ValliFudd wrote:
SteiniDJ wrote:
bimmer wrote:
SteiniDJ wrote:
Finnst líka alveg absúrd hvað það er dýrt að hringja í Nova númer.
Er það semsagt þannig sem allt þetta fría hjá Nova er fjármagnað????
Þeir gætu vel gert það, enda kostar 28 krónur að hringja í Nova úr Símanum, en 23.5 krónur í öll önnur kerfi (fyrir utan í Símann, þá kostar það 11.9 krónur ef þú ert ekki í Ring).
Ég held alveg örugglega að menn séu að misskilja.
Tökum 800-7000 sem dæmi... Ókeypis að hringja í það.. En bíddu nú við. Vodafone RUKKAR sína notendur fyrir að hringja í það. Ekki Síminn heldur Vodafone. Síminn tekur ekki krónu heldur fer það allt í vasan hjá Hr. Voda.
Ég er nokkuð viss um að Síminn þurfi ekki að borga Nova neitt fyrir símtöl í Nova. Síminn, Voda og Tal eru væntanlega að berjast við það að drepa nýja fyrirtækið á markaðnum sem er búið að stela 60.000 notendum nú þegar með því að hafa verðið hátt þegar hringt er í þá.En kannski er það ég sem er að misskilja.
Fjarskiptafyrirtækin þurfa að greiða samtengigjöld sín á milli eða eins og segir hjá Póst- og fjarskiptastofnun (PFS):
www.pta.is wrote:
Fjarskiptafyrirtæki sem starfrækja almenn fjarskiptanet eða almenna fjarskiptaþjónustu skulu eiga rétt og þeim ber skylda til að semja um samtengingu neta og þjónustu.
Þetta þýðir að fyrir hvert símtal sem hringt er úr símkerfi Símans í Nova þarf Síminn að greiða Nova fyrir. Sama gildir um þegar númer hjá Nova hringir í Símann eða Vodafone, númer hjá Símanum hringir í Vodafone, Vodafone í Símann eða Nova o.s.frv.
800-7000 hjá Símanum er það eingöngu gjaldfrjálst fyrir þá sem eru með símanúmerið sitt hjá Símanum. Sama gildir sjálfsagt um þjónustunúmerið hjá Vodafone o.s.frv.
Bara til þess að þetta sé á hreinu
