tolliii wrote:
finnst þetta einmitt passlegt líka,, veit ekki hvað hann er að gera svona mikið mál út þessu

Veit ekki alveg hvernig þú færð það út að ég sé að gera "eitthvað sérstakt mál" úr þessu.

Frekar bara ókeypis tip.
Það eru aðrir margir íslenskir ljósmyndarar sem eru hundraðfalt "verri" í watermarks en Daníel hérna, þannig að þetta er ekkert mál. Hann er alveg á góðu róli.
Og ég trúi því alveg að þú sjáir ekkert að því að t.d. lógóið faðmi borderið á myndinni, því það er nú bara þannig að maður þarf ákveðið auga (eða æfingu, if you will) til að spotta hluti sem eru "off", hvort sem við erum að tala um í grafískri hönnun, ljósmyndun, kvikmyndatöku, vefhönnun, þrívíddarvinnslu eða hvaðeina, og því fleiri ár sem þú hefur verið í viðkomandi bransa, því næmara verður það fyrir öllu sem er ekki alveg eins og það ætti að vera.
Ég meina þú getur leitað í allt ár af jafnvel einu einasta pro fyrirtækjalógói sem faðmar borderið, á hvaða official miðli sem er, en þér mun ekki takast það, því að það er algjör grundvallarregla að gera það ekki.
Reyndar gengur það yfirleitt svo langt að öll "alvöru" fyrirtæki skrifa sérstök lógó guidelines er varða meðhöndlun á lógóum og öðrum trademarks, og þó að þessi guidelines séu oftast öll mjög mismunandi, þá hafa þau alltaf það eitt sameiginlegt, að það er stranglega bannað að skella því alveg uppvið eitthvað annað, hvort sem það er annað lógó eða border eða hvað.
En já, ég s.s. vinn við þetta. Þannig að það er kannski svarið þitt.
var akkurat að græja svona bók fyrir icelandair um daginn, las aðeins yfir þetta og fanst flest allt af þessum regjum vera bara common sense, eins og að setja ekki hvít logo á ljósann bakrunn