Jæja, þá koma bílarnir sem ég hef keypt, á alla enn reyndar.
Nr. 1 Bmw e34 525i árgerð 1990 - beinskiptur, lúga, leður og sportsæti. Með M20B25.
Æðislegur bíll, þó svo hann bili mikið. Verður ekki seldur!
Þegar ég keypti hann í feb 2007
Júli/ágúst 2007
Og svona er hann núna(21 apríl 2008).
Nr. 2 Bmw E30 316iA árgerð 1990 sem Árnibjörn átti - Þessi var EDITION, semsagt með rafmagn í rúðum, ljósarúðuþurrkur og eitthvað fleira. Ég skemmti mér ágætlega á honum þessa viku eða svo sem hann var ökuhæfur.
Hann var orðinn svo ryðgaður að ég reif hann.
Þegar ég fékk hann. (Man ekkert hvenær)
Svo daginn eftir að ég lappaði aðeins uppá hann.
Nr. 3 Bmw E34 520i árgerð 1989 - beinskiptur með ljósum tauklæddum comfort sætum m/ armpúðum og viðarlista í innréttingu, bara þægilegur krúsari. Vélin bræddi úr sér í þessum, festist bara alveg. Hann fær þó nýja vél á næstunni.
Kvöldið sem ég fékk hann 8. Desember 2007
Um 2 tímum síðar.
Innréttingin
Og svo úr sumarbústaðarferð sem ég og félagar mínir fórum í, ég keyrði um 2-3000km um þessa helgi.
Nr. 4 Bmw e30 320i Coupé 1989 - Tjahh, keypti þennan nú bara til þess að rífa vélina úr honum til að setja í 520 bílinn minn.
Nr. 5 Chevrolet Blazer K5 38" breyttur árgerð 1988 - 350 Chevy vél og 350 skipting. Þessi verður vonandi eitthvað notaður í sumar eða haust.
Finn því miður enga mynd eins og er.
Nr. 6 Ford Ranger XLT árgerð 1995 - Eignaðist þennan núna nýlega og hann verður notaður eitthvað í sumar þegar ég er búinn að klappa honum aðeins.
Þá er það bara komið. Á alla þessa bíl ennþá, er þó að fara henda báðum skelunum af E30, búinn að parta þá loksins.
