icesave - Já / Nei

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Eigum við að samþykkja núverandi samning

28
19%
Nei
118
81%
 
Total votes : 146

Re: icesave - Já / Nei

Postby jeppakall » Fri 08. Apr 2011 15:46

Mér finnst meirihluti fólks segja nei útfrá röngum forsendum og engu áhættumati, eins og þetta sé win win dæmi að segja nei!
jeppakall
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 292
Joined: Thu 13. Jul 2006 12:08

Re: icesave - Já / Nei

Postby ValliFudd » Fri 08. Apr 2011 15:53

jeppakall wrote:Mér finnst meirihluti fólks segja nei útfrá röngum forsendum og engu áhættumati, eins og þetta sé win win dæmi að segja nei!

Eins og já sé einhver lausn við þessu vandamáli?
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: icesave - Já / Nei

Postby SteiniDJ » Fri 08. Apr 2011 15:59

Að mínu mati er þetta besta lýsingin á Já/Nei:

Já: Við vitum hvað mun gerast og það verður slæmt.
Nei: Við vitum ekki hvað mun gerast, og það verður sennilegast slæmt.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: icesave - Já / Nei

Postby rockstone » Fri 08. Apr 2011 16:09

já menn: Halda margir að þeir komast upp með að borga um 32 milljarða, en ef gjaldeyrishöftin verða dæmd ólögleg, sem að mati Reimars Péturssonar hæstaréttarlögmanns er líklegt, þá margfaldast Icesave skuldin og ríkið lendir í greiðsluþroti.
Og mikil hætta ef að styrking krónunnar breytist.
Já, færir Bretum aðfærarhæf veð á allar auðlindir
User avatar
rockstone
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5217
Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Location: HérogÞarogAllstaðar

Re: icesave - Já / Nei

Postby HPH » Fri 08. Apr 2011 17:11

Ég er búinn að kjósa og ég skilaði auðu vegna þess að ég ætla mér að búa erlendis í framtíðinni.
Og líka vegna þessi sama hver vinnur JÁ eða NEI og allt fer til anskotans þá get ég sagt ég kaus þetta ekki yfir mig ég er "stikk free."

En svo er eitt ég hef verið svona pæla í hvernig típur þetta eru sem segja Já og hverjar það eru sem segja nei.
Svakalega fynst mér Já liðið vera annað hvort mogga bloggarar eða fólk í samfylkinguni :lol:
E46 330ix touring.
BMW er lífstíll. Við erum 10árum á undan öllum öðrum.
User avatar
HPH
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3209
Joined: Sun 04. Jan 2004 15:36
Location: inn í bílnum þínum.

Re: icesave - Já / Nei

Postby UnnarÓ » Fri 08. Apr 2011 17:16

rockstone wrote:Já, færir Bretum aðfærarhæf veð á allar auðlindir

Þetta er einfaldlega ekki rétt, það er ákvæði í samningnum þar sem tekið er fram að þessar auðlindir eru ekki aðfararhæfar.
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Re: icesave - Já / Nei

Postby rockstone » Fri 08. Apr 2011 17:23

UnnarÓ wrote:
rockstone wrote:Já, færir Bretum aðfærarhæf veð á allar auðlindir

Þetta er einfaldlega ekki rétt, það er ákvæði í samningnum þar sem tekið er fram að þessar auðlindir eru ekki aðfararhæfar.


http://www.advice.is/?p=922
User avatar
rockstone
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5217
Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Location: HérogÞarogAllstaðar

Re: icesave - Já / Nei

Postby UnnarÓ » Fri 08. Apr 2011 17:53

rockstone wrote:
UnnarÓ wrote:
rockstone wrote:Já, færir Bretum aðfærarhæf veð á allar auðlindir

Þetta er einfaldlega ekki rétt, það er ákvæði í samningnum þar sem tekið er fram að þessar auðlindir eru ekki aðfararhæfar.


http://www.advice.is/?p=922

Í núverandi samningi, eru þessar klausur inni um fyrirvara á því sem er aðfararhæft, auðlindir okkar sem veðið er í eru þar á meðal.
Ég myndi miklu frekar hafa áhyggjur af þessum auðlindum ef dómsmálið skyldi tapast og Ísland dæmt greiðsluskylt því þá væru þessir fyrirvarar ekki því það væri enginn samningur með greiðsluskilmálum til staðar!
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Re: icesave - Já / Nei

Postby SiggiGS » Fri 08. Apr 2011 18:14

SteiniDJ wrote:Ef lýðræði væri eins og SiggiGS myndi vilja hafa það, þá væri ekkert lýðræði.

Og hvernig vil ég hafa lýðræði?
UnnarÓ wrote:
SiggiGS wrote:Einföldustu rökin eru: Maður greiðir ekki skuldir sem manni er ekki skylt að greiða!
Og okkur ber ekki lagaleg skylda til að greiða þetta*, "fuck" siðferði í þessu tilfelli.

Málið er einmitt það að við vitum ekki ennþá hvort okkur beri lagaleg skylda til þess að greiða þetta og það verður MJÖG dýrt að komast að því.

SiggiGS wrote:Ef að bróðir þinn fær lánaðann pening frá X, en getur svo ekki staðið við skuldina/neitar að greiða hana, má þá X koma til þín og innheimta af þér þó að skuldin komi þér "ekkert" við*?

*(Verður að koma í ljós hvernig dómstólar túlka þetta)

Það er ekkert hægt að einfalda þetta mál með einhverri svona samlíkingu.

Hvernig veistu hvort það verður "MJÖG dýrt" að komast að því? Það er bara alls ekkert gefið.

Og það er einmitt mjög sniðugt að úskýra þetta mál með svona einföldum samlíkingum, jafnvel þó að þér finnist þessi ekki góð, því það eru alls ekki allir, reyndar fæstir, sem skilja/nenna að lesa þennan þunga texta og þessar "flóknu" ástæður fyrir já/nei þó að "ég" og "þú"(as in einhverjir nokkrir) nennum því.. ég er ekki að segja að þessi eina samlíking útskýri icesave 100%, enda er það ekki hægt
BMW Z3 '98
User avatar
SiggiGS
Kassabílstjóri
 
Posts: 112
Joined: Sat 27. Feb 2010 16:05

Re: icesave - Já / Nei

Postby SteiniDJ » Fri 08. Apr 2011 18:23

Að aðeins hinn upplýsti maður má taka þátt í því, en ekki væri það mikið lýðræði nema að hluta sem er sama sem ekkert. Hvernig yrði það dæmt hvort þú sért nægilega upplýstur til þess að taka þátt í þessari kosningu? Lítið próf? Munnlegt eða skriflegt? Námsferill eða starfsstétt? Ef svo væri, þá myndu kosningar aldrei geta átt sér stað og landið tvístrast við myndun stéttaskiptingar sem ekki hefur verið til hér á landi í næstum eitt hundrað ár.

Sjálfsagt væri það frábært ef allir væru upplýstir, en veistu ... það er ekki að fara gerast. Við reynum að leysa þetta með því að setja á þing "upplýsta" einstaklinga sem eiga að taka ákvarðanir fyrir okkur, en þeirra dómur klúðraðist og var þetta sett í hendurnar á þeim sem þekkja málið frá vissu sjónarhorni, hvort sem það er hlutlaust eða fyllt af ofsa.

Annaðhvort fá allir sem hafa aldur til að taka þátt í þessu, eða enginn. Annars er þetta eitthvað allt annað en lýðræði.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: icesave - Já / Nei

Postby SiggiGS » Fri 08. Apr 2011 18:32

SteiniDJ wrote:Að aðeins hinn upplýsti maður má taka þátt í því, en ekki væri það mikið lýðræði nema að hluta sem er sama sem ekkert. Hvernig yrði það dæmt hvort þú sért nægilega upplýstur til þess að taka þátt í þessari kosningu? Lítið próf? Munnlegt eða skriflegt? Námsferill eða starfsstétt? Ef svo væri, þá myndu kosningar aldrei geta átt sér stað og landið tvístrast við myndun stéttaskiptingar sem ekki hefur verið til hér á landi í næstum eitt hundrað ár.

Sjálfsagt væri það frábært ef allir væru upplýstir, en veistu ... það er ekki að fara gerast. Við reynum að leysa þetta með því að setja á þing "upplýsta" einstaklinga sem eiga að taka ákvarðanir fyrir okkur, en þeirra dómur klúðraðist og var þetta sett í hendurnar á þeim sem þekkja málið frá vissu sjónarhorni, hvort sem það er hlutlaust eða fyllt af ofsa.

Annaðhvort fá allir sem hafa aldur til að taka þátt í þessu, eða enginn. Annars er þetta eitthvað allt annað en lýðræði.

Ég er ekki að mælast til þess að sumu fólki sé bannað að kjósa, enda er það ekki hægt.
Ég er einungis að vekja athygli á því að fólk ætti annað hvort að kynna sér málið nægilega vel, eða sleppa því að kjósa/skila auðu.

Ekki bara segja nei því ég vill ekki borga eða segja já því ég nenni ekki að hafa þetta í umræðunni lengur(eða hver sem ástæðan gæti verið fyrir já/nei)

En eins og vanalega er þér velkomið að lesa hvað sem þú vilt í skrif, hvort sem það eru mín eða einhvers annars ;)
BMW Z3 '98
User avatar
SiggiGS
Kassabílstjóri
 
Posts: 112
Joined: Sat 27. Feb 2010 16:05

Re: icesave - Já / Nei

Postby SteiniDJ » Fri 08. Apr 2011 18:41

Það sem ég las varst þú að segja að fólk ætti að kynna sér þetta eða sleppa því að kjósa. Það sem ég segi er að það er óraunhæft að biðja um það, ómögulegt í framkvæmd og ekki sanngjarnt eða lýðræðislegt. En hverjum er auðvitað frjálst að hafa sínar eigin skoðanir.

Það sem þarf hingað er hnitmiðuð og létt fræðsla um kosti og galla þess að segja já eða nei, frá hlutlausu sjónarmiði. En ég held að þeir sem eru í þeirri stöðu að geta boðið upp á slíka fræðslu (þ.e. hafa fjármagn og getu til þess að koma þessu frá sér) eru allt nema hlutlausir.

Annars hefur umræða um þetta mál verið svo mikil síðan allt hrundi að þeir sem þekkja EKKERT um málið eru ekki á hverju strái í dag. Spurningin er hvort sú umræða hafi kennt þeim nógu mikið til að þeir geti tekið rökstudda ákvörðun um hvort eigi að segja já eða nei.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: icesave - Já / Nei

Postby UnnarÓ » Fri 08. Apr 2011 18:43

SiggiGS wrote:Hvernig veistu hvort það verður "MJÖG dýrt" að komast að því? Það er bara alls ekkert gefið.

Þessi ár meðan dómsmálið verður í gangi verður áframhaldandi stöðnun, þannig við erum að missa af tækifæri til hagvaxtar sem er virkilega dýrt að missa af.

SiggiGS wrote:Og það er einmitt mjög sniðugt að úskýra þetta mál með svona einföldum samlíkingum, jafnvel þó að þér finnist þessi ekki góð, því það eru alls ekki allir, reyndar fæstir, sem skilja/nenna að lesa þennan þunga texta og þessar "flóknu" ástæður fyrir já/nei þó að "ég" og "þú"(as in einhverjir nokkrir) nennum því.. ég er ekki að segja að þessi eina samlíking útskýri icesave 100%, enda er það ekki hægt

Þessi samlíking er bara svo mikil einföldun, málið snýst ekkert lengur um það hvort fólki finnist sanngjarnt eða ekki að borga þetta, þetta snýst um að lágmarka skaðann.
Segja nei og taka þá mikla áhættu með möguleika á litlum gróða/gígantísku tapi, eða þá segja já og velja þá leið sem er mun áhættuminni.
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Re: icesave - Já / Nei

Postby bimmer » Fri 08. Apr 2011 18:47

UnnarÓ wrote:
SiggiGS wrote:Hvernig veistu hvort það verður "MJÖG dýrt" að komast að því? Það er bara alls ekkert gefið.

Þessi ár meðan dómsmálið verður í gangi verður áframhaldandi stöðnun, þannig við erum að missa af tækifæri til hagvaxtar sem er virkilega dýrt að missa af.


Hvernig í ósköpunum geturðu haldið þessu fram?

Hvað er það sem gerist akkurat þegar ICESAVE er samþykkt sem veldur því að
allt fer hér af stað?

Meiri lántökur?????

Bíða fjárfestar í röðum eftir því að ICESAVE fari í farveg???
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: icesave - Já / Nei

Postby UnnarÓ » Fri 08. Apr 2011 18:54

bimmer wrote:
UnnarÓ wrote:
SiggiGS wrote:Hvernig veistu hvort það verður "MJÖG dýrt" að komast að því? Það er bara alls ekkert gefið.

Þessi ár meðan dómsmálið verður í gangi verður áframhaldandi stöðnun, þannig við erum að missa af tækifæri til hagvaxtar sem er virkilega dýrt að missa af.


Hvernig í ósköpunum geturðu haldið þessu fram?

Hvað er það sem gerist akkurat þegar ICESAVE er samþykkt sem veldur því að
allt fer hér af stað?

Meiri lántökur?????

Bíða fjárfestar í röðum eftir því að ICESAVE fari í farveg???

Ég sagði hvergi að allt færi á blússandi ferð um leið og þetta yrði samþykkt, en ég sagði að þarna væri tækifæri. 'Möguleiki á hagvexti' hefði kannski verið betra orðaval hjá mér.
Þar sem það er allavega ekkert að fara að gerast meðan þetta bíður óleyst.
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 30 guests