bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 23:11

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 106, 107, 108, 109, 110, 111, 112 ... 246  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Dec 2008 17:07 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
thisman wrote:
Sem dæmi má nefna að við framleiðslu á venjulegri jógúrtdollu þá er kostnaðurinn við innflutta efnið (pakkningar, bragðefni, sykur o.s.frv.) hærri en við mjólkina sem er notuð í hana!

Tekurðu þá með niðurgreiðslu/styrki til bændanna???? :lol:

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Dec 2008 18:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
bimmer wrote:
GVT komin undir 200.....

Greindar-vísi-tala :shock: :shock: +

NEIiiiiiii segi svona

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Dec 2008 18:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Enn þá má spyrja sig,
Ef við hefðum tekið skellinn með krónuna strax, væri það betra útaf slæmri efnahagstöðu almennt í heiminum, eða verður það betra þegar efnahagstaða í heiminum er betri?

Ef þessir erlendu menn eiga bréf í krónum, er þá ekki skynsamlegra að hún sé sterkari gagnvart evrunni t,d þegar hún er sett á flot?

Vantar nokkrar svona myndir af mögulegum situations sem eiga eftir að geta komið upp þegar krónunni verður sleppt.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Dec 2008 19:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
öflug mótmæli á alþingi í dag,

ég er ekki ofbeldisins maður, og nota það ekki mér til framdráttar eða sem svar við nokkrum hlut, en ég er ánægður með þetta,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Dec 2008 19:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
gstuning wrote:
Enn þá má spyrja sig,
Ef við hefðum tekið skellinn með krónuna strax, væri það betra útaf slæmri efnahagstöðu almennt í heiminum, eða verður það betra þegar efnahagstaða í heiminum er betri?

Ef þessir erlendu menn eiga bréf í krónum, er þá ekki skynsamlegra að hún sé sterkari gagnvart evrunni t,d þegar hún er sett á flot?

Vantar nokkrar svona myndir af mögulegum situations sem eiga eftir að geta komið upp þegar krónunni verður sleppt.

Auðvitað er betra að taka skellinn við bestu aðstæður, þá er auðveldara og fljótlegra að byggja efnahaginn aftur upp. En það sem er í gangi núna má líkja við að byggja hús á sandi. Lítur vel út að utan frá en er bara frestun á vandamálinu.

Það er skynsamlegra að krónan sé sterk að því leytinu til að fjárfestar hafa kannski meiri trú á okkar efnahag og eru því minna líklegir til að taka sitt fjármagn úr landi, en enn sem komið er eru það bara spár. Og þar á móti mun það kosta miklu meira af gjaldeyrisforðanum ef fólk vill taka sinn pening úr landi í sterkri krónu.

Og ég er alveg sammála thisman í því að ég trúi því varla að það séu ekki góðar og gildar ástæður fyrir þessum ákvörðunum, en það væri samt gaman að fá útlistun á því hjá þessum hagfræðingum á bak við þessar ákvarðanir hverjar helstu ástæðurnar eru.

_________________
E53 X5 4.4i

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Dec 2008 19:45 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
íbbi_ wrote:
öflug mótmæli á alþingi í dag,

ég er ekki ofbeldisins maður, og nota það ekki mér til framdráttar eða sem svar við nokkrum hlut, en ég er ánægður með þetta,

Ég er almennt vel sáttur við mótmæli - en í þessu tilfelli sem þau eru framkvæmd af fólki sem á sér lítinn samhljóm í samfélaginu og á þennan máta þá er þetta ekki eitthvað sem maður getur verið sáttur við.

Það eru til margar stefnur í anarkisma og þetta fólk virðist hafa valið sér þá lökustu sem snýst um að þröngva sínum minnihluta skoðunum upp á meirihlutann (því að við þurfum ekki lýðræðislega kjörin stjórnvöld) - lakasta leiðin er þá einskonar róttæk vinstri byltingar leið sem ég held að afar fáir sjái sér fært að styðja.

Það er reyndar ekki hægt að sjá neinsstaðar hvað þessi hópur Aðgerð Aðgerð stendur fyrir, væri gaman að sjá það því ein leið anarkisma er t.d. sú að yfirvaldið víkji en í staðinn sé ákvörðunarvaldið fært til einstaklinganna þar sem væri skyldu kosning um málefni að viðbættum viðurlögum ef ekki er kosið - sem er áhugaverð leið.

Það má reyndar benda á að lýðræðisaðferðin sem notuð er í Sviss eru nægjanlega áhrifarík til þess að anarkistar gæti horft í þá átt eftir málamiðlunum.

*edit -
Quote:
Þrjátíu mótmælendur ruddu sér leið inn í Alþingishúsið í dag og trufluðu þingfund með hrópum og köllum. Fresta þurfti þingfundi í um klukkustund á meðan lögregla rýmdi húsið. Mótmælendurnir voru á aldrinum 18 til 20 ára. Margir þeirra huldu andlit sín með treflum. Allt tiltækt lið lögreglunnar var kallað á staðinn og voru 7 handteknir fyrir húsbrot á Alþingi og hlýða ekki fyrirmælum lögreglu.

Hinir handteknu eru í yfirheyrslu vegna brotanna en lögregla sleppti hinum. Tveir lögreglumenn eru slasaðir og einn þingvörður. Ekki er vitað hvort um skipulögð mótmæli var að ræða en lögreglan vissi ekki um þau fyrirfram.

Að loknum mótmælunum í Alþingishúsinu í dag fór lítill hópur fólks að lögreglustöðinni við Hverfisgötu og til að leita svara við ýmsum spurningum, segir í tilkynningu frá lögreglu. Fólkinu hafi verið boðið í upplestrarsal lögreglunnar þar sem Stefán Eiríksson, lögreglustjóri, og Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn, hafi setið fyrir svörum. Fór þetta allt saman mjög vel fram, segir ennfremur í tilkynningunni.

http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item240917/

Þingvörður og lögregluþjónar - ekki öfundsvert djobb að vera saklaus að sinna vinnunni sinni.

Sé annarsstaðar að mótmælendur hafi hrópa bananalýðveldi - það er mikið til í því reyndar.

En svona mótmæli skerpa reyndar línurnar í samfélaginu, fyrir okkur hin líka.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Dec 2008 20:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Eggert wrote:

Ég er ekki að finna svarið í póstinum þínum við spurningu minni.

Hverjar eru bestu aðstæður?
Það sem ég er að reyna að spyrja er.

Er betra fyrir okkur að fljóta krónunni þegar flestir í heiminum eru illa staddir og geta síður nýtt sér það til síns gróða, eða bíða þangað til að aðrir í heiminum eru betur á fætur komnir og ..............?

Sé ekki að það sé gott fyrir okkur að vera með allt á hælunum þegar aðrir eru búnir að skipta um brækur og buxur og komnir með belti OG axlabönd.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Dec 2008 20:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
bebecar wrote:

ég aðhyllist alls ekki anarkisma, er með voðalega furðulegt sjónarmið á þetta hugsa ég, er hægri sinnaður, vill ekki sjá VG,framsókn,frjálslynda eða reynda rekki samtýningin í stjórn,

en það er svo annað mál að óánægja mín, með tja til að byrja með klúður og spillingu stjórnvalda, og svo sérstaklega ruglið sem hún hefur rúllað á undan sér í gegnum þetta, er gífurleg, og mér finnst í raunini bara ágætt að sjá, mér finnst stjórnvöld bókstaflega eiga skilið að finna reiði þjóðarinnar, ekki bara heyra af henni. og gjörsamlega hunsa þjóðina, alþingisverðinum óska ég alls hins besta, lögregluþjónunum vorkenni ég ekki neitt, enda ekki orðið var við góða lögreglu hérna orðið í langan tíma, held að þeir einu sem ég virði ennþá sem lögreglur séu meðlimir á þessu borði

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Dec 2008 22:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
gstuning wrote:
Eggert wrote:
gstuning wrote:
Enn þá má spyrja sig,
Ef við hefðum tekið skellinn með krónuna strax, væri það betra útaf slæmri efnahagstöðu almennt í heiminum, eða verður það betra þegar efnahagstaða í heiminum er betri?

Ef þessir erlendu menn eiga bréf í krónum, er þá ekki skynsamlegra að hún sé sterkari gagnvart evrunni t,d þegar hún er sett á flot?

Vantar nokkrar svona myndir af mögulegum situations sem eiga eftir að geta komið upp þegar krónunni verður sleppt.

Auðvitað er betra að taka skellinn við bestu aðstæður, þá er auðveldara og fljótlegra að byggja efnahaginn aftur upp. En það sem er í gangi núna má líkja við að byggja hús á sandi. Lítur vel út að utan frá en er bara frestun á vandamálinu.

Það er skynsamlegra að krónan sé sterk að því leytinu til að fjárfestar hafa kannski meiri trú á okkar efnahag og eru því minna líklegir til að taka sitt fjármagn úr landi, en enn sem komið er eru það bara spár. Og þar á móti mun það kosta miklu meira af gjaldeyrisforðanum ef fólk vill taka sinn pening úr landi í sterkri krónu.

Og ég er alveg sammála thisman í því að ég trúi því varla að það séu ekki góðar og gildar ástæður fyrir þessum ákvörðunum, en það væri samt gaman að fá útlistun á því hjá þessum hagfræðingum á bak við þessar ákvarðanir hverjar helstu ástæðurnar eru.

Ég er ekki að finna svarið í póstinum þínum við spurningu minni.

Hverjar eru bestu aðstæður?
Það sem ég er að reyna að spyrja er.

Er betra fyrir okkur að fljóta krónunni þegar flestir í heiminum eru illa staddir og geta síður nýtt sér það til síns gróða, eða bíða þangað til að aðrir í heiminum eru betur á fætur komnir og ..............?

Sé ekki að það sé gott fyrir okkur að vera með allt á hælunum þegar aðrir eru búnir að skipta um brækur og buxur og komnir með belti OG axlabönd.

Það er nefninlega málið, það er engin leið að vita hvert trendið stefnir. Það er ekki hægt að segja að flestir fjárfestar séu illa staddir núna(þó svo að Ísland sé fucked), og sömuleiðis ekki hægt að gera sér grein fyrir því hvernig staðan verður eftir ár eða tvö. Þetta er allavega of mikið spámennska til þess að taka endanlega ákvörðun á þessum grundvelli.

En hvað meinarðu að það sé ekki gott fyrir okkur að vera með allt á hælunum þegar aðrir eru það ekki? Ástæðan fyrir því að við séum komin með afgreiðslu á láni frá IMF er einmitt sú að aðrir eru ekki eins illa staddir. Ef svo fer að önnur lönd lendi í svipað áhrifamiklum hremmingum og Ísland þá getur IMF ekki bjargað öllum, þannig að það má í raun segja að það sé lán í óláni að við séum að finna fyrir þessu svona snemma. En svo getur líka alveg eins gerst að það fari ekki fyrir neinum öðrum eins og hefur farið fyrir okkur.

Ég hef ekki næga hagfræðikunnáttu í að segja hverjar eru bestu aðstæður fyrir fleytingu krónunnar, en svona sé ég þetta allavega fyrir mér.

_________________
E53 X5 4.4i

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Dec 2008 22:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Ég er nú samt búinn að sjá fregnir af ýmsum löndum vera að tapa sinni mynt .

Og ef það er kreppa í USA og UK og slatta af evrópu þá myndi ég segja að flestir fjárfestar væru ekki vel staddir.
Annars er ég helst að vona að ísland verði hreinlega ekki svo ódýrt fyrir erlendu fjárfestanna að þeir gangi bara inn með "klink" í vasa og hirði það sem þeir vilja, lauslega orðað

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Dec 2008 23:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
gstuning wrote:
Ég er nú samt búinn að sjá fregnir af ýmsum löndum vera að tapa sinni mynt .

Og ef það er kreppa í USA og UK og slatta af evrópu þá myndi ég segja að flestir fjárfestar væru ekki vel staddir.
Annars er ég helst að vona að ísland verði hreinlega ekki svo ódýrt fyrir erlendu fjárfestanna að þeir gangi bara inn með "klink" í vasa og hirði það sem þeir vilja, lauslega orðað

Enda er það ein af ástæðunum á bak við gjaldeyrishöftin. Erlendur aðili getur ekki flutt peninga til Íslands í dag ef hann vill fjárfesta, það er einfaldlega bara bannað.

_________________
E53 X5 4.4i

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Dec 2008 23:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Enda er ég að velta því fyrir mér hvað gerist þegar höftunum er létt.
Hvort að aum króna gegn endurnýjuðum efnahag erlendis sé betra enn
aum króna gegn "aumum" efnahag erlendis?

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 09. Dec 2008 07:53 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ef að dollar fellur um 90% eins og Celeste sá sem Zyklus benti á segir á verður minna mál að borga tilbaka stóran hlutaf IMF láningu... :-)

Ég held ég skilji hvað Gunni er að fara, væntanlega tala um relatíva stöðu Íslands miðað við önnur lönd í þessar niðursveiflu.

Líklegast er evran líka of hátt skrifuð um þessar mundir - við gætum því séð krónuna lagast aðeins á sama tíma sem evra, dollar og fleiri gjaldmiðlar veikjast - það gæti gert okkur talsvert auðveldara fyrir.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 09. Dec 2008 09:01 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Posts: 598
Location: Reykjavík
bebecar wrote:
Ef að dollar fellur um 90% eins og Celeste sá sem Zyklus benti á segir á verður minna mál að borga tilbaka stóran hlutaf IMF láningu... :-)

Ég held ég skilji hvað Gunni er að fara, væntanlega tala um relatíva stöðu Íslands miðað við önnur lönd í þessar niðursveiflu.

Líklegast er evran líka of hátt skrifuð um þessar mundir - við gætum því séð krónuna lagast aðeins á sama tíma sem evra, dollar og fleiri gjaldmiðlar veikjast - það gæti gert okkur talsvert auðveldara fyrir.

Ég held að þetta sé rétt. Við erum líklega bara fyrsta fórnalambið og tókum auðvitað hrikalegan skell á krónu vegna stærðar banka vs. hagkerfi. Fréttir af UBS bankanum í Swiss eru ekki beint að benda til að hann sé á neinu nema brauðfótum:
http://www.visir.is/article/20081016/VIDSKIPTI07/214602506/-1
http://www.vb.is/frett/2/50488/

Vondir hlutir gerast bara hægar í stærri hagkerfunum og vonandi gerast góðir hlutir þá líka hratt í litlum.

Eiga aðrir gjaldmiðlar ekki bara eftir að taka skellinn og þá náum við balance aftur?

_________________
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 09. Dec 2008 09:19 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01
Posts: 367
bimmer wrote:
thisman wrote:
Sem dæmi má nefna að við framleiðslu á venjulegri jógúrtdollu þá er kostnaðurinn við innflutta efnið (pakkningar, bragðefni, sykur o.s.frv.) hærri en við mjólkina sem er notuð í hana!

Tekurðu þá með niðurgreiðslu/styrki til bændanna???? :lol:

Hehe, alveg stórgóður punktur - en já, það má smyrja niðurgreiðslunni ofan á þetta og það er samt stærri hlutur sem er keyptur erlendis frá. :) Því til að þessi blessaða jógúrtdolla verði til þá þarf einnig tól og tæki, s.s. mjólkurbíla, blöndunarvélar, kælitæki, pökkunarvélar and the list goes on!

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 106, 107, 108, 109, 110, 111, 112 ... 246  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 10 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group