Ég keypti mér eina Medion fartölvu árið 2005 og það fyrsta sem ég gerði við hana var að strauja hana og losna við öll þessi forrit og drasl sem fylgir, setti síðan upp Windows XP Pro og enga vírusvörn. Fyrst ætlaði ég alltaf að fara að gera setja eina svoleiðis en síðan eftir að hafa trassað það í meira en ár og ennþá enginn vírus eða vesen þá ákvað ég að prófa og sjá hvað hún myndi endast lengi án vírusvarnar. Núna 4 árum eftir að ég keypti hana er hún ennþá á sömu uppsetningu af stýrikerfi og engin merki um vírus. Ég ætla síðan að fara að strauja hana aftur bráðlega og setja Windows 7 upp og sjá hvort að hún höndlar það.
En á borðtölvunni er ég með Kaspersky vírusvörn og ég er orðinn alveg hundleiður á henni. Í hvert skipti sem ég set eitthvað upp sem að breytir registry key þá þarf ég að gefa leyfi. Nett pirrandi. Ætla að prófa NOD32 næst sjá hvernig mér lýst á þá vörn.
