by drolezi » Tue 13. Oct 2009 00:45
Ok, ég er örugglega töluvert hlutdrægur hérna en ég vill samt koma með nokkur comment enda lögfróður.
Ég get gefið mér nokkrar staðreyndir hérna, út frá annarra manna póstum.
Það hlýtur að hafa komið einhverskonar rökstuddur grunur um brotastarfsemi, stutt af ofangreindu, hvort sem það er einkennileg starfsemi í húsnæðinu, eitthvað sem er sjáanlegt í gegnum glugga, ábendingar almennings, ábendingar brotamanna, ferill aðila sem koma að bílskúrnum og svo mætti lengi lengi telja, það er af nógu að taka. Miðað við sem einn hefur póstað þá hafa brotamenn verið með þetta rými, sem er þá allavega einn hlutur. Við skulum hafa það samt á hreinu að það er ekki farið inn "af því bara", það vill enginn missa vinnuna á þessum tímum.
Þú segir að þetta sé bílskúr og að það hefði verið hægt að t.d. hringja í þig og fá þig til að opna. Það er oft gert, enda lang sniðugasta lausnin. Ein spurning þó, því það á við um flesta bílskúra, var bílskúrinn eitthvað merktur? Var einhver leið að komast að því hver væri leigjandinn að bilinu án þess að fara inn?
Mér fannst skrítið fyrst að löggan skildi hafa logið til um þetta í símann, þe. sagt að hurðin hefði bara verið opin, en svo má horfa á það að kannski vilja þeir ekkert að þú eða þeir sem eru með bilið viti af því að það sé verið að fylgjast með þessu.
Það er sett út á að þeir hafi farið burt frá ólæstu bilinu áður en þú komst á svæðið. Mér finnst það reyndar slappt. Það má velta því fyrir sér hvort eitthvað hafi komið upp, maður veit það ekki.
Ef lásinn var boraður út og skipt um lás, þurftiru þá ekki nýja lykla?
Annars er ég bara að velta upp sjónarmiðum sem fæstir sjá, bæði í gamni og alvöru....