saemi wrote:Veistu jú... ég held að það sé sko ekki neitt erfitt að skemma krakka með svona löguðu. Mér finnst þetta ekkert smáræði. Mér finnst þetta jafnast á við hluti eins og einelti í skóla. Þetta sest á sálina í krökkum. Þetta væri alveg fyndið ef þarna væri fullorðinn einstaklingur en ekki krakki.
Af hverju haldið þið að fólk sé myrkfælið??? Eruð þið virkilega búin að gleyma þegar þið voruð lítil að labba um í myrkrinu. Það geta sko örugglega allir séð fyrir sér verulega óþægilega göngu í myrkrinu í æsku, þar sem upp í hugann kom eitthvað sem sást í sjónvarpinu... eða eins og í þessu tilviki tölvuskjánum.
Ég fyrir mitt leyti er viss um að krakkar sem sjá þetta eru verri eftir þetta. Ég er alveg handviss um að þetta situr í þessum einstakling MJÖG lengi. Þó svo að þetta skemmi ekki á þann hátt að einstaklingurinn ráði ekki við það, þá á þetta örugglega bara eftir að skemma fyrir.
Börn og unglingar eru viðkvæmar sálir. Börn eru einmitt svo frábær að því leyti að þau trúa og treysta eldra fólki yfirleitt, þau eru opin og laus við tortryggni. Svona lagað skemmir agalega fyrir og gerir það að verkum að barn sem verður fyrir svona löguðu getur ekki treyst viðkomandi áfram. Það er einmitt það sem svíður mig mest að þetta virðist vera e-r aðili (ef ekki bara faðir krakkans) sem krakkinn treystir. Að misnota traust barns svona er mjög ljótt og skemmandi.
Ekki það að ég eigi sjálfur barn... en ég er þess full viss að þetta skemmir. Börn eru börn, þess vegna kemur maður ekki eins fram við þau og fullorðna. Þau geta ekki varið sig, hvorki líkamlega né andlega. Þau eru ekki á sama plani og fullorðnir. Þú segir ekki grátandi krakka að taka sér tak og hætta þessu væli ef hann er hágrátandi. Þú huggar hann.
Þetta kalla ég good posting!
Og ég er 100% sammála.. sumir eiga það bara til að fara yfir strikið






