Flappinn wrote:
bebecar wrote:
gstuning wrote:
bebecar wrote:
Bara vesen ef þú þarft að taka tölvuna með þér erlendis. Sama á reyndar við um myndavélar og önnur dýr tæki og tól.
Ég kaupi þetta ekki.
Hvernig ætla þeir að sanna að þú sért að ólöglega flytja hana inn,.
hvað með fötin sem þú ert með, úrið þit, símann þinn,
allt þetta getur kostað morðfjár enn tölvur og myndavélar þarf maður að ganga með kvittanir frá tollinum um greiddann virðisaukaskatt á sér þegar maður ferðast?
Ég hef ferðast með tölvur á milli landa og stundum tvær á sama tíma og aldrei lent í veseni með þær eða hvað annað.
Þetta er bara kjánalegt að pæla í þessu því að föt geta kostað ógrynni enn er tollinum þá alveg sama um þau? Eða símanna sem geta kostað 60þús+
? Já eða hálfestina sem konan er með og kostaði hálfa milljón úti,
það þarf nefninlega að borga vsk af þessu öllu.
Mín reynsla af því að vinna í flugstöðinni sjálfri og ferðast fullt í gegnum hana að þetta á ekki við rök að styðjast nema í alveg einstaka tilfellum þegar það er nokkuð líklegt að vöru sé verið að flytja inn ólöglega.
þ.e liggur við í pappakassanum úr PC WORLD eða eitthvað álíka
Þú þarft ekkert að kaupa þetta - bara borga virðisauka af þessu
Ég er bara að segja þér frá því hvernig lögin eru... ef það er ekki farið eftir þeim almennt þá þýðir það nú samt ekki að það verði aldrei gert.
Þetta á auðvitað við um föt, úr og allt hitt líka. Og hvað toll varðar þá þarftu að sýna fram á að það hafi verið greiddur tollur af vörunni - ekki öfugt (þeir þurfa ekkert að sanna að þú sért að flytja vöruna ólöglega inn, þú stendur með hana í höndunum í TOLLINUM!!!)
Þetta er rangt hjá þér.. Sönnunarbyrgðin liggur hjá tollinum ekki þér.
Það er alveg haugur af fólki búin að lenda í þessum vandræðum, aðallega með myndavélar og fartölvur. Þetta er ekkert voðalega flókið. Þú ert að koma til landsins með eitthvað dótarí og átt að geta sýnt fram á að það sé keypt innanlands, annars borgar þú toll - eða vsk.
Samskonar reglur eru til víðast hvar. Þú þarft t.d. Carnet til að fara með tölvudót inn í land, sem á að fara með út aftur. Þetta er gert svo ekki sé verið að flytja inn vöru, tollalaust sem er svo seld áður en farið er út aftur.
Ef þú værir með svona Carnet, t.d. fyrir dóti á leið frá Íslandi þá er ekkert mál að sýna fram á að búið sé að greiða af vörunni.
Þetta hefur í raun ekkert með sönnunarbyrði að gera. Þetta eru bara tollareglur, það þarf að borga toll og virðisauka af hlutum sem fluttir eru til landsins - þeir fara ekkert í gegn öðruvísi. Ef þú vilt sleppa við það þá þarftu að sýna fram á að þú sért búin að borga það.
Quote:
A carnet is a document allowing the importation of certain goods to countries without paying customs duty. Two types exist:
* ATA Carnet - for temporary importation of goods and equipment.
* Carnet de Passage - for motor vehicles.
Bottom line-ið er að þangað til það hefur verið borgað af vörunni þá getur maður ekki verið öruggur með að sleppa næst þó varan hafi einu sinni komist í gegn áður.
Það er svo annað mál að það er augljóst að tollarar virðast margir fylgja þessu bara eftir eigin geðþótta og jafnvel ekki vita hvernig reglurnar eru sjálfir.
Quote:
Það er í mörgum tilvikum farið að neita fólki, sem er á leið úr landi með dýra hluti, að skrá þá sérstaklega hér við brottför geti viðkomandi ekki sýnt fram á það með kvittun að varan hafi verið keypt á Íslandi," segir Björg Valtýsdóttir, deildarstjóri hjá Tollstjóraembættinu á Keflavíkurflugvelli.
Quote:
Hverjum og einum ferðamanni er heimilt að koma með varning til landsins að andvirði 46 þúsund kr, þar af má einn einstakur hlutur ekki kosta meira en 23 þúsund kr. Geti menn hvorki sýnt fram á að hluturinn, sem sé sannarlega yfir verðviðmiðunarmörkum, hafi verið tollafgreiddur né lagt fram kvittun um að varan hafi verið keypt á Íslandi er hluturinn einfaldlega haldlagður og sendur í kærumeðferð til lögfræðinga tollstjóraembættisins, að sögn Bjargar.
Hvorutveggja er frá Morgunblaðinu