Það er búin að vera skilaskylda á gjaldeyri fyrir alla búsetta á Íslandi síðan gjaldeyrishöftin voru sett á. Það þýðir að það er ólöglegt fyrir hina sömu að skipta peningunum erlendis yfir í krónur. Samt ekki ólöglegt fyrir útlendinga.
Reglubreytingin (þessi nýjasta) setur enn frekari hömlur á það að koma krónum inn í landið sem er eina leiðin til að láta gjaldeyrishöftin ganga upp, þ.e. að gera vöruna ónothæfa, en krónur er aðeins hægt að nota á Íslandi.
Þess vegna er "svarti markaðurinn" núna frosinn og verðið á krónunni skítveikis erlendis þar sem að enginn vill kaupa þetta lengur.



