hækkun bensínskatts!

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: hækkun bensínskatts!

Postby Steini B » Thu 28. May 2009 19:40

Engin kreppa hjá mér... :D

Image
User avatar
Steini B
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3836
Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Location: Vík í Mýrdal

Re: hækkun bensínskatts!

Postby IceDev » Fri 29. May 2009 00:22

Áfengisneysla eykst með krepputímum....


Þannig að það er greinilega bullandi kreppa hjá þér :thup:
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Re: hækkun bensínskatts!

Postby Axel Jóhann » Fri 29. May 2009 01:00

Ég tók bensín á F150 áðan og það var 1/4 fullur tankur og að fylla rest kostaði 15,500kr. :thdown:
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: hækkun bensínskatts!

Postby bebecar » Fri 29. May 2009 07:55

Fyndið að sjá gagnrýni á listaelítu - líklega út af tónlistarhúsinu.

Við aðstæður eins og eru í dag er eðlilegast að reyna að halda uppi grunnþjónustu og það mætti vel draga saman seglin í menningargeiranum en í því sambandi má þó nefna að íþróttafélög og tengd starfsemi (sem flokkast varla með grunnþjónustu neitt frekar en menning) er MARGFALT stærri hýt. Annað hvort styður ríkið við bakið á mismunandi afþreyingarþáttum eða sleppir því og lætur notendur um að borga þetta eftir notkun (mínir skattpeningar fara t.d. í að styrkja allar aðrar íþróttir en þær sem ég hef áhuga á að stunda - akstursíþróttir!)

Það er líka dálítið vafasamt að segja upp ríkisstarfsmönnum því yfirleitt er ríkið notað til að draga úr samdráttaráhrifum með því að taka hluta vinnuaflsins til sín. Ríkisstarfsmaður sem fær uppsögn er bara tilflutningur á kostnaði, ríkið borgar jú atvinnuleysisbæturnar líka.

Stjórnin þarf að taka ákvörðun um hvað á að gera, lýsa því fyrir fólki og svo vinna eftir aðgerðaráætlun - þetta er krýsustýring 101 :!:

Vegna erfiðrar stöðu þjóðarbúsins ættu nánast öll plön að miða að því að auka gjaldeyristekjur, fleiri orkufrek fyrirtæki, betri skilyrði fyrir ferðaþjónustu, kvikmyndagerð, skattaívilnanir til fyrirtækja sem eru til í að flytjast hingað o.s.frv. En jafnframt er alveg óendanlega mikilvægt upp á framtíðina að gera að ekki sé skorið niður í menntun (og þarna spilar menningarstarf mjög mikilvægt hlutverk) því af góðu menntunarstigi og gjaldeyrismiðaðri atvinnulífsstefnu koma framtíðartekjurnar til að vinna sig úr krísunni.

En svo má fólk bara ekki gleyma því að það er fullt af löndum í kringum okkur þar sem ástandið er verrar fyrir fólkið í landinu... það er gríðarlega hátt atvinnleysi t.d. á Spáni en það má vel vera að fólki sé atvinnuleysið bærilegra í góðu veðri.

Grasið er ekkert endilega grænna hinu megin - hér í DK voru fyrir næstum tveimur árum síðan 20% fjölskyldna með húsnæðisskuldir umfram eignir. Þið getið ímyndað ykkur hver staðan er í dag (það þorir bara engin að tala um þetta!). Atvinnuleysi eykst mjög hratt og á meðan allt var í lagi tók það samt iðulega um ár að finna vinna, þrátt fyrir lítið atvinnuleysi á danskan mælikvarða.

Ég skil vel að fólk vilji forða sér þegar allt brennur ofan af því. Það er bara skynsamlegt að gera sér hóflega væntingar þegar flutt er og alls ekki fara upp á von og óvon út. Fólk sem lærir erlendis núna safnar sér gríðarlegum skuldum í námslánum þannig að það er eins gott að námið sé vandað.

Og hækkun bensínskatts - auðvitað er það ekki gott. En það þarf að hækka skatta mikið og þetta er skattur sem er pjúra neyslustýring. Það er hægt að hjóla, finna sér metan bíl, nú eða breyta bensínháknum fyrir LPG.

Auk þess, þetta skapar hvað tæpa 3 milljarða í tekjur. Þá eru bara 47 eftir.... you ain't seen nothing yet!

Þetta minnir mig reyndar á annað, hér í DK eru skattar nefnilega svo háir að það er eiginlega ekki hægt að hækka þá mikið meira... hvað gera menn þá til að draga úr neyslu? Meira atvinnuleysi!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: hækkun bensínskatts!

Postby Steini B » Sat 30. May 2009 22:42

IceDev wrote:Áfengisneysla eykst með krepputímum....


Þannig að það er greinilega bullandi kreppa hjá þér :thup:

Uuuu, var að halda upp á afmælið mitt og var með frítt áfengi ;)

En Drykkja mín jókst í febrúar, en ekki útaf kreppunni, heldur útaf drykkjunni minni :lol:
Og útaf því þá hef ég ákveðið að hætta að drekka þegar ég fæ prófið aftur...
User avatar
Steini B
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3836
Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Location: Vík í Mýrdal

Re: hækkun bensínskatts!

Postby Steini B » Sat 30. May 2009 22:49

En annars svona on topic...

Þá finnst mér flott að sjá að bensínið er loksins orðið dýrara en olían, en þannig átti þetta alltaf að vera þegar þungaskatturinn var felldur niður fyrir nokkrum árum...
Ekki það að mér líki hvað þetta er orðið hátt....
User avatar
Steini B
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3836
Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Location: Vík í Mýrdal

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 26 guests