Ég ætlaði bara að telja upp svona fyrir mig og sjá hvort ég gæti það.
OK.
Þetta á að vera í réttri röð.
Mercedes Benz 260E 1987 - Fyrsti bíll, hættulegt tímabil.
Daewoo Lanos 1.6 1999 - Hurricane típan voða mikil dós.
Dodge Stratus R/T 3.0 2001 - fínn bíll 200hö leiðinlegt að vera með framdrif.
Mercedes Benz 200dE 1993 - Gersamlega dáinn bíll, ekinn vel yfir milljón. Hámarkshraði var 110 niður brekku, upp kamba var max 55km/h
Nissan Sunny 1.6 1993 - gaf kellingunni hann, og bræddi svo óvart úr honum.
Mazda 323 1.6 1991 - gaf kellingunni hann, eyðilagði svo óvart skiptinguna.
BMW E30 318i 1991 - kellingin átti reyndar þennan en ég keyrði hann alltaf og klessti hann svo óvart.
Nissan Maxima 2.0 Qx 1998 - fínasti bíll þæginlegur krúser.
Mitsubishi Eclipse RS 2.0 1996 - var með ónýta vél þegar ég fékk hann og eftir langa leit seldi ég hann þannig.
Mazda 626 2.0 1997 - BOOOORING
Subaru Impreza WRX 2.0 2004 - núna erum við að tala saman, var ekinn 13.000 þegar ég fékk hann og alveg hrikalega skemmtilegt tæki.
BMW E46 320d 1999 - fór til spánar og bara varð að kaupa diesel bíl eftir það, tók mig um mánuð að ná í fyrrverandi eiganda til að kaupa hann, átti hann í sirka ár og gerði ekkert nema gott fyrir hann. Hann endaði á gám og er víst kominn aftur á götuna í eigu pólverja.
Subaru Impreza WRX 2.0 2001 - Keypti þennan þegar ég týndi lyklunum af 320d.
Opel Corsa 2001 - ekki spurja.
Dodge Stratus R/T 3.0 2002 - fínn bíll.
BMW E30 316i 1991? - ehm...
BMW E36 318i --> 325i 1993 - Project sem gengur aðeins hægar en maður vill.
BMW E36 325i 1993 - keypti hann og ætlaði að breyta yfir í bsk en seldi svo :/
BMW E34 525 1991 --- Rifinn og vélinn fór í 318i
BMW E39 530i 2001 - Hrikalega góður bíll.

BMW E46 320i 2001 - Á þennan núna, fínn bíll.
Er pottþétt að gleyma einhverju...
Ég nenni ekki að telja upp krossara né fjórhjól sem ég hef átt.