Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Krónan ...

Postby fart » Thu 08. Sep 2016 08:25

Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Krónan ...

Postby Zed III » Thu 08. Sep 2016 08:41

fart wrote:http://www.visir.is/reykjavik-ordin-dyrust-midad-vid-adrar-hofudborgir/article/2016160909081

og

http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/201 ... att_gengi/

Greinilega fleiri farnir að spá í þessu..


mjög hættuleg þróun sem við erum að sjá og þetta sem þú segir með krónuna er spot on.

Menn mega ekki við mikilli fækkun ferðamanna enda allt gírað upp miðað við áframhaldandi vöxt. Menn gætu vaknað upp við vondan draum þegar fækkunun verður og fyrir löngu búið að verðleggja innlenda ferðamenn út úr myndinni.

Reyndar vinnur ótryggt ástand heimsins með okkur. við njótum þess að vera bæði smá exotic og öruggur áfangastaður fyrir ævintýragjarna.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Krónan ...

Postby Geirinn » Mon 12. Sep 2016 13:05

Það er margt annað sem spilar inn í sem mér finnst stjórnvöld mega hugsa um í þessu samhengi. Það eru fjölmargar breytingar sem hafa átt sér stað á síðustu misserum sem gætu átt sinn þátt í erfiðleikum í framtíðinni:

Það er búið að leggja skatt á skipuleggjendur ferða á þeirri þjónustu sem innt er af hendi hér á landi (ferðaskrifstofur, ferðaskipuleggjendur og bókunarskrifstofur), þ.e. þeirra framlegð. Þeir greiða ýmist 11% eða 24% skatt af framlegð út frá því í hvaða virðisaukaskattsflokki varan/þjónustan er sem seld er. Þessi fyrirtæki taka mjög virkan þátt í markaðssetningu landsins (þau taka á móti fyrirtækjum og aðilum úr ferðaþjónustu erlendis í ferðir sem ætlað er að kynna landið og þessir sömu aðilar fara á sölusýningar, prenta efni og nota aðra miðla til þess að kynna Ísland á erlendum vettvangi). Þessi breyting, og aðrar breytingar hér fyrir neðan eru íþyngjandi fyrir grein sem (þó er eldgömul) er óþroskuð að mörgu leiti hér á landi.

Það er búið að semja um hærri laun í landinu og það virðist verða áframhald þar á.

Það var lagður á skattur á afþreyingu, fólksflutninga og baðstaði í byrjun árs 2016.

Verið er að tala um að hækka gistináttagjöld (sem eru nú 50/100 kr. + VSK á hverja selda nótt) - og jafnvel nota þá aðferð í stað hins margumtalaða náttúrupassa. Á sama tíma er uppi hugmyndir um að eigendur náttúruperla rukki erlenda ferðamenn um bílastæðagjöld sem eiga að stemma stigu við eyðileggingu náttúrunnar.

Ákveðin markaðssvæði eiga líka undir högg að sækja, ekki bara vegna þess að íslenska krónan er að hressast svo um munar, heldur líka vegna utanaðkomandi breytinga, m.a. vegna BREXIT og lækkandi olíuverðs í heiminum (þ.e. veiking NOK sem dæmi). Breytingar á GBP, NOK, SEK, EUR... þetta hefur sannarlega sitt að segja. Á meðan allt hækkar hér hafa ákveðin markaðssvæði minna á milli handanna og gætu því síður valið Ísland sem áfangastað. Í þessu samhengi verðum við líka að gera okkur grein fyrir því að Ísland er ekki nafli alheimsins - þeir ferðamenn sem setja Ísland í pottinn hafa um alla heimsins áfangastaði um að velja.

Á sama tíma virðist fjármagn á Íslandi vera dýrt (þó að allar krónur leiti nú í uppbyggingu hótela, veitingastaða, afþreyingar....). Verðhækkanir síðustu ár á ferðatengdri þjónustu eru gríðarlegar, og oft þannig að þær eru vel umfram allt sem telst eðlilegt, m.a. vegna uppbyggingar, sbr. http://www.visir.is/tap-af-rekstri-icelandair-hotela/article/2016160909468. Á meðan stórfyrirtæki á borð við Icelandair Hótelin byggja upp eru aðrir aðilar sem liggja undir radarnum, bjóða lélega þjónustu fyrir hátt verð og hagnast þannig til skamms tíma. M.ö.o, það vantar langtímasjónarmið hjá fjölmörgum aðilum innan ferðaiðnaðarins.

Fyrir mitt leiti á að ganga þannig úr garði að ferðaþjónustan skili því sem eðlilegt er að hún skili til þjóðarinnar (og að þau fótspor sem ferðamenn skilja eftir sig hér séu afmáð með viðhaldi og uppbyggingu). Það verður samt að ganga úr skugga um að breytingar á lögum (og kjörum) séu þannig að iðnaðurinn geti byggt sig upp á náttúrulegan hátt og sé í fyrirsjáanlegu lagalegu umhverfi (sbr. aðlögunartími).

Ljósi punkturinn er eflaust sá að traffík ferðamanna á það til að beinast í átt að öryggi - við getum vonandi haldið áfram að bjóða erlendum ferðamönnum öruggan áfangastað (áfangastað án hryðjuverka sem dæmi). Heimurinn virðist samt hafa gaman af því þessa dagana að tala um eldfjöllin okkar, sem er eitthvað sem gæti haft bæði jákvæð og neikvæð áhrif á okkur í komandi framtíð.

Annars eru þetta bara mínar pælingar... eflaust hægt að skrifa annað eins um sjávarútveginn, álverin, umhverfi nýsköpunarfyrirtækja...
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Re: Krónan ...

Postby gstuning » Sat 17. Sep 2016 20:13

Frá minum dyrum sem enn einum íslenskum turista að þá eru skringilega margir í kringum mig á leið eða hafa farið til íslands á þessu ári, bæði vell auðugt folk sem hundruði milljóna evra á milli handanna sem og venjulegt fólk. Það hlýtur einhver að vera fylgjast með hvernig landinu gengur þá uppá hagnað á móts við gengi.
Ef við gefum okkur að Profit fyrir neðan sé hagnaður almennt fyrir Ísland sem heild( allt með talið, starfsframleiðsla og svo framvegis) og Quantity sé gengi íslensku krónunar þá er það seðlabankans starf að finna hvar það hentar landinu að gengið sé uppá að gera sem best fyrir landið.

Það sem er svo inní þessu er að vinstra meginn við hámarkið eru fleiri túrista að eyða minn per einstakling og hægra meginn eru færri og þvi að eyða hærra per einstakling.
Image

Þetta er uppáhalds kúrvan mín því það er svo auðvelt að útskýra með henni, íslensk skattálagning er t.d að mínu mati of langt til hægri, afhverju hún er til hægri er svo flóknara mál (of margir að komast hjá skatti sem setur greiðslubyrðina á þá sem komast ekki hjá skatti ). Alltaf sama sagan þegar á þessa kúrvu er litið á ég að selja 5 stykki á 1000kr og fá 5000kr og 5 nýja kúnna eða selja 4 stykki á 1250kr og "bara" fá 4 kúnna. Sami hagnaður enn einum kúnna fleira til að viðhalda / þjóna.....
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Wed 02. Nov 2016 06:32

http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/201 ... bjollum_2/

Go fast parts að verða ódýrari.......
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby gdawg » Wed 02. Nov 2016 13:23

Er ekki málið að opna aftur dyrnar hjá Bílalist ?
Hlýtur allt að fara í gang núna :santa:
Gummi
´92 Mini [MR BIG]
´04 Jaguar X-Type
User avatar
gdawg
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 374
Joined: Mon 17. Mar 2003 17:29
Location: Cambridge

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Fri 04. Nov 2016 14:24

Dollarinn að fara í tveggja stafa tölu fljótlega???
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Fri 24. Feb 2017 11:39

Styttist í þetta.....
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby Alpina » Sat 25. Feb 2017 15:19

bimmer wrote:Styttist í þetta.....


Hvað þá ?
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Sat 25. Feb 2017 16:34

Alpina wrote:
bimmer wrote:Styttist í þetta.....


Hvað þá ?


Pósturinn á undan.....
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby Fatandre » Sat 25. Feb 2017 19:56

Helduru að það sé virkilega að fara ske?
91 BMW 850 (BDS), 05 Mini Cooper S R53
User avatar
Fatandre
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1870
Joined: Fri 20. Jul 2007 08:59

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Sat 25. Feb 2017 21:00

Fatandre wrote:Helduru að það sé virkilega að fara ske?


Það er klárlega í kortunum.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Mon 15. May 2017 16:10

Styttist.... er í 103.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Fri 19. May 2017 09:46

101.....
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Fri 19. May 2017 13:04

Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 51 guests