Ég hef nú ekki sagt mikið um þessi mál lengi. En þetta hefur því miður verið yfirvofandi í nokkurn tíma. Þó svo að ég hafi ekki gert mér í hugarlund þvílíkar hamfarir og hafa orðið.
En... nú hefur mikið gerst á einni viku. Þessi vika hefur verið líkt og nokkur ár í venjulegu árferði á Íslandi. Maður hefur séð ýmislegt og upplifað meiri breytingar en nokkurn hefði órað fyrir.
Það er svo margt sem maður hefur séð og augu opnast enn betur. Helst af öllu myndi ég mæla með að taka til viðskiptablaðið síðustu 2 vikurnar og lesa það til að fá heildaryfirsýn yfir það sem hefur gerst. Það er eiginlega eini miðillinn sem hægt hefur verið að treysta, fyrir utan ríkissjónvarpinu blessaða.
Það er skammarlegt hvað eigendur 365 hafa komið fram þar með áróður og "vinaviðtöl" við eigendur. Matað áhorfendur á áróðri en ekki fréttaflutningi af því sem er að gerast í kring. Fyrirsagnir í DV dag eftir dag um hvað Dabbi er vondur. Viðtöl við Jón Ásgeir þar sem spyrillinn er fyrrum undirmaður hans og góður vinur! Hæðst að Davíð með gengisvísitöluna í einhverju gríni þegar þjóðin á um sárt að binda á grafalvarlegu augnabliki.... hvað er í gangi!
Ekki það að Davíð hafi verið að gera góða hluti í "forsætisráðherra" viðtali sínu í vikunni. Hans orð settu Kaupþing á hausinn "med det samme", ekki það að það má vel vera að það hefði rúllað hvort eð er. Bretar urðu náttúrulega brjálaðir daginn eftir, ekki hægt að lá þeim það. En seðlabankastjóri á ekki að gera svona hluti. Þetta ætti að vera brottrekstrarsök, að koma fram í viðtali og segja svona hluti. Maður í hans stöðu talar ekki pólitískt punktur.
Það er samt ferlega fúlt, eins og brandarinn í 24 stundum um daginn með gæjann sem lá á gólfinu ælandi "af hverju er ég með timburmenn, mér var ekki einu sinni boðið í partíið"! 'Við erum búin að vera að borga fyrir saurlifnað annarra í langan tíma með sparnaði okkar. Sem nú er týndur og tröllum gefinn.
Gott og vel, það að missa hlutabréf sín gúddera ég. Það er áhættufjárfesting. En það að lífeyrissparnaður fólks og ævistrit þess á hinum og þessum reikningum, sem höfðu svo til enga áhættu, sé strokað út á engum tíma er ekkert annað en glæpsamlegt. Maður hefur verið teymdur áfram eins og asni í síðustu 10-15 ár og borgað í viðbótarlífeyri, sett pening sinn inn í banka í minnstu áhættu sem völ er á og á einni nóttu er alllt farið.
Hvert fór þetta? Jú, kæru vinir. Þetta fór í það að kaupsýslumenn dagsins í dag, fjármálaspekúlantar mikilir voru að búa til peninga.
Það var ekki nóg að hafa innlán okkar sem erum að reyna að eignast þak yfir höfuðið, með verðtrygginingunni sem gerir það að verkum að maður borgar þrefalt verð fyrir húsið sitt sem maður loksins eignast þegar maður er að komast á eftirlaun (ef maður reiknar dæmið rétt og er skynsamur). Nei, klæðskerasaumuðu kaupsýslumennirnir þurftu meiri peninga og því fóru þeir að sauma saman fléttur. Á eins og tug ára, tókst þeim að búa til afleiður, fléttur og koma því þannig fyrir að fjármálafyrirtæki sköpuðu svo mikinn "hagnað" (út frá sparifé okkar mauranna) að hægt var margfalda verðgildi peninganna okkar.
Það var enginn maður með mönnum nema að vera með, kaupa hlutabréf helst en allavega að fjárfesta í öruggum sjóðum sem uxu og uxu. En bíðum við. Hvar voru og eru stólpar og bakhjarl þessarra fjármuna?
Það sem upp komst núna í vikunni var einfaldlega það að það sem hélt þessu uppi þessum endalausa vexti voru fléttur fjármálafyritækjanna. Bakland fjármagns er enn eins og það var. Sömu gömlu hlutirnir, húsin okkar og afborganir. En af hverju hækkuðu þá hlutabréfin svona mikið og allt var í góðu? Jú, það er búið að vera að mála svo flott og mikið málverk, allir hafa verið svo uppteknir af því að vera með á myndinni að það hefur enginn tekið eftir því að bak við málverkið er ekkert nema sama gamla landslagið.
Skellurinn sem kom núna er því miður leiðréttingin á raunvirði og uppblásnu virði "eigna" í heiminum. Það sem gerir þetta sárast er að þeir sem hafa tekið út mismuninn eru alls ekki þeir sem borga brúsann. Þeir sem hafa tekið út peninginn okkar eru þeir sem hafa verið á "meira en milljón á mánuði" launum hjá öllum fjármagnsstofnunum með árangurstengd laun í þokkabót. Forstöðumennirnir og forstjórarnir sem hafa fengið milljarða... MILLJARÐA af PENINGUM okkar. Ekki uppblásnum hlutabréfspeningum heldur raunverulegra peninga sem við strituðum fyrir í fleiri ár. Þessir peningar okkar hafa eins og þið vitið farið í einkaþotur, einkapartí, veiðferðir, bíla, niðurrif og uppbyggingu húsa og þið vitið hvað. Það voru ekki uppblásnir peningar sem fóru í eyðslu þessa fólks. Ó nei, Það voru peningar okkar. Raunverulegir peningar.
Ef þið hugsið aðeins málið, hvað stendur eftir verk fjármálamanns í kauphöllinni???? Ég skil alveg manninn sem grefur skurð fyrir heitavatnslögnunum. Ég skil gaurana uppi í Kistufelli. Ég skil þetta með þá í varahlutadeildinni í B&L. Eg skil öll þessi störf sem skilja eitthvað eftir sig í lok dagsins, en ég skil ekki það hvernig það réttlætir margfald hærri laun að tala upp gengi hlutabréfa með kaup og sölu. Hvar er framlag slíkra starfa í þágu samfélagsins?
Því miður er því svo komið fyrir núna að mörg okkar hafa tapað miklu í þessu. Samúð mín er með öllum þeim sem hafa misst flest sitt og eiga erfitt um hver mánaðarmót til að ná endum saman. Reiði mín og særð réttlætiskennd er samt meira tileinkuð fólki líkt og mér, sem spilaði ekki rassinn úr buxunum, en er samt búið að tapa á þessu án þess að hafa tekið þátt í fylleríinu. Hvers á maður að gjalda að þurfa að þola hrun samfélagsins þegar maður hefur bara verið að byggja upp. Láta taka af sér peninga á "örruggum" peningabréfum og auknum lífeyrissparnaði.
Ég segi bara: Skammist ykkar þið sem hafið verið að njóta lífsíns á margfaldri lúxuseyðslu á kostnað okkar hinna mauranna. Ég vona að þið sjáið skömm ykkar í því hvernig er komið fyrir okkur öllum. Þið fenguð þó fylleríið, við fáum timburmennina ykkar líka en ekkert fyllerí!
En svona í lokin þá vil ég nú bara segja að þetta er ekki skrifað í reiði. Ég er í svo margfalt betri stöðu en margir og hef ekki yfir neinu að kvarta miðað við marga. Ég þarf ekki að hafa áhyggjur á meðan ég hef vinnu. Ég hef að vísu lækkað í launum um 35% vegna samdráttar en ég held þó vinnunni .... ennþá! Ég er ekki í uppnámi eins og margir eru í dag. Það er ekkert grín að hafa verið í góðri vinnu hjá fjármálafyritæki fyrir viku með góð laun og þurfa að leita sér að vinnu í dag í þessum geira! Ég óska öllum þeim sem hafa misst vinnuna alls hins besta. Það er ömurlegt að vera atvinnulaus og hafa áhyggjur af fjármálum.
Þetta mun verða erfitt fyrir marga, það er víst. En við verðum að horfa fram á veginn og við Íslendingar erum í góðri stöðu til að ná hlutunum upp aftur fljótt. Við höfum útflutning og ferðaiðnað og þetta muna ná okkur á strik eftir 2 ár eða svo.
P.S., ég held þetta sé lengsta grein mín hingað til
