Zed III wrote:Svezel wrote:Boð og bönn eru ekki málið, ég vil ekki að mér sé bannað að gera eitthvað bara afþví einhver telur að það sé öhollt eða dýrt. Þetta getur bara verið byrjunin á einhverju miklu meira og áður en við vitum af er allt skemmtilegt og gott bannað.
Fólk á að fá tækifærið til að átta sig sjálft á því hversu óhollar og dýrar reykingar eru fyrir samfélagið en það verður þá líka að greiða fyrir það.
Ég reyki btw. ekki og þoli ekki reykingar en er á móti svona bönnum.
Nokkuð sammála þessu. Sjálfsagt þó að þetta sé verðlagt þannig að þetta kosti ekki hina stórfé í heilbrigðiskostnað.
Hvað verður næst, banna franskar, ís og súkkulaði vegna offitusjúklinga?
Það er bein tenging á milli reykinga og sjúkdóma. Það er það hins vegar ekki á milli súkkulaði og offitu og þeim sjúkdómum sem offitu fylgja.
Þú getur verið snar feitur og ógeðslegur á að borða kótilettur og álíka mat ef þú situr á rassgatinu allan dagin og hreyfir þig ekki.
Ef að sígarettur yrðu skattaðar í samanburði við kostnað vegna reykinga myndi vísitala neysluverðs fljúga upp úr þakinu... þá vill ég frekar að svona hlutir væru bannaðir!



