Jæja ég og Andrew vorum í gær að ganga frá í skúrnum! Búnir að taka vélina úr og koma henni á gálga.. allt búið að ganga rosa vel!
Við vorum búnir að ganga frá öllu og tjakka bílinn niður og næsta skref var að ýta bílnum út og í stæði.
Ég settist uppí bílinn og bað Aron um að rétta mér lykilinn svo ég gæti tekið stýrið úr lás. Jájá Aron rétti mér lykilinn og ég hamast og hamast og get ekki snúið og stýrið vill ekki úr lás!!
Við klárum okkur í hausnum og skyldum ekkert.. Aron sagði mér að taka stýrið af.. þá gætum við tekið það úr lás..
Já okey ég tek stýrið úr.. ekkert gerist! Við skiljum ekki neitt... Aron hringir eitt símtal og spyr hvað gæti verið að valda þessu... við fengum engin svör! Bara að ég hlyti að vera snúa lyklinum vitlaust eða bara algjör auli!
Svo ég held áfram að hamast á þessu.. ákveð að taka lykilinn úr og ætla að setja aftur í... nei nei tek ég þá ekki eftir að Aron rétti mér lykilinn að SÍNUM bíl!! Alveg eins lyklar en ekki eins lyklakippur... og hvorugur okkar fattaði nokkuð!!
Þannig að Aron rétti mér svo rétta lykilinn og við gátum ýtt bílnum út!
Þetta var alveg einum of aulalegt hjá okkur!
