá nafna,,,, Team wannabe en hann bendir svo réttilega hvernig thad er ad hafa fallid i thessa gryfju,,,,,,,, losta afls og munadar,, eins og aragrúi fólks gerdi med STÓRU BÍLALÁNUNUM,,,,
kaupa eitthvert megatæki ,,, fróa sér yfir útlitinu og/eda aflinu ,,, og átta sig svo ad sársaukin vid ad skeina sér er óbærilegur

2) Søkum aldurs,, og gott minni thá man ég ansi vel eftir tídarandanum hér ádur fyrr,,,,,, fólk VANN FYRIR HLUTUNUM ádur en keypt var
Lán voru ekki i bodi fyrir einkaneyslu,,, en komu einna fyrst á markad med VISA/EURO radgreidslum ,,,,, og skuggalegum vøxtum
((ps,, OT nafni veit alveg hvad er ad vinna fyrir hlutunum thar sem hann stundadi sjomennsku af hørku-dugnadi og ÁTTI pening ádur en hann fór ad spá í hvernig bíl hann ætti ad fá sér))

3) Margt fólk med bein bøk hefur bugast en nád ad rétta úr sér aftur

4) Hverslags grunnhyggni er thetta ad vera med 3 bíla + á bullandi Bílaláni i TOPP....... hellingur af spjallverjum hérna sem eru med feita reikna á bakinu ,,,,, tala nú ekki inná L2C (( Like 2 cash ?? ))

5) Hverjir eru adal søkudólgarnir,,, gód spurning

6) Sjálfsvíg ,, sterk umræda er ad fjármálarádgjafar og annad fólk séu ad týna tølunni ,, ef svo er lít ég á ad thetta gæti verid líkleg skýring,,,,, afleiding slæmrar ákvardanna ,,, vondrar samvisku í gard kúnna og geta ekki tekist á vid raunveruleikann,
hryllingur ad thetta fólk sjái ekki adra leid,, og jafnframt skelfilegt ad gera fjølskyldu og venslafólki thennann óleik,, eins og stadan sé ekki nógu slæm,, ømurleg ákvørdun en thetta fólk virdist líta á ad thetta sé EINA og rétta leidin.

7) Skorad var á mig af ónefndum adila ,,,, fyrir 11 mánudum sídan ad kýla á thetta,, ráda menn í vinnu ((hafdi fulla trú á mér)) og LOS
ég var ragur og hafdi vonda tilfinningu,, var búinn ad vinna fyrir hr og frú lotsofmoney.is@credit-enginninnistæda i 10 ár og sídasta verkefnid endadi á ad kúnninn baud mér fast starf i fyrirtækinu sínu sem ég thádi.
( en tharf nú ad leita mér ad starfi søkum ótrúlegs samdráttar )
Thessi áskorandi sem er sérlega flinkur i sínum geira hefur aldrei séd annad eins STOPPPPPPPPPPP ever, allt i steik

8) Their adilar sem veittu rádgjøf til elli og lífeyris thega,,eda venjulegs borgara sem vildi leggja fyrir og reyna ad hafa thad gott á efri árum, thad fólk á aldeilis ad svara til saka ef rétt reynist ad stærsti hlutinn var í STOFN 9 og álika reikningum...... bodin 15-17% ávøxtun og svo skilur enginn ad thad sé hægt ad tapa ,,, BARA græda :? :?
Grædgissjónarmid hafa algerlega rádid før engin skynsemi,, á øruggum ríkis-skuldabréfum eda álíka

9) flottræflarnir sem bødudu sig í frægdinni og dýrdarljóma á kostnad annarra ,,,,,,,,, SVEI

10) saemi kom ad thessu lidi sem sukkadi svo feitt og tók lán og gerdi og gerdi,, Thetta eru LÍKA stóru fasteignalánin
Hversu margir bílar hafa verid til sølu thar sem ,,,,,,, YFIRTAKA er eina skilyrdid ????
Hver er innistædan fyrir velmeguninni.. í praxis er hún debit,, en Íslendingar ((ofl)) upp til hópa tóku feitt credit og sitja uppi med MEGALÁN sem tharf ad borga af,,
[[ bendi á sjálfan mig ad hafa brudlad ótæpilega í blæjuna en thad er greitt og ekkert lán,, einnig er Guli skuldlaus,, Ekkert lán er heldur á M5 ]]

Margir eiga eftir af fara flatt,,,, ekki spuning svo ordid hagsýni á eftir ad hafa vídtæka merkingu á næstu árum,,
spurning hvernig thad verdur med ,máltækid vídfræga sem hljómadi ótt og títt á midlunum ;;;; eyddu í sparnad já er thad,, hverjum er treystandi ????

Gódar stundir

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 10:59 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Jónas wrote:
Ævintýrið hans farts úti búið?


Mér finnst ekki fallegt að tala um líf fólks sem ævintýri í þessu sambandi. Þetta var og er ekkert ævintýri hjá honum. Þetta er fjölskyldumaður sem var að missa vinnunna!

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 11:19 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Nokkur góð innlegg komin.

Það er hrikalegt að þeir sem síst mega við því eru að tapa stórum hluta
eigna sinna - aldraðir sem hafa lagt fyrir til elliáranna og eru nú að
tapa því að mestu eða öllu.

Svo þeir sem voru forsjálir og lögðu til hliðar í sparnað eru jafnvel líka
að tapa því í helv. sjóðum og bréfum sem eru að öllum líkindum
verðlaus.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 11:27 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 09. Jun 2003 16:50
Posts: 1154
Location: Reykjavík
saemi wrote:
Jónas wrote:
Ævintýrið hans farts úti búið?


Mér finnst ekki fallegt að tala um líf fólks sem ævintýri í þessu sambandi. Þetta var og er ekkert ævintýri hjá honum. Þetta er fjölskyldumaður sem var að missa vinnunna!


Mér finnst samt eitt öfugsnúið við þetta sem þú ert að segja, þó að fart sé vinur þinn að þá er nokkuð augljóst að hann er einn af þeim sem hefur verið á þessu peningafylleríi eins og þessir menn sem þú ert búinn að vera að gagnrýna...
Nú er ég alls ekki að gagnrýna hann né setja neitt útá það sem hann hefur verið að gera, enda hefði ég eflaust gert það sama ef ég hefði verið í hans sporum, þ.e.a.s. eitt mörgum milljónum í bílaleik eins og M3 og M5 bílarnir hans eru.....
þeir hinir sem þú ert að tala um eru einnig fjölskyldumenn og vildu bara hafa það gott og leika sér eins og Fart og fleirri................

_________________
BMW e53 X5
Honda CRV
Gas Gas 450 FSE


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 11:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
ALGERLEGA sammála Róbert ((98 okt)) tharna

Sveinn var í thessum geira og stóla ég á hans heilindi ,, ekki spurning



En thetta kom upp í huga mér ,,,,,,,,,,,,,

ekki hengja bakara fyrir smid

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 11:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
98.OKT wrote:
saemi wrote:
Jónas wrote:
Ævintýrið hans farts úti búið?


Mér finnst ekki fallegt að tala um líf fólks sem ævintýri í þessu sambandi. Þetta var og er ekkert ævintýri hjá honum. Þetta er fjölskyldumaður sem var að missa vinnunna!


Mér finnst samt eitt öfugsnúið við þetta sem þú ert að segja, þó að fart sé vinur þinn að þá er nokkuð augljóst að hann er einn af þeim sem hefur verið á þessu peningafylleríi eins og þessir menn sem þú ert búinn að vera að gagnrýna...
Nú er ég alls ekki að gagnrýna hann né setja neitt útá það sem hann hefur verið að gera, enda hefði ég eflaust gert það sama ef ég hefði verið í hans sporum, þ.e.a.s. eitt mörgum milljónum í bílaleik eins og M3 og M5 bílarnir hans eru.....
þeir hinir sem þú ert að tala um eru einnig fjölskyldumenn og vildu bara hafa það gott og leika sér eins og Fart og fleirri................


Held að svona raus á þessum tímapunkti sé það síðasta sem Fart
þarf á að halda frá okkur núna og ekki það sem þú myndir vilja heldur
værirðu í hans sporum. Það verður nógur tími fyrir svona umræður
síðar - nú verða allir að standa saman.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 11:51 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 09. Jun 2003 16:50
Posts: 1154
Location: Reykjavík
bimmer wrote:
98.OKT wrote:
saemi wrote:
Jónas wrote:
Ævintýrið hans farts úti búið?


Mér finnst ekki fallegt að tala um líf fólks sem ævintýri í þessu sambandi. Þetta var og er ekkert ævintýri hjá honum. Þetta er fjölskyldumaður sem var að missa vinnunna!


Mér finnst samt eitt öfugsnúið við þetta sem þú ert að segja, þó að fart sé vinur þinn að þá er nokkuð augljóst að hann er einn af þeim sem hefur verið á þessu peningafylleríi eins og þessir menn sem þú ert búinn að vera að gagnrýna...
Nú er ég alls ekki að gagnrýna hann né setja neitt útá það sem hann hefur verið að gera, enda hefði ég eflaust gert það sama ef ég hefði verið í hans sporum, þ.e.a.s. eitt mörgum milljónum í bílaleik eins og M3 og M5 bílarnir hans eru.....
þeir hinir sem þú ert að tala um eru einnig fjölskyldumenn og vildu bara hafa það gott og leika sér eins og Fart og fleirri................


Held að svona raus á þessum tímapunkti sé það síðasta sem Fart
þarf á að halda frá okkur núna og ekki það sem þú myndir vilja heldur
værirðu í hans sporum. Það verður nógur tími fyrir svona umræður
síðar - nú verða allir að standa saman.


Nei, ég er alveg sammála því og biðst ég afsökunar á því, en ég var aðalega að benda Sæma á það að vera ekki að gagnrýna suma en réttlæta gjörðir annara sem voru sem voru í sama pakkanum...

_________________
BMW e53 X5
Honda CRV
Gas Gas 450 FSE


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 11:56 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
bimmer wrote:
98.OKT wrote:
saemi wrote:
Jónas wrote:
Ævintýrið hans farts úti búið?


Mér finnst ekki fallegt að tala um líf fólks sem ævintýri í þessu sambandi. Þetta var og er ekkert ævintýri hjá honum. Þetta er fjölskyldumaður sem var að missa vinnunna!


Mér finnst samt eitt öfugsnúið við þetta sem þú ert að segja, þó að fart sé vinur þinn að þá er nokkuð augljóst að hann er einn af þeim sem hefur verið á þessu peningafylleríi eins og þessir menn sem þú ert búinn að vera að gagnrýna...
Nú er ég alls ekki að gagnrýna hann né setja neitt útá það sem hann hefur verið að gera, enda hefði ég eflaust gert það sama ef ég hefði verið í hans sporum, þ.e.a.s. eitt mörgum milljónum í bílaleik eins og M3 og M5 bílarnir hans eru.....
þeir hinir sem þú ert að tala um eru einnig fjölskyldumenn og vildu bara hafa það gott og leika sér eins og Fart og fleirri................


Held að svona raus á þessum tímapunkti sé það síðasta sem Fart
þarf á að halda frá okkur núna og ekki það sem þú myndir vilja heldur
værirðu í hans sporum. Það verður nógur tími fyrir svona umræður
síðar - nú verða allir að standa saman.


Sammála.

Það er eflaust hræðilegt að vera með 2-3 manna fjölskyldu - ung börn - og missa góða vinnu sem maður hafði sjálfur trú á.

Ég myndi nú kannski ekki segja að fart hafi átt einhvern þátt í þessu. Hann var jú launþegi hjá Landsbankanum, þótti góður starsmaður til þess að flytja til Luxemburgh og sinna störfum sínum þar, ásamt einhverjum 20-30 öðrum. Hann hefur pottþétt lifað í góðri trú um að lífið hans væri bara á besta stað.

Það ætti að draga mennina sem stjórnuðu þessu fylleríi til saka. Löngu komið á það stig að hringja í 2 svera útkastara.

Óréttlátt í garð farts að segja að hann hafi átt þátt í þessu. Því ef hann átti þátt í þessu, þá áttum við alveg jafn mikinn þátt í þessu þegar við keyptum gjaldeyrir þegar við fórum til Benedorm :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 11:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Thórdur.. thad er ekki verid ad lasta Svein á neinn hátt,, ekki gera úlfalda úr mýflugu.. ég er ad missa mitt starf ,, Sveinn reddar sér ,, ég líka
´´Eg hef upplifad magnada BÍLATENGDA atburdi undanfarin ár,,,

Thad er samt skop samanborid vid thad sem Sveinn er búinn ad upplifa í gegnum starf sitt,,

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 12:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
bimmer wrote:
Nokkur góð innlegg komin.

Það er hrikalegt að þeir sem síst mega við því eru að tapa stórum hluta
eigna sinna - aldraðir sem hafa lagt fyrir til elliáranna og eru nú að
tapa því að mestu eða öllu.

Svo þeir sem voru forsjálir og lögðu til hliðar í sparnað eru jafnvel líka
að tapa því í helv. sjóðum og bréfum sem eru að öllum líkindum
verðlaus.


Ég er algjörlega sammála þér, ég er búinn að sjá eldra fólk sem er mjög tengt mér tapa ansi háum fjárhæðum. Ég get þó huggað sjálfan mig , sem tapaði þó nokkru fé að ég á þó framtíðina fyrir mér og get bara byrjað upp á nýjan leik.

Maður getur ekki ímyndað sér að vera nálægt ellilífeyrisaldri og orðinn rúinn að skinni.

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 12:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Posts: 3733
Location: 108
Sammála Gunnari!

Hrikalega feginn að vera hvorki búinn að koma mér upp fjölskyldu, eða vera að fara að njóta síðustu áranna með ævisparnaðinum sem að ekki er til lengur!

Hræðilegt ástand, en ágætt að vera á byrjunarreit þegar stormurinn geysar, og vinna sig upp frá núlli.

_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 12:41 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
98.OKT wrote:

Mér finnst samt eitt öfugsnúið við þetta sem þú ert að segja, þó að fart sé vinur þinn að þá er nokkuð augljóst að hann er einn af þeim sem hefur verið á þessu peningafylleríi eins og þessir menn sem þú ert búinn að vera að gagnrýna...
Nú er ég alls ekki að gagnrýna hann né setja neitt útá það sem hann hefur verið að gera, enda hefði ég eflaust gert það sama ef ég hefði verið í hans sporum, þ.e.a.s. eitt mörgum milljónum í bílaleik eins og M3 og M5 bílarnir hans eru.....
þeir hinir sem þú ert að tala um eru einnig fjölskyldumenn og vildu bara hafa það gott og leika sér eins og Fart og fleirri................


Ég ætla ekki að fara nánar út í mál Farts, en það er algjör óþarfi að sparka í liggjandi mann. Burtséð frá því hvað mér og öðrum finnst um þetta, þá er ekki góð taktík á þessum punkti að mér finnst, að nafngreina einhvern.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 11. Oct 2008 12:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
þessi ummæli um svein fart eru með þeim ósmekklegri sem ég hef séð hérna, þessi M5 hans kostar eflaust minna þarna úti en margir af þessum bílum sem við erum á hérna heima, og hann eflaust með margföld laun okkar flestra hérna,

að segja þetta sona um einn almennilegasta og málefnalegasta spjallarann okkar hérna er með öllu óásættanlegt og dónalegt,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 55, 56, 57, 58, 59, 60, 61 ... 246  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 21 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group