Schulii wrote:Þetta er einfaldlega ekki rétti tíminn til að fara að velta steinum. Það mun gefast nægur tími til þess seinna. Ef þú og aðrir þínir líkar vilja setja stein í götu þeirra sem eru að reyna að tryggja lágmarksjafnvægi þá er það víst svo að þið megið það en ég hef ákveðna skoðun á svoleiðis fólki sem notar þessa tíma til þess.
Spurningin var hvort fjármálaeftirlitið hefði ekki brugðist og hvort þeir hefðu ekki átt að grípa inní fyrr með þessa Icesave banka ef ég skildi hann rétt. Hvað var svona mikilvægt að kryfja það mál núna?
Burtséð frá því að fjármálaeftirlt þess lands sem hýsir banka innan EES er ábyrgt fyrir þeirri starfsemi sem þeir stunda þar eins og þeir hafa sagt áður.
Ó. Er Gordon Brown bara ruglaður þá?
Það er ekki að ástæðulausu að hann sé að kæra íslenska ríkið.
Í guðana bænum, ekki hæla þessari "stjórn" sem ríkir hér í landi.

