Æji strákar mér finnst þetta mjög leiðinlegt að sjá svona vera að kalla mann rasshaus hérna á netinu af einhverjum internetstjönum. Ég er eigandi bílsins og ég var alls ekki að keyra hratt og var einn í bílnum, leiðinlegt hvernig þetta endaði. En sumt fólk í umferðinni gerir það kleift að aðrir finni fyrir því og koma öðrum í hættu sem gangandi vegfarendum. Ég get svo sannarlega verið sáttur með það að engin var í strætóskýlinu og ekki fór verr, bíll er bara bíll. Fyrsta sem ég gerði var að hlaupa út 2sec eftir að þetta gerðist og í átt að strætóskýlinu og sjá hvort einhver hafi slasað sig, en þegar ég var kominn var ekkert að sjá neitt strætóskýli en það var sem betur fer engin á ferð þarna nálægt. Finnst leiðinlegt að DV nái að bulla í fólki daglega t.d. eins og að segja ofsaakstur og börn á svæðinu. Þessir strákar voru rétt hjá Laugardalshöllini og hlupu upp til þess að fylgjast með þessu atviki og voða spenntir fyrir að sjá hvernig það er farið að þessu þegar lögreglan kemur. Ég persónulega labbaði að öllum og spurði hvort að einhver væri slasaður eða hvort það þyrfti að fá annan sjúkrabíl fyrir einhvern en allir voru í góðu líkamlegu ástandi sem betur fer og allir hjálpsamir þarna á svæðinu.
Ég sá þetta gerast. Hann var ekki á "ofsahrað", ef ég myndi giska þá var hann aðeins yfir hámarksharða og var að skipta yfir á vinstri akrein. Missti svo stjórn þegar hann fór í hjólförin sem voru full af vatni.
'94 Pontiac Firebird Formula á einhverjum BMW felgum '92 Toyota Touring
Fillip var að seigja mér frá þessu. Gott að þú sért heill eftir þetta.
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
Heh, eigum við eitthvað að ræða þessa fordóma gagnvart BMW og ökumönnum þeirra?
Karlmaður á flottum BMW lendir í umferðaróhappi: Ofsaakstur, var eflaust nýkominn af Fast and the Furious og líklegast á facebook á sama tíma og hann var í spyrnu við annan BMW. Vitleysingar gleypa þetta alveg í sig.
Það selur engar fyrirsagnir að skrifa blákaldar staðreyndir, því miður.
Hann getur nátturulega flotið upp , hvað þá frekar ef hann er á frekar breiðum dekkjum. Missir hann á hlið í flotinu beygir kannski of skart á móti framdekkin ná gripi og þú beinist beint útaf , DSC getur ekkert gert því bíllinn er ekki með neitt grip í flotinu. Getur gerst að mínu mati.
Það er alveg hægt að fljóta upp í djúpum hjólförum. Ef dekkin eru t.d. komin niður á slitrendur eru þau useless í standing water. Uppflot er sambland af dýpt mynsturs, magni vatns og hraða. það sem hefur að ég held samt mest áhrif þarna er hraði, svo dýpt á mynsturs og síðast magn vatns. Breidd dekkja hefur alveg áhrif, en ef þau eru í lagi og hraði í lagi ætti bíll ekki að fljóta upp nema hraðinn sé mikill.
Maður lendir stundum í þessu á hraðbrautunum hérna, stundum rignir all svakalega og vatn safnast fyrir, t.d. þar sem vegurinn liggur undir annan veg.
EN.. miðað við hámarkshraða á Íslandi þá ætti að vera helvíti erfitt að missa stjórn á bíl. Er ekki 60-70km hámarkshraði á flestum stofnbrautum?
Ég slæ nú bara alltaf hægt af bensíninu áður en ég svissa á milli akreina, þegar það eru svona djúpir hjólfarapollar eða slabb og hálka. S.s. læt bara bílinn coasta yfir, og gef svo aftur inn þegar hann er orðinn beinn og solid.
Fæ þá ekkert wheelspin, engin slides, engin biðskýli.