BMW stolið erlendis - ekki bætt

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: BMW stolið erlendis - ekki bætt

Postby saemi » Mon 14. Nov 2011 23:31

Fatandre wrote:Þrátt fyrir það er þetta engan veginn í lagi. Það er verið að skerða rétt einstaklingsins.
Sjálfur hef ég ekkert kannað þetta frekar en þetta er verulega óheiðarlegt ef það er verið að taka þann rétt af öllum að geta farið út á eigin bifreið og verið trygður. Aftur á móti mættu þeir neita þeim sem eru með bílasamning á sínum bíl um að fá tryggingu.
Þó að þú vitir eithvað fyrir víst er það ekki réttlátt. Þú ert enginn almáttugur :lol: :lol:


Svona svipað lítilmáttlegur og þú bara ... það er enginn almáttugur hér.

En að segja að þetta sé óheiðarlegt og skerðing á rétt einstaklingsins, því get ég ekki verið sammála. Það eru engin réttindi þín sem tryggingataka að kaskótrygging gildi hvar sem er. Ég er líka viss um að þú getur keypt þér kaskótryggingu sem dugir ef þú vilt fara með bílinn þinn erlendis :mrgreen: Það er hægt að kaupa tryggingu fyrir öllu, iðgjaldið ræðst bara af áhættunni.

Ég myndi frekar segja að það væri verið að tryggja rétt okkar allra með því að búið er að stoppa upp í þetta gat. Nógu há eru nú iðgjöldin hér á klakanum þó svo að við séum ekki að borga aukalega til að dekka kaskótryggingu erlendis með venjulegri kaskótryggingu.

En þetta er alveg rétt sem Sveinbjörn er að segja, þetta er komið til vegna svika og pretta Jóns Jónssonar, ef ekki væri fyrir óheiðarleika fólks þá hefði aldrei þurft að gera þetta.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 30 guests