Ég hef nú reyndar lítinn samanburð á svona jeppadekkjum en allavega, ég er sjálfur með 33" Dean Wildcat LT ónegld.
Ég get allavega alveg mælt með þeim, hef ekkert út á þau dekk að setja, fín í öllu því sem ég hef verið að leika mér í, snjó, drullu, möl, malbik og alles.
Alls ekki mikill vegahávaði á malbiki og liggja bara mjög vel.
Eina sem stundum hefur hrjáð mér smá er að ég sé ekki með stærri dekk.
Svo er ég líka með í sirka 29-30" Merit All Country M/T
Þótt þau séu fín í drullu og möl þá gera þau ekki neitt í snjó og hálku.