Áhugavert.

Annars fór ég út fyrir tveim kvöldum með stjörnusjónauka og nokkrum vinum mínum, rétt fyrir utan bæjarmörkin þar sem var engin lýsing. Við í borginni erum að missa af
rosalega miklu útaf allri lýsingunni sem við notum. Bókstaflega 1000x fleiri og bjartari stjörnur var að sjá, endalaus gervitungl og meira að segja vetrarbrautin sjálf. Var að skoða Júpíter þegar það kom frekar bjart ljós í sjónaukann. Í fyrstu hélt ég að þetta væri flugvél, því þær voru margar að lenda í kringum miðnætti, en þetta var of bjart til þess og í fyrstu hreyfðist þetta ekkert. Svo fer þetta nú aðeins að hreyfa sig og stefnir 'ská-upp' og virðist fara sífelt hraðar og hraðar. Það var eins og hluturinn var að fara burt frá mér, því þegar hraðinn jókst, deyfðist ljósið. Á endanum hvarf þetta alveg.
Líklegast bara gervihnöttur, en mega töff. Ég er a.m.k. alveg 100% á því að þetta hafi ekki verið flugvél.

Annars mæli ég með því að þið kíkið út að kvöldi til þegar það er heiðskýrt, skreppið út fyrir bæjarmörkin og sjáið það sem við erum að missa af. Algjör snilld.
Ég og nokkrir úr stjörnuskoðunarfélaginu förum reglulega út í Krýsuvík, mjög fínt að vera þar, það er malarplan þar hjá tveimur stórum turnum sem er fínt að vera og skoða himininn.