arnibjorn wrote:doddi1 wrote:ég er nefnilega ekki að nenna þessu lúpínudæmi, það er aðeins erfiðara að fá varahluti í Z3 heldur en hinar bmw dósirnar...
þarf ég tryggingaviðauka eða eitthvað svoleiðis?
ef ég klessi illa, er ég þá ekki tryggður?
Ég veit ekki alveg á hvaða gullmola þú þykist vera á...
Onno hefur verið að spóla uppá braut og það er ekkert svo langt síðan að 16milljónkrónu(eðahvaðsemþettakostarnúna) M6 var að refsa feitt uppá braut!
Þú þarft ekki tryggingarviðauka til að sýna okkur en við mælum með því að menn tali við sitt tryggingarfélag og fái að vita hver skoðun þeirra er á málinu.
En ef þú klessir bílinn þinn þá er hann ekki tryggður og þú færð ekkert bætt.
djöfulsins skítamóral eru allir með hérna...
ég þykist ekki vera á neinum gullmola þó ég nenni ekki að vera með klesstan bíl...
þó að þið getið verið að djöflast á þessum e30 dósum eins og vitlausir menn þá hef ég engan sérstakan áhuga á því að vera að slíta kúplingu og fokka upp bílnum mínum á einhvern hátt... ég skít heldur ekki peningum eins og þessir gæar sem eru að mæta þarna á einhverjum 50miljón króna bílum.
og nei ég er ekki að leita mér að afsökun fyrir því að mæta ekki með því að segjast rekast í. þó að ég hafi keyrt þangað uppeftir og rak mig nokkrum sinnum í einhverja huge steina.
ég rekst í hverja einustu hraðahindrun á landinu (nema ég keyri á ská yfir hana), ég get ekki farið í sjálfvirkar þvottastöðvar, ég get ekki farið á hvaða skoðunarstöð sem er af því að rúllugaurarnir eru of lágir, ég get ekki farið á tveggja pósta lyftur og ég get ekki farið á hvaða verkstæði sem er... ég get ekki keyrt upp á planið hjá smáralind af því að ég rekst í kantinn þegar maður er kominn efst á rampinn, ég get ekki keyrt í kjallarann af því framstuðarinn rekst niður, ég gæti haldið svona áfram í allan dag....
ég held að ég sé kominn með ágætis hugmynd um hversu lár bíllin minn er, það sést ekki á þessarri mynd í Avatarnum. tala nú ekki um þegar ég er með eitthvað í skottinu eða farþega með mér.
p.s.
ég spóla ekki á plönum með staura, ég nenni nefnilega ekki að vera með klesstan bíl...
ÞAÐ ER ÞESS VEGNA SEM ÉG HEF EKKI FARIÐ UPP Á BRAUT, ÉG NENNI EKKI AÐ HAFA KLESSTAN BÍL... ekki af því að ég rek mig í grjót á leiðinni þangað.
það er betra að spyrja og vera heimskur í eina mínútu en að þegja og vera heimskur alla ævi
óstaðsettur í bíl