Wolf wrote:GVT er skráð 207 stig hjá Seðlabankanum, en 230 stig hjá Glitni... WTF,,, ég vona að dagur þeirra sem voru að bíða eftir að botninum yrði endanlega náð sé runninn upp.

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
Einsii wrote:En ég veit svo lítið.. Hvað gerist eigilega ef það kemur til "Þjóðargjaldþrots" ?
koma innheimtumenn að utan með kúbein og plokka upp húsin í landinu ?
Nei ok, einhver sem getur útskýrt hvað gerist?
Zyklus wrote:Þetta var skynsamleg ákvörðun hjá Geir að láta bankana róa.
Það væri algjört glapræði að ríkið færi að taka 1000-2000 milljarða króna lán til að bjarga bönkunum og taka þá áhættu að þessir peningar fengjust aldrei aftur greiddir. Þá sæti þjóðin með þessa skuld á bakinu næstu áratugina.
Þetta var líklegast það besta sem Geir gat gert í þeirri stöðu sem upp er kominn. Almenningur verður að ganga fyrir hagsmunum bankanna.
200 wrote:Einsii wrote:En ég veit svo lítið.. Hvað gerist eigilega ef það kemur til "Þjóðargjaldþrots" ?
koma innheimtumenn að utan með kúbein og plokka upp húsin í landinu ?
Nei ok, einhver sem getur útskýrt hvað gerist?
það kemur ekki til þjóðargjaldþrots..
Ríkisstjórnin ætlar nefnilega ekki að koma bönkunum til bjargar,
fari banki í þrot, tekur skiptastjóri við búinu, innheimtir skuldir og gerir pakkann upp. Spurning með allar þessar þúsundir íbúða sem viðkomandi banki á, ég myndi segja fólki að neita fara úr íbúðinni, gaman að sjá þá reyna bera út 5000 manns

Users browsing this forum: Google [Bot] and 10 guests