Var einmitt að ræða þetta við einn vin minn á rúntinum um daginn, en á leiðinni út úr Njarðvík um Njarðvíkurbraut er einmitt ekki séns að fara út í kannt ef maður er á fólksbíl. Samt sér maður oft sjúkrabíla fara þá leið áður en þeir fara út á Reykjanesbraut. Ef að það yrði slys á brautinni þegar það er traffík þarna þá yrði bara alls ekki hlaupið fyrir sjúkrabílinn að komast greitt út úr bænum! Það voru settir kanntar þarna alla leiðina fyrir einhverjum árum síðan og að mínu mati er það eitt það heimskulegasta sem hefur verið gert þarna...
_________________ Danni
'01 E46 330iA '99 E46 320i '98 Honda Civic 1.5i '17 VW Polo 1.2 TSi
|