En það mun halda áfram að bruna í gegnum geiminn með gulldiskinn góða. Svo væri gaman að vita hvað svona far kæmist langt með samrunaorku, en þegar það hættir að hafa samband við okkur þá mun það hafa farið 25733376000 km (25 millarða km) eða ... 0.002 ljósár.

En í framhaldi við það sem Asti sagði, þá er framtíðin ekki svo langt í burtu. Kanar stefna á mannaða ferð til tunglsins árið 2025 - 2035 og Rússar eitthvað fyrir það. Það er frumvarp á Bandaríska þinginu í gangi um að koma upp varanlegri búsetu manna á tunglinu, einkageirinn kominn inn í þetta (SpaceX, Virgin Galactic), o.s.frv.
Vona a.m.k. að ég verði á lífi eftir 20 ár.
