bebecar wrote:Ég og bróðir minn sáum eitthvað skært ljós stöðugt, langt fyrir ofan Keflavíkurbæ aðfaranótt sunnudagsins síðasta klukkan 04:30 sirka... var þar í örugglega hátt í 10 mínútur en var svo horfið þegar við komum fram hjá hæðinni hjá Reykjanesbæjarhollywoodmerkinu...
Of hátt til að vera mannvirki, of sterkt til að vera þyrla sem mér datt nú helst í hug en það var ansi stöðugt ansi lengi... samt örlítil hreyfing á þessu.
Ég man ekki eftir að hafa séð eitthvað þessu líkt áður...
Manstu í hvaða átt?



