Hvern á að kjósa?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Hvern á að kjósa?

Poll ended at Sat 25. Apr 2009 09:35

xB - Framsókn
9
6%
xD - Sjálfstæðisflokkur
37
25%
xF - Frjálslyndir
3
2%
xP - Lýðræðishreyfingin
4
3%
xO - Borgarahreyfingin
18
12%
xS - Samfylkingin
21
14%
xV - Vinstri grænir
6
4%
Skila auðu
23
16%
Óákveðinn
26
18%
 
Total votes : 147

Re: Hvern á að kjósa?

Postby saemi » Tue 21. Apr 2009 19:15

Ég kýs Samfylkinguna, EINGÖNGU vegna þess að það er eini flokkurinn sem segist vilja fara strax í EU viðræður.

Ég vil að aðrir en Íslendingar ráði sem mestu hér, ekki erum við að brillera í því allavega :roll:
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Axel Jóhann » Tue 21. Apr 2009 19:27

Skilaði nú bara auðu í dag. Hlakka samt til að sjá hvort það standist eitthvað af þessum kosningaloforðum.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: Hvern á að kjósa?

Postby bimmer » Tue 21. Apr 2009 19:29

saemi wrote:Ég kýs Samfylkinguna, EINGÖNGU vegna þess að það er eini flokkurinn sem segist vilja fara strax í EU viðræður.

Ég vil að aðrir en Íslendingar ráði sem mestu hér, ekki erum við að brillera í því allavega :roll:


Sammála að það verður að fara í viðræður svo að við fáum á hreint
hver díllinn er. Fyrr er ekki hægt að taka afstöðu til þess hvort við
eigum að ganga inn eða ekki......
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Hvern á að kjósa?

Postby bebecar » Tue 21. Apr 2009 19:38

saemi wrote:Ég kýs Samfylkinguna, EINGÖNGU vegna þess að það er eini flokkurinn sem segist vilja fara strax í EU viðræður.

Ég vil að aðrir en Íslendingar ráði sem mestu hér, ekki erum við að brillera í því allavega :roll:


Það virðast margir deila þessari skoðun og kjósa samfylkingu eingöngu út af þessu. Maður hefur samúð með þessu sjónarmiði einfaldlega vegna þess að það er hæpið að hægt sé að kalla Ísland sjálfstæða þjóð, þegar hún er í skuldafjötrum og því kannski alveg eins gott að fara alla leið og gefa frá sér fullveldið.

En samt sem áður, þá vil ég nú berjast fyrir sjálfstæðinu/fullveldinu áfram. Það er MJÖG mikill miskilningur að halda að erlendir pólitíkusar geri hlutina eitthvað betur en Íslenskir og það þarf nú ekki annað en að lesa fréttir daglega til að átta sig á því.

Við erum með lélegt kerfi þar sem pólitíkusar eru tilneyddir til að berjast fyrir kjöri í gegnum flokkakerfi og munu því alltaf verða settir undir aga flokksins ef þeir vilja ná kjöri. Það þarf að brjóta þetta kerfi upp með beinni kosningu einstaklinga sem myndi gera þingmönnum kleift efna 48. grein stjórnarskrárinnar. Með því móti yrðu þingmenn ábyrgir gagnvart kjósendum eingöngu en ekki flokknum og yrðu því ekki að lúta valdi flokksins þó hægt sé að nota flokkinn til að mynda málefnaskrá og stjórnarmeirihluta.

Í EU hafa kjósendur ekki einu sinni bein áhrif á stjórnina.

Þá hafa hér á landi oft verið frábærir stjórnmálamenn og hugsjónamenn við völin síðan lýðveldið var stofnað (og fyrir þann tíma jafnvel enn merkilegri skörungar!) og stundum hafa menn komist eitt skref áfram, jafnvel tvö þó annað slagið sé líka stigið skref aftur. Svoleiðis fólk er bara ekki á þingi núna enda höfum við haft það alltof þægilegt í alltof langan tíma - þetta er alvanalegt "trend" í löndum þar sem hlutirnir hafa rúllað þokkalega vel. En, þegar það er virkilega eitthvað til að berjast fyrir þá getur ýmislegt gerst (sé það reyndar ekki alveg að gerast enn á Íslandi, kannski er þetta ekki orðið nógu slæmt ennþá :? )

En, það er erfitt að andmæla því að það sé skynsamlegt að fara í það minnsta í viðræður.

Að lokum langar mig að minna á Grænland sem er eina landið sem hefur farið úr EU (mér vitandi allavega)...

Vandinn er kannski líka sá að þegar við loksins uppfyllum inngönguskilyrðin (eftir nokkuð mörg ár!) þá þurfum við ekki lengur á inngöngunni að halda. Auk þess þá er bara alls óvíst að það sé einhver eftirspurn eftir okkur í EU. Bæði eru önnur lönd á undan okkur og Tyrkir t.d., sem ólmir vilja komast inn, myndu ekki taka því vel ef Ísland yrði tekið fram yfir þá og ég sé ekki fyrir mér að EU vilji styggja þá t.d. bara til að ná Íslandi inn. Á móti má segja að Ísland inn, geti skapað þrýsting í Noregi sem væri kannski eitthvað sem hugnast EU...
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Hvern á að kjósa?

Postby grettir » Tue 21. Apr 2009 20:07

Jónas wrote:
grettir wrote:
Jónas wrote:... Og fjármagnsskattur REFSAR þeim sem hafa verið skynsamir undanfarin ár og SPARAÐ.

Það er súrt að borga skatta, en tekjur eru bara tekjur, hvort sem þær heita launatekjur eða fjármagnstekjur.


Ef fjármagnsskattur fer í 40% þá minnkar sparnaðarhneigð mikið.

Hvað gerist þá? Hvernig eiga bankarnir að lána pening?

Bankarnir þurfa að taka við innlánum til að veita útlán

Ef þú sparar ekki peninginn, þá eyðirðu honum. Sá sem tekur við honum leggur hann inn. Fyrir rest endar hann í bankanum :)

Ég er ekki að segja að það eigi að skattleggja vaxtatekjur í botn, ég er bara að benda á hversu ósanngjarnt það er að hafa mismunandi skattþrep fyrir mismunandi tekjur. Alveg eins og hátekjuskattur er ósanngjarn fyrir þá sem hafa háar tekjur, því þeir eru vissulega að leggja sitt til samfélagsins.
Og það má kannski bæta við þetta að af fjármagnstekjum er ekki tekið útsvar, svo sá sem hefur eingöngu fjármagnstekjur er ekki að borga sveitarfélaginu fyrir rekstur grunnskóla, svo eitthvað sé nefnt.

Sjálfstæðisflokknum finnst nefnilega hátekjuskattur svo hrikalega ósanngjarn en hefur lækkað fjármagnstekjuskatt langt niður fyrir tekjuskatt.
Samanber þessa rannsókn hér: http://eyjan.is/blog/2009/04/21/ny-rannsokn-gifurleg-misskipting-tekna-throadist-her-a-arunum-1993-til-2007/
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Bjarkih » Tue 21. Apr 2009 21:59

saemi wrote:Ég kýs Samfylkinguna, EINGÖNGU vegna þess að það er eini flokkurinn sem segist vilja fara strax í EU viðræður.

Ég vil að aðrir en Íslendingar ráði sem mestu hér, ekki erum við að brillera í því allavega :roll:



Sögðu þeir það ekki líka fyrir síðustu kosningar? Allavega virðist samfylkingin tilbúin að gefa þetta eftir til að komast til valda, svona þegar kosningar eru afstaðnar.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Alpina » Tue 21. Apr 2009 22:08

Fullt af reyndu liði þarna ,, og annað efnilegt fólk..

en eins og staðan er þá eru margir sem efast um heilindin,,

Ég er einn af þeim



T.D Bjarni Ben,, og Sigmundur Davið Gunnlaugsson , vel gefnir osfrv, með góðann talanda , en alveg blautir á bak við eyrun .. reynslulitlir og þessháttar

tveir nýkjörnir formenn sinna flokka,,,,,,, og annar ekki einu sinni á þingi :shock:
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Hvern á að kjósa?

Postby lulex » Tue 21. Apr 2009 22:13

Alpina wrote:Fullt af reyndu liði þarna ,, og annað efnilegt fólk..

en eins og staðan er þá eru margir sem efast um heilindin,,

Ég er einn af þeim



T.D Bjarni Ben,, og Sigmundur Davið Gunnlaugsson , vel gefnir osfrv, með góðann talanda , en alveg blautir á bak við eyrun .. reynslulitlir og þessháttar

tveir nýkjörnir formenn sinna flokka,,,,,,, og annar ekki einu sinni á þingi :shock:



og samkvæmt því sem ég heyrði í útvarpinu i dag kemst hann ekki á þing samkvæmt nýjustu könnunum :lol:
BMW 325i
User avatar
lulex
Getawaybílstjóri
 
Posts: 682
Joined: Sun 26. Dec 2004 23:35

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Alpina » Tue 21. Apr 2009 22:24

Það væri unaður ef frammarar myndu floppa aftur......... með formann í RVIK,, til þings og fail :roll: :roll: :roll: :roll:
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Bjarkih » Tue 21. Apr 2009 22:33

Alpina wrote:Það væri unaður ef frammarar myndu floppa aftur......... með formann í RVIK,, til þings og fail :roll: :roll: :roll: :roll:



x2
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Re: Hvern á að kjósa?

Postby saemi » Tue 21. Apr 2009 23:19

Bjarkih wrote:
Sögðu þeir það ekki líka fyrir síðustu kosningar? Allavega virðist samfylkingin tilbúin að gefa þetta eftir til að komast til valda, svona þegar kosningar eru afstaðnar.


Það er reyndar það sem ég er mjög hræddur um að gerist. Að þessu verði bara slegið á frest. En..... ég tel þetta vera illskást eins og staðan er í dag. Maður verður hvort eð er tekinn í *assga***!
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Giz » Tue 21. Apr 2009 23:34

bebecar wrote:
saemi wrote:Ég kýs Samfylkinguna, EINGÖNGU vegna þess að það er eini flokkurinn sem segist vilja fara strax í EU viðræður.

Ég vil að aðrir en Íslendingar ráði sem mestu hér, ekki erum við að brillera í því allavega :roll:


Það virðast margir deila þessari skoðun og kjósa samfylkingu eingöngu út af þessu. Maður hefur samúð með þessu sjónarmiði einfaldlega vegna þess að það er hæpið að hægt sé að kalla Ísland sjálfstæða þjóð, þegar hún er í skuldafjötrum og því kannski alveg eins gott að fara alla leið og gefa frá sér fullveldið.

En samt sem áður, þá vil ég nú berjast fyrir sjálfstæðinu/fullveldinu áfram. Það er MJÖG mikill miskilningur að halda að erlendir pólitíkusar geri hlutina eitthvað betur en Íslenskir og það þarf nú ekki annað en að lesa fréttir daglega til að átta sig á því.

Við erum með lélegt kerfi þar sem pólitíkusar eru tilneyddir til að berjast fyrir kjöri í gegnum flokkakerfi og munu því alltaf verða settir undir aga flokksins ef þeir vilja ná kjöri. Það þarf að brjóta þetta kerfi upp með beinni kosningu einstaklinga sem myndi gera þingmönnum kleift efna 48. grein stjórnarskrárinnar. Með því móti yrðu þingmenn ábyrgir gagnvart kjósendum eingöngu en ekki flokknum og yrðu því ekki að lúta valdi flokksins þó hægt sé að nota flokkinn til að mynda málefnaskrá og stjórnarmeirihluta.

Í EU hafa kjósendur ekki einu sinni bein áhrif á stjórnina.

Þá hafa hér á landi oft verið frábærir stjórnmálamenn og hugsjónamenn við völin síðan lýðveldið var stofnað (og fyrir þann tíma jafnvel enn merkilegri skörungar!) og stundum hafa menn komist eitt skref áfram, jafnvel tvö þó annað slagið sé líka stigið skref aftur. Svoleiðis fólk er bara ekki á þingi núna enda höfum við haft það alltof þægilegt í alltof langan tíma - þetta er alvanalegt "trend" í löndum þar sem hlutirnir hafa rúllað þokkalega vel. En, þegar það er virkilega eitthvað til að berjast fyrir þá getur ýmislegt gerst (sé það reyndar ekki alveg að gerast enn á Íslandi, kannski er þetta ekki orðið nógu slæmt ennþá :? )

En, það er erfitt að andmæla því að það sé skynsamlegt að fara í það minnsta í viðræður.

Að lokum langar mig að minna á Grænland sem er eina landið sem hefur farið úr EU (mér vitandi allavega)...

Vandinn er kannski líka sá að þegar við loksins uppfyllum inngönguskilyrðin (eftir nokkuð mörg ár!) þá þurfum við ekki lengur á inngöngunni að halda. Auk þess þá er bara alls óvíst að það sé einhver eftirspurn eftir okkur í EU. Bæði eru önnur lönd á undan okkur og Tyrkir t.d., sem ólmir vilja komast inn, myndu ekki taka því vel ef Ísland yrði tekið fram yfir þá og ég sé ekki fyrir mér að EU vilji styggja þá t.d. bara til að ná Íslandi inn. Á móti má segja að Ísland inn, geti skapað þrýsting í Noregi sem væri kannski eitthvað sem hugnast EU...


Þetta rusl kerfi fer í taugarnar á mér, var búinn að skrifa ýtarlegt svar en nenni því ekki aftur og renni því í gegnum þetta á handahlaupum.

Fyrst og fremst...

Ingvar, ég hélt nú að þú værir betur upplýstur en þetta, sbr. komment þitt um fullveldi osfr.

Annað er að Grænland, sagði sig að vísu úr EU, eða EC eins og mig minnir það hafi heitið á þeim tíma, en það er líka ansi mikil hippokrasía bak við það. Grænlendingar eru EU borgarar með DK passport, hafandi "sagt" sig úr EU! Reyndar minnir mig að Grænland sé flokkað sem e.k. overseas territory í EU bókum, en er engu að síður ekki fullvalda ríki, og þ.a.l. ekki hægt að segja að þeir hafi sagt sig úr einu né neinu verandi ekki fullvalda ríki. Enda undir Danmörku.

Vandinn er kannski líka sá að þegar við loksins uppfyllum inngönguskilyrðin (eftir nokkuð mörg ár!) þá þurfum við ekki lengur á inngöngunni að halda. Auk þess þá er bara alls óvíst að það sé einhver eftirspurn eftir okkur í EU. Bæði eru önnur lönd á undan okkur og Tyrkir t.d., sem ólmir vilja komast inn, myndu ekki taka því vel ef Ísland yrði tekið fram yfir þá og ég sé ekki fyrir mér að EU vilji styggja þá t.d. bara til að ná Íslandi inn. Á móti má segja að Ísland inn, geti skapað þrýsting í Noregi sem væri kannski eitthvað sem hugnast EU...


Þetta finnst mér ekki standast neina skoðun, nema þá kannski að Ísland uppfylli inngönguskilyrði eftir mörg ár. Mýmörg dæmi sanna að biðröðin per se skiptir engu máli, og allra síst staða Tyrkja í henni! Og einnig finnst mér ansi mikið overstatement að segja að Tyrkir vilji ólmir komast inn.

Ég hef unnið í þessum geira í mörg ár og mörgum sviðum og í mörgum hringjum. Þannig að ég þykist vita um hvað ég er að tala á einhvern hátt allavega.

Nenni ekki meiru, en skal glaður fara yfir þetta út í hið óendanlega yfir bjór(um) á Ring eftir nokkra daga!

G
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

Re: Hvern á að kjósa?

Postby Zed III » Wed 22. Apr 2009 06:28

Jónas wrote:
grettir wrote:
Jónas wrote:... Og fjármagnsskattur REFSAR þeim sem hafa verið skynsamir undanfarin ár og SPARAÐ.

Það er súrt að borga skatta, en tekjur eru bara tekjur, hvort sem þær heita launatekjur eða fjármagnstekjur.


Ef fjármagnsskattur fer í 40% þá minnkar sparnaðarhneigð mikið.

Hvað gerist þá? Hvernig eiga bankarnir að lána pening?

Bankarnir þurfa að taka við innlánum til að veita útlán


Hann á ekki að fara í 40% heldur 14% skv tillögum. Það er hækkun um fjögur prósentustig (4%) eða 40% þegar þetta verður reiknað í krónum.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Hvern á að kjósa?

Postby bebecar » Wed 22. Apr 2009 06:36

Við erum að tala um tvær hliðar á sama peningnum, alþjóðatengslahliðina og EU hliðina hinsvegar.

Dæmið með Grænland skiptir engu máli - var meira nefnt til gamans en auðvitað er það rétt að Grænland hefur ekki fullveldi og ég held að engin velkist nú í vafa um það.

Með fullveldi þá veit ég ekki hvað þú ert að vísa í? Ertu að vísa í að ríki í EU afsali ekki fullveldi? Eða ertu að agnúast út í það að ég setti sjálfstæði/fullveldi innan skástriksins? Það var bara vegna þess að ég mér finnst hvorutveggja vera þess virði að berjast fyrir því (ekki vegna þess að ég sé að blanda því saman!!!). Ísland var auðvitað fullveldi áður en það varð sjálfsætt og er það hamrað rækilega inn í hausin á manni í grunnskóla.

Þannig að þú hlýtur að vera að vísa í fullveldið - það er í það minnsta deilt um það hvort að ríki afsali sér ekki "hluta fullveldis" (sem í sjálfu sér er furðulegt orðalag því hvað er fullt ef það er bara að hluta?) við inngöngu í EU.

Gísli, þú ættir að vita betur en halda svo að ég fari að rugla þessu saman.

Ég er ekki neinn sérfræðingur í EU og veit að þú ert mér miklu framar þar - fínt að fá ábendingar með það (eins og með Grænland, sem þó var ekki meginpunkturinn).

En með Tyrkina þá fékk ég það nú bara beint í æð í viðtali við Murat Belge (Tyrkneskur mannréttindafrömuður) og Irene Khan (forstöðukona Amnesty í Tyrklandi) að það yrði allt vitlaust (á meðal stuðningsmanna EU) í Tyrklandi ef það kæmi ekki einhver hreyfing á þeirra mál eða aðrir teknir fram yfir þá. Skiptir þá litlu hvort Ísland er á undan eða eitthvað annað land (þeir virtust þó ekki láta króatíu skipta sig máli hvað þetta varðar). Það skiptir ekki heldur hvort það er réttmætt einu sinni því þeir geta, eins og Íslendingar, líka brugðist við á röngum forsendum.

Það má vel vera að það sé overstatement að tyrkir vilji ólmir komast inn - en þeir eru búnir að reyna ansi lengi "officially recognised as a candidate for full membership on 12 December 1999".

En ég vil síður en svo skylmast við þig í EU fræðum, því það er miklu nær að þú sjáir um þá hlið því á þeim bænum leita ég til þín.

EN með IR hliðina þá hef ég nú ýmislegt til málanna að leggja en þar eins og annarsstaðar eru margar fylkingar og margar skoðanir á því sem í fyrstu virðist vera fremur einfalt (einsog þrætan um fullveldi og EU).
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: Hvern á að kjósa?

Postby fart » Wed 22. Apr 2009 07:15

Ísland og EU?

Ísland er eins og Jeppi fastur uppi á jökli. Annaðhvort að hringja í björgunarsveitina (EU) og láta kippa í eða bíða þangað til að jökullinn bráðnar.

hvort viljið þið?
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 42 guests