WinAMP notaði ég alltaf fyrst þangað til að ég kynntist MusicMatch Jukebox. Eftir að Yahoo keypti og drap MusicMatch Jukebox (sem ítrekað var valið Editors Choice í PC Magazine) þá notaði ég bara eldri útgáfur af því. Þar sem allt support og tengingar við vefinn var ekki lengur nothæft í Jukebox þá fór ég og "kannaði markaðinn".
iTunes þoli ég ekki, lokar mann inni í leiðindaumhverfi að mínu mati
Windows Media Player var of "basic", ekki með nægan stuðnig við ýmsa þjónustu (s.s. mismunandi gerðir MP3 spilara) og þó svo að Win7 útgáfan sé ágæt þá á er hún enn ekki með tærnar þar sem MusicMatch Jukebox var með hælana fyrir lokun
Fann á endanum að "hardcore" MM Jukebox notendur bentu á MediaMonkey sem bestu lausnina í staðinn fyrir Jukeboxið.
Hef notað MediaMonkey núna í ca. 3 ár og er bara sáttur við kerfið. E.t.v. finnst mörgum það vera of mikið af stillingum og möguleikum í því en það virkar fyrir mig og frúnna með sinn iPod sem annars hefði þurft að nota iTunes

Þetta er til frítt en þá takmarkaðra en "Gold" útfærslan sem ég keypti og bogaði einhverjar baunir fyrir "lifetime upgrade" fyrir kreppu, kostar líklega um 5 þús. kall í dag sem mér finnst ekki vera neinn peningur fyrir almennilegt forrit.
Hér má finna þetta forrit:
http://www.mediamonkey.com/Prófaði þetta fyrst í fríu útgáfunni en vildi svo geta brennt diska á almennilegum hraða svo að ég keypti Gold.
Ef maður Googlar MediaMonkey þá fær það oftast toppdóma
