by gdawg » Fri 25. Apr 2008 07:19
Margar skoðanir í gangi á þessu máli og menn mjög á öndverðu meiði!
Það er frekar furðulegt að fylgjast með þessu svona úr fjarlægð.
Ég verð hins vegar að segja að eins og staðan er í dag finnst mér menn vera að einblína allt of mikið á það sem gerðist núna á síðustu dögum, það þýðir ekkert að taka aðgerðir lögreglu svona úr samhengi.
Það sem kemur fyrir einstaklinginn þegar óeirðaástand skapast skiptir ekki máli, það er ein lína og tveir aðilar => stríðsástand.
Byrjum bara frá byrjun, trukkabílstjórar eru búnir að vera að skapa óþægindi og hættu í umferðinni í marga daga og búnir að vera að ögra lögreglunni og skoða hvað þeir komast upp með.
Þá kom skellurinn, BAMM, hingað og ekki lengra, allt í bál og brand. "Löggan er vond við megum ekki gera það sem við viljum"
Mér fannst persónulega eina sem var e-ð vit í þessari atburðarás síðustu vikna vera þegar trukkarnir mótmæltu á austurvelli, þá var í eina skiptið verið að koma við kauninn á þeim sem e-ð höfðu um málið að segja.
Sturla tönnslast á því að Ríkisstjórnin eigi að hugsa um innanríkismál (þeas sig) en hvað gerir hann, stoppar fólk í að komast milli úhverfa Reykjavíkur...ríkisstjórnin er niðrí miðbæ kjáni, ekki í Árstúnsbrekkunni!
Gummi
´92 Mini [MR BIG]
´04 Jaguar X-Type