Dóri- wrote:
Jónas wrote:
Hann er að fá 1.8 mills á ári fyrir að gera EKKERT.
Það á að afnema öll listamannalaun, sérstaklega þessi helvítis "heiðurslaun".
Ef fólk getur ekki lifað á listinni sinni þá segir það bara eitt, listin þín er léleg og þú átt ekki að vera listamaður.
Þetta er svo fyndið
líka útafþví að þetta er svo satt!
Þetta er nú eiginlega meira sorglegt en satt því öllum finnst sjálfsagt að ausa peningum í íþróttamannvirki á kostnað skattborgarana en ekki menningu og listir.
Annars er ég ánægður með þessar kosningar, er fullur bjartsýni. Finnst líka frábært að það sé verið að skoða það að fara í ESB, þá koma kannski fram einhverjar almennilegar staðreyndir um hvort það sé sniðugt að fara í ESB.
Ég er sammála því að ríkið ætti að gera hvorugt.
Svona tal er fyndið fyrir þær sakir einar að það er hlægilegt að nefna styrki, listamannalaun, sinfóníu og jafnvel tónlistarhús þegar það er aðeins brot af því sem fer í sundlaugar, íþróttahús og sparkvelli - nú og auk þess þá fá þeir sem aðhyllast akstursíþróttir varla krónu! Það er þetta sem er fyndið í svona tali...