jon mar wrote:
Ég get bara ekki með nokkru móti fengið skilið hvernig svona strangheiðarlegir fjölskyldumenn, sem eru bara ágætiskallar, keppast við að fá viðurkenningu og inngöngu í samtök sem eru líklega þekkt fyrir frekar andfélagslega hegðun víðsvegar um heiminn.
Just beats me

Rosalega er ég ofboðslega sammála þér.
Eru ekki til fullt af mótorhjólafélögum á Íslandi sem hafa t.a.m. beitt sér fyrir auknu umferðaröryggi og fleiru.
Sniglarnir
Hrafnar MC Iceland
SkutlurB
MW Klúbburinn
Náttfari
Ducati klúbburinn
Ruddar
Grindjánar
Barónar
Tían
Kvartmílu klúbburinn
Gamlingjar
Hjólabræður
Slóðavinir
GWRRA
Huldumenn
Er virkilega svo að menn geta ekki fundið samsömun í einhverjum af þessum klúbbi.
Það er eitthvað twisted við það að gefa sig út fyrir að vera fjölskyldumaður og vilja samt aka undir mekjum á félagi sem er skv. Interpol skilgreint sem glæpasamtök.