
siggir wrote:Horfði einhver á borgarafundinn áðan? Alveg greinilegt að S og V eru algerlega á öndverðum meiði í evrópumálum.
](./images/smilies/eusa_wall.gif)
Jónas wrote:Ég vona að næsta ríkisstjórn nái ekki að fokka málefnunum of mikið upp næsta árið,,,
Maður er sem betur fer farinn af landi brott eftir ár

gunnar wrote:Jónas wrote:Ég vona að næsta ríkisstjórn nái ekki að fokka málefnunum of mikið upp næsta árið,,,
Maður er sem betur fer farinn af landi brott eftir ár
Fæ það einmitt á tilfinningunni með marga sem eru með manni í skóla að þeir eru bara að bíða eftir að klára námið og svo bara takk, bless og bæ.
Ég er svo sem alveg í sömu pælingum![]()
Býst við að fara erlendis eftir Bs námið.
Jónas wrote:gunnar wrote:Jónas wrote:Ég vona að næsta ríkisstjórn nái ekki að fokka málefnunum of mikið upp næsta árið,,,
Maður er sem betur fer farinn af landi brott eftir ár
Fæ það einmitt á tilfinningunni með marga sem eru með manni í skóla að þeir eru bara að bíða eftir að klára námið og svo bara takk, bless og bæ.
Ég er svo sem alveg í sömu pælingum![]()
Býst við að fara erlendis eftir Bs námið.
Sama hérna megin, í náms-hópnum hérna ætla held ég 15 af 17 að fara erlendis beint eftir nám,, hef heyrt svipaða sögu af öðrum nemendum..
bebecar wrote:Þau verða feit námslánin eftir það maður
Jónas wrote:bebecar wrote:Þau verða feit námslánin eftir það maður
Eða bara vera einn af þeim sem á sparnað og á að refsa fyrir að eiga hann
bebecar wrote:Þau verða feit námslánin eftir það maður
* SJÚKRATRYGGÐ TANNLÆKNAÞJÓNUSTA
Auka þarf rétt almennings til niðurgreiddrar tannlæknaþjónustu og stefna að
því að almenningur njóti sjúkratrygginga til greiðslu fyrir tannlæknaþjónustu
þar sem í gildi verði samningar milli tannlækna og Tryggingastofnunar. Frjáls
verðlagning á ekki við um tannlæknaþjónustu.
*Kostnaðareftirlit verði eflt varðandi lyfjakostnað í heilbrigðisþjónustu
og þátttöku almennings í lyfjakaupum
• lágu vöruverði til neytenda og afurðaverði sem tryggir viðunandi afkomu
framleiðenda kjöts og grænmetis og styrki þannig byggð í landinu
• sölu léttvíns og bjórs í verslunum að uppfylltum skilyrðum um geymslu
og sölu
• verðkönnunum og að vel sé fylgst með vörugæðum
• lækkun ávaxta- og grænmetisverðs
• lægra fiskverði til neytenda
NÁTTÚRUAUÐLINDIR ERU ÞJÓÐARINNAR
Frjálslyndi flokkurinn aðhyllist dreifða eignaraðild og hafnar því að nýtingarréttur
á sameiginlegum náttúruauðlindum sem mynda grunninn að efnahag
þjóðarinnar, sé skilgreindur sem einkaeign, enda leiðir slíkt fyrirkomulag til óréttlætis,
fákeppni og einokunar.
RÍKI OG KIRKJA AÐSKILIN
Frjálslyndi flokkurinn telur að það sé einkamál hvers og eins hvaða trú eða lífssýn
hann eða hún aðhyllist. Aðskilja ber ríki og kirkju. Opinberar stofnanir eiga að
vera opnar öllum, óháð trú þeirra eða lífssýn.
Menntun
Fyrirtæki verði hvött til fjárframlaga til skóla með því að gera framlögin
frádráttarbær
LÁNASJÓÐUR ÍSLENSKRA
NÁMSMANNA
• Öll gjaldtaka skóla verði lánshæf.
• Frítekjumarkið verði hækkað.
• Grunnframfærslan endurspegli raunhæfa
framfærslu námsmanns, enda
er háskólanám full vinna og ekki
hægt að gera kröfu um að nemendur
þurfi að vinna með námi.
• Settar verði samræmdar reglur um
styrki í sérhæft nám erlendis sem
ekki er kennt hér á landi.
HÖFNUM NÚVERANDI KVÓTAKERFI
Frjálslyndi flokkurinn hafnar með öllu núverandi útfærslu kvótakerfisins
vegna þess að það veldur:
Hruni byggða og fækkun íbúa
Minni atvinnu með sölu og tilfærslu kvótans
Árangursleysi við uppbyggingu á stofnum botnfiska
Sóun á verðmætum með rangri nýtingu fiskimiðanna
Ástæður fyrir svo afgerandi afstöðu Frjálslynda flokksins gegn núverandi
kvótakerfi eru eftirfarandi:
Við sölu kvótans og þar með veiðiréttarins úr byggð tapar fólkið atvinnu sinni
en útgerðarmaðurinn (hluthafinn) fær oft fúlgur fjár. Mismunun þeirra sem áður
áttu sameiginlega atvinnuhagsmuni í sjósóknar- og veiðirétti sjávarbyggðanna
er alger. Þeir sem hafa fengið eignarréttinn á óveiddum fiski í sjónum frá stjórnvöldum
eiga trygga framtíð en fólkið missir atvinnu sína og eignir þess verða
verðlitlar eða verðlausar.
SAMGÖNGUR
Frjálslyndi flokkurinn vill að í samgöngumálum verði sérstaklega horft til þess
að bæta umferðaröryggi á þjóðvegum landsins. Einbreiðar brýr verði aflagðar og
markvisst fækkað öðrum slysagildrum og mjóum vegum.
Svo er það í raun og veru rúsínan í pylsuendanum að mínu mati
ÍSLAND OG EVRÓPA
Ísland tengist Evrópu sífellt meira, ekki síst eftir að samningurinn um Evrópska
efnahagssvæðið tók gildi, og nú með stækkun Evrópusambandsins.
Frjálslyndi flokkurinn hefur allan vara á um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Aðild kemur ekki til greina á meðan reglur sambandsins eru
óbreyttar í fiskveiðimálum. Íslendingar eiga að taka þátt í evrópskri samvinnu
eftir því sem frekast er unnt. Það er hægt að gera með því að efla samskipti við
einstakar þjóðir og með virkri þátttöku í Atlantshafsbandalaginu (NATO), Öryggis-
og samvinnustofnun Evrópu (OSCE), Evrópska efnahagssvæðinu (EES),
Evrópuráðinu, Norðurlandaráði og Vestnorræna ráðinu svo nokkuð sé nefnt.
Users browsing this forum: No registered users and 2 guests