bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=67342
Page 2 of 4

Author:  Grétar G. [ Tue 23. Sep 2014 16:03 ]
Post subject:  Re: Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..

RR SS ekki spurning

Ég veit ekki alveg hvaða rosalega viðhaldskostnað fólk talar alltaf um, ég er búinn að eiga minn í að verða eitt og hálft ár og ekkert óvenjulegt viðhald á honum...

Háværar raddir og flestir eflaust ekki átt svona bíl sem væla alltaf um hvað séu fyrir bílar í rekstri :lol:

Author:  Dóri- [ Tue 23. Sep 2014 16:03 ]
Post subject:  Re: Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..

slapi wrote:
Ef þú ert að pæla í þessum árgerðum og verðum geturðu gleymt bæði RR Sport og Cayenne sökum viðhaldskostnaðar.

Stór RR bilar mjög lítið meðaðvið búnað og þægindi. Færð í raun mest fyrir peninginn þar.
En ef á að taka allt saman er X5 E70 3.0d lang skynsamlegasti kosturinn. Bilar samasem ekkert, eyðir litlu , skemmtilegur, ekkert of stór, þrusuflottur, vinnur flott.


Gæti ekki verið meira sammála. En vill bæta við að cayenne er ótrúlega óspennandi bíll eins og bróðir sinn touareg.

Author:  slapi [ Tue 23. Sep 2014 16:06 ]
Post subject:  Re: Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..

Það er búið að taka þetta saman, RR Sport/Disco 3 er með sirka 350þús í viðhald. Fyrir utan þjónustu bara viðhald

Author:  thisman [ Wed 24. Sep 2014 14:25 ]
Post subject:  Re: Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..

slapi wrote:
Það er búið að taka þetta saman, RR Sport/Disco 3 er með sirka 350þús í viðhald. Fyrir utan þjónustu bara viðhald

Mér finnst það reyndar alveg ásættanlegt í sjálfu sér - ef maður er þeim mun ánægðari með gripinn.

Author:  thisman [ Wed 24. Sep 2014 14:29 ]
Post subject:  Re: Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..

Kannski ágætt að taka það fram að ég þarf í raun ekkert Range Rover stærðarlega séð og Range Rover Sport/Cayenne/X5 eða annað í þeim stærðarflokki myndi henta alveg ágætlega hvað það varðar.

Author:  slapi [ Wed 24. Sep 2014 14:32 ]
Post subject:  Re: Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..

Það er FULLT af fólki sem sættir sig við það enda finnst mér ekkert að því. Mikið af fólki sem á Disco 3/Disco 4 (t.d.) er fólk sem hefur komið úr krúserskaranum og gæti ekki verið ánægðarar þrátt fyrir meira viðhald því menn finna ekki jafngóðan akstursbíl í sama stærðarflokki, hvergi.
Stór hluti af þessu viðhaldi er vegna þyngdar , Disco 3/RR sport getur verið 2.5-2.7 tonn fer eftir vélum og búnaði.

Author:  Fatandre [ Wed 24. Sep 2014 16:21 ]
Post subject:  Re: Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..

Vorum með RRSS og RRS á sínum tíma og það eina sem fór í taugarnar á manni var aðalega eyðslan.
Verð samt að segja að RRS er svo þéttur og skemmtilegur bíll í akstri að það er ekki eðlilegt.
I love it.
Um að gera að setja bara metan á þetta og rúlla um eins og konungur.

Image

Author:  thisman [ Wed 24. Sep 2014 22:35 ]
Post subject:  Re: Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..

Afsakið fáviskuna en hvað er RRSS? Range Rover Sport Supercharged?

Author:  Giz [ Thu 25. Sep 2014 00:00 ]
Post subject:  Re: Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..

Skemmtilegar pælingar,

Færi ekki í Disco 3 né RR Sport, ekki af eigin reynslu heldur ráðleggingum mér mun fróðari mönnum.

Hef hinsvegar rúllað á FFRR, FullFatRR, í um ár, 2004 4.4 BMW V8 Vouge bíll, umboðs með alles, 2 fyrri eigendur etc…, og gæti ekki verið ánægðari. Þetta eyðir smá, innanbæjar góðir 20 en 11-13 utan. Sem vetrar- og ferðabíll er þetta dásamlegt tæki.

Gott í umgengni, bilerí fer eftir eintökum skilst mér og viðhaldi, eins og annað. Prufuðum Cayenne líka og fíluðum alls ekki, fíluðum X5 alls, alls ekki…

RR all the way! Allt fyrir pjéninginn.

Var BTW að spá í að öppgreida um daginn í 2008 Supercharged, en fannst á endanum eyðslan allt, alltof mikil, og tiltekið eintak þónokkuð verra en minn þó minna ekinn og þetta nýrri og fannst það þal alls ekki borga sig. Better the devil you know og allt það...

Author:  bjahja [ Thu 25. Sep 2014 02:32 ]
Post subject:  Re: Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..

Eru menn almennt ánægðir með Range Rover sport, ég man eftir að hafa lesið svo mikið um að hann hafi ekki verið "alvöru" range rover afþví hann væri byggður á Discovery og menn væru ekki ánægðir með hann. Ég hef ekki keyrt eða setið í sport þannig að ég þekk það ekki persónulega

Author:  Angelic0- [ Thu 25. Sep 2014 02:33 ]
Post subject:  Re: Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..

Fíla Vouge-inn betur, Sport er eitthvað svo mikið Barbie apparat....

Annars eru báðir voða fínir, þægilegt að keyra báða, svolítill skriðdrekafílingur... en ég fíla það hehe

Author:  fart [ Thu 25. Sep 2014 05:20 ]
Post subject:  Re: Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..

Fíla ekki RR sport, aaaaaaaltof þungur og klunnalegur, gamaldags að innan og þannig.
Að fara á F15 X5 eftir að hafa verið RRS í rúma viku var mikið stökk uppávið

Author:  thisman [ Thu 25. Sep 2014 16:19 ]
Post subject:  Re: Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..

Giz wrote:
Skemmtilegar pælingar,

Færi ekki í Disco 3 né RR Sport, ekki af eigin reynslu heldur ráðleggingum mér mun fróðari mönnum.

Hef hinsvegar rúllað á FFRR, FullFatRR, í um ár, 2004 4.4 BMW V8 Vouge bíll, umboðs með alles, 2 fyrri eigendur etc…, og gæti ekki verið ánægðari. Þetta eyðir smá, innanbæjar góðir 20 en 11-13 utan. Sem vetrar- og ferðabíll er þetta dásamlegt tæki.

Gott í umgengni, bilerí fer eftir eintökum skilst mér og viðhaldi, eins og annað. Prufuðum Cayenne líka og fíluðum alls ekki, fíluðum X5 alls, alls ekki…

RR all the way! Allt fyrir pjéninginn.

Var BTW að spá í að öppgreida um daginn í 2008 Supercharged, en fannst á endanum eyðslan allt, alltof mikil, og tiltekið eintak þónokkuð verra en minn þó minna ekinn og þetta nýrri og fannst það þal alls ekki borga sig. Better the devil you know og allt það...

Takk fyrir þetta - mjög athyglisvert.

En þessar ráðleggingar sem þú fékkst varðandi Disco/RR Sport, var fólk þá að vara við kostnaði/viðhaldi eða hreinlega ekki að fíla bílinn? Ég man eftir því í gegnum tíðina að það hefur verið mjög móðins að basha RR Sport og Top Gear hafa m.a. úthúðað honum - en þegar maður fer að fletta upp gömlum reviews fyrir 2005-2013 bílinn þá eru þau almennt mjög jákvæð.

Author:  IvanAnders [ Sat 27. Sep 2014 13:02 ]
Post subject:  Re: Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..

Slapi er í raun búinn að svara þessu til fulls. X5 eða stóri range-inn.

Ég fíla alveg að keyra sportinn! En það er betra að keyra stóra bílinn (töluvert öðruvísi að keyra þessa bíla)
Og sportinn er mikið frekari á peninga.

Author:  Alpina [ Sat 27. Sep 2014 13:48 ]
Post subject:  Re: Range Rover, Range Rover Sport, Porsche Cayenne..

Fá sér unimog..... :lol:

Page 2 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/