Ég verð nú bara að segja að eftir því sem ég hlusta á þetta nýja Invaders Must Die þá fíla ég það meira.
Þótt þetta sé bara eitt lag, og maður veit ekki hvað meira þeir eru að fara gefa út þá lofar þetta góðu að mínu mati.
Ég fíla þetta miklu betur en ég fílaði í byrjun síðustu nýju lög Prodigy sem voru á Always Outnumbered Never Outgunned disknum.
Notabene, er samt ekkert að fíla myndbandið sjálft neitt rosalega.
P.s. þegar ég var yngri þá voru mín uppáhaldslög:
Breath,
Voodoo people,
No good og
Out of space
Núna undanfarið hef ég fílað best:
Voodoo people - Pendulum remix og svo á ég mjög flott remix frá Cyanide af Their law