Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig

Postby Lindemann » Sun 19. Sep 2010 22:58

ValliFudd wrote:
Lindemann wrote:Áður en menn missa sig alveg hérna, þá þurfa nokkur atriði að vera á hreinu!

- Það geta alltaf komið upp einhverjar óviðráðanlegar aðstæður við allt keppnishald, s.s. veður eða ef olía fer í braut. Olía í braut er alltaf stórmál hvort sem brautin er kvartmílubraut eða hringakstursbraut!
- Bíllinn sem missti niður olíu var þýskur, en það kemur málinu samt sem áður ekkert við. Svona slys er ekki hægt að koma algjörlega í veg fyrir, aldrei. Tiltekinn bíll lak engri olíu við keppnisskoðun.
- Í gegnum tíðina hefur það aldrei verið þannig að keppendur(í kvartmílu) hafi fengið endurgreitt ef það þarf að hætta keppni vegna svona aðstæðna, eins ef það fer að rigna. Ég er ekkert að segja hvernig þetta á að vera, bara hvernig þetta hefur verið. Yfirleitt hefur þá verið reynt frekar að klára keppnina seinna.
- Það var reynt að keyra Auto-X með þessu breytta fyrirkomulagi því það var það skásta sem hægt var að gera í þessum aðstæðum, Það var ekki hægt að keyra Kvartmílu neitt meira eftir þetta svo ég skil ekki hvernig þetta kemur því við hvort menn hafi áhuga á amerískum v8 eða ekki. Ég var samt ekki að stjórna neinu þarna heldur bara starfsmaður á keppninni og kom hvergi nálægt neinum ákvörðunum þessu tengdu. En það er betra að það komi fram fleiri hliðar á málinu.
-við vorum fram á kvöld að hreinsa brautina, það tekur töluverðan tíma að hreinsa upp [b]1m breiðan og 400m langan olíuúða![/b]

Ok.. ekki skot á þig.. en hvaða hálfviti lét sér detta í hug að senda bíla í brautina til að keyra hana í sikk sakki með 400 metra, 1 meters breiðan olíuúða á henni????
Þessi keppni hefði aldrei átt að vera haldin á brautinni samkvæmt því sem þú og aðrir eru að segja og það hefði að sjálfsögðu átt að endurgreiða keppendum sín gjöld eins og vaninn er ef keppni er ekki byrjuð og er aflýst.

kv.
Valbjörn


Ekki illa tekið, enda kom ég ekkert nálægt þessum ákvörðunum. :)

Reyndar var bara keyrt sikk sakkið á vinstri braut og svo snúið við og bremsað í 1/8 hliðinu í hægri braut, og það var þar sem olían var. s.s. ekki verið að sikk sakka í olíu.

En ég tek alveg undir það að þetta var ekki mjög spennandi svona, því miður því mér sýndist þetta geta orðið skemmtileg keppni.........það litla sem ég hafði séð af tímatökunum.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig

Postby burger » Mon 20. Sep 2010 07:16

er nýja stjórnin í kk ekki bara að kúka uppá bak ?

félagi minn hefur verið lengi í kk og keyrt marg oft og eflaust verið margar stjórnir í gegnum þann tíma og núna fussar hann bara yfir stjórninni nýju :lol:
VW Golf VR6 - í Notkun!
Subaru leone 1800 1986 - Seldur
Mazda 323f -seldur
Volvo 240&740 - Seldir
maxel wrote:Nenniru að rífa enter takkan úr lyklaborðinu þínu.
burger
Getawaybílstjóri
 
Posts: 990
Joined: Tue 22. Jan 2008 21:09

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 56 guests