by kelirina » Fri 25. Dec 2009 10:40
Allir sem tóku þátt eru með sér ID og því var einungis miðar með númerunum settir í skál og hún hrist duglega.
Dísarfuglinn okkar á heimilinu var fenginn til að ná í fyrsta miðann í skálina. Hann dró upp nafn Hauks, miði númer 82.
Aftur var skálin hrist duglega.
Konan mín dró svo næsta miðann og það var nafn Harðar. Það ótrúlega er að það var miðið númer 83.
Ég átti ekki til orð þegar seinna númerið kom. Algjör tilviljun en samt sem áður, til hamingju með sigurinn drengir og gleðileg jól kraftsmenn.