Erum staddir núna hjá systur strákanna og fjölskyldu hennar í Aalborg í Danaveldi, það er staðið við grillið úti í garði í regnstakk í mííígandi rigningu og kjúklingurinn látinn stikna!
Við mættum hérna í gærmorgun eftir 12 tíma akstur frá Munchen... gríðarlega vonsviknir yfir því að geta ekki verið lengur!
Oktoberfest er eitthvað sem maður má greinilega ekki missa af því að stemningin sem var að myndast á tjaldsvæðinu var engu lík!! Heilu ferðaskrifstofurnar voru mættar með hundruði tjalda og hentu þeim upp eins og ekkert væri, til þess eins að taka frá pláss fyrir bjórþyrstu ferðamennina sem von var á.
...gríðarleg eftirsjá!
En, þrátt fyrir miklar pælingar þá komumst við að því að það væri varla ráðlegt að vera lengur. Tökum þetta að ári liðnu!
Á þriðjudaginn lá leiðin beint frá Tallkirchen tjaldsvæðinu að BMW safninu í Munchen þar sem stóðu yfir miklar framkvæmdir á mannvirkjum þeirra manna. Hið nýja BMW Welt mun opna vorið 2008, þannig að þeir sem munu leggja leið sína á Oktoberfest næsta ár (sem undirritaður mælir með, miðað við stúlkurnar sem voru að mæta) munu geta borið það augum.Við hinsvegar sættum okkur alveg við hús sem var búið að henda upp á svæðinu ásamt stóru tjaldi þar sem helstu safnmunum hafði verið komið fyrir.
Þegar við höfðum skoðað okkur fullsadda af BMW munum þá var GPS tækið stillt inn á þrælkunarbúðirnar í Dachau þar sem við litum á ósmekklegar menningarleifar frá seinni heimsstyrjöld þar sem Dolli réði ríkjum. Það voru heldur ófagrar myndir sem biðu ásjónu okkar þar á bæ, og slagorð fangabúðanna "Arbeit macht Frei", svo sannarlega ekki orð með sönnu sögð. Eftir að Bjarki var búinn að hneyksla allt liðið sem var statt á svæðinu, þá ákváðum við að þetta væri komið gott og stefndum aftur á tjaldstæðið.
Um kvöldið tók tjaldsvæið að fyllast, og fólk frá öllum heiminum (sérstaklega Ástralíu og Suður-Afríku) tók vel á því í drykkjunni og vorum við menn ekki lengi að komast í mjúkinn hjá nokkrum misheitum stúlkum. Þær tóku virkilega vel í bílinn og eftir smá G&T voru þær meira en g*aðar! ... Við munum blóta skynsömu vinkonuninni sem mætti á svæðið í sand og ösku um ókomin ár.
Við vöknuðum gríðarlega blautir daginn eftir. Það hafði rignt GRÍÐARLEGA alla nóttina! Kerran var tengd, dótið tekið til og bombað beint upp á Autobahn með stefnuna tekna á IAA bílasýninguna í Frankfurt. Við náðum ekki nema 3-4 tímum þar þar sem bremsuklossarnir að framan kláruðust alveg og við neyddumst til að eyða ófáum klukkutímum í að láta skipta um þá.
Bílasýningin hins vegar fór fram úr öllum vonum hjá okkur!! Stærðin, glamúrinn og magnið af fólki, áfengi og bílum er aðeins of gott til að vera satt! Það fór ekki á milli mála hvaða framleiðendur voru aðal spaðarnir á svæðinu, því BMW og Mercedes Benz voru með áberandi stærstu og flottustu "básana"!
Ég tel þetta bara komið gott frá okkur félögum í bili, norræna bíður okkar í fyrramálið og við mætum ferskir á klakann kl. 09:00 á þriðjudagsmorgun ef dallurinn sekkur ekki á leiðinni! Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að klára hvern einasta áfenga dropa í honum!!
Ég læt fylgja með nokkrar myndir af ferðinni, ég held að það sé það svona það besta í stöðunni!!
PS. Þessi póstur hefur verið skrifaður á löngum tíma, við vorum núna að koma af háskóladjammi og erum á leiðinni í bæinn.
Stúlkurnar hérna eru eitthvað ....,,,,((((BARA)))),,,,.... í lagi!!! Ein þrítug varð reyndar aðeins slappari eftir að ljósin kviknuðu, en annars frekar góð bara!
Njótið vel...
Eftir síðustu reynslu hjá okkur þá ákváðum við að nota grillvökva. Það var OF mikið!<
Stúlka sem við hittum. Endilega sendið Bjarka PM um þessa!<
Hún var ekki lengi að taka honum opnum föðmum.<
Þegar við vorum að taka okkur til... þá blöstu við okkur tjaldborgir
Út um allt!
Þessir sáu um gæsluna, voðalega spaðalegir.
Það var 24 ára par á þessum bíl, sem hafði ferðast frá Ástralíu á þessum skrjóð.... gríðarlegt respect fyrir þeim!
Þið getið ímyndað ykkur hversu mikið við vildum EKKI fara af tjaldsvæðinu þegar þessi var það seinasta sem við sáum!
Hérna erum við komnir á BMW safnið. Eins og fróðir menn vita þá voru BMW menn fyrst í flugvélamótorum, og okkar beið þessi gríðarlega flotti stjörnumótor þegar við komum á BMW safnið.
Spaðalegt
Draumabíllinn minn!!!!<
Maður öðlast virðingu ef maður keyrir um á þessu.
Virkilega góð bremsupæling!
Smá myndapós
Auðvitað fyrir alla
Það var heyrnalaus maður sem var svo góður að taka þessa mynd af okkur.
Þetta eru rúturnar sem flytja starfsmenn BMW frá bílastæðinu að starfsstöðum.
BMW stýri...eiga BMW menn rútur???
Benz felgur??? Hvað er í gangi?!<
Þrælkunarbúðirnar í Dachau
Verðum að kveðja núna, erum farnir á djammið í Aalborg!
Bis später!