Maður er bara hlessa
Maður ræðst ekki á lögregluna. Hún er þarna til að sinna skyldustörfum og það ekki einn eða tveir sem mögulega gætu verið einhverjir svartir sauðir - nei það er þarna hópur af lögreglumönnum og fólk annaðhvort gegnir þeim ekki eða hjólar í þá.
Eldsneyti er fyrir það fyrsta ekki dýrt á Íslandi miðað við nágrannalöndin og heldur ekki miðað við aðrar nauðsynjar.
Mér sýnist á flestu að þessi mótmæli séu á röngum forsendum - það er ekki verið að berjast fyrir lægra eldsneytisverði því það er lítið vit í því þegar bensín er ódýrara hér en annarsstaðar (hver væri sanngirnin í því að verða við þessum kröfum?). Það er verið að berjast fyrir einhverju öðru, hvíldartímareglunum (sem ég er svosem alveg sammála að séu ekki beint skynsamlega miðað við aðstæður heima) og þá væntanlega vitandi það að það er engan stuðning að fá hjá almenningi við þær breytingar.
Niðurstaðan verður eflaust sú að allt fellur í ljúfa löð þegar bílstjórarnir ná fram breytingum á hvíldarreglunum, bættri aðstöðu eða einhverju álíka.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road