by Danni » Wed 25. May 2011 14:58
Smá thread jack.
Þið sem skoðið Kraftinn í símunum ykkar, lendið þið ekki í neinu vandamáli með að haldast innskráðir á spjallið?
Ég er með þrjá vafra í Android símanum mínum, þennan sem fylgdi símanum, Opera Mobile nýjasta og svo Firefox 4 for mobile. Ég nota Opera lang mest of finnst hann þæginlegastur, en í honum og vafranum sem fylgdi símanum þá get ég ekki skráð mig inn. Ég set inn username og password, ýti og log-in og það eina sem gerist er að innskráningarsíðan kemur aftur og ég er ekki skráður inn.
Í FireFox virkar þetta hins vegar án vandræða og ég get skráð mig inn í honum og haldist inni. En það er frekar böggandi að skipta um browser bara til að skoða Kraftinn.
Lendir einhver ykkar í þessu eða vitið þið lausn á þessu?
PS. Cookies eru enabled, enda get ég skráð mig inn á allar aðrar síður og öll önnur spjöll án vandræða.
Danni
'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi