gstuning wrote:Ég lagði það á mig að horfa á fótbolta og þennan lokaleik.
Hvað er eiginlega með fólk sem nennir að horfa á þetta öllu jafna og það mjög mikið, hvernig getur svona leiðinlegt sport verið vinsælasta sport í heimi?
Það er, sem betur fer, huglægt mat hvers og eins hvað sé skemmtilegt. Stór hluti íbúa jarðarinnar er ekki sammála þér
Mér finnst knattspyrna afar skemmtileg og það sem fótbolti hefur fram yfir margar aðrar íþróttir er að lið getur verið mun lélegra allan leikinn en samt unnið. Í körfu- og handbolta er liðum einfaldlega rústað ef þau eru lélegri í leiknum.
Knattspyrna er einfaldur leikur og reglurnar eins allstaðar, sama hvort þú ert á HM eða Djúpavogi.


