Djofullinn wrote:
Alpina wrote:
Þetta voru vægast sagt stórundarleg úrslit að mínu mati
Það sem mér fannst undarlegast var að Noregur var svona ofarlega. Ég hef ekki heyrt jafn leiðinlegt lag lengi

Já, hið einstaklega mónótónska framlag norðmanna fékk greinilega öll sveimhuga atkvæði álfunnar í kvöld. Þeir voru jú síðastir á svið og þ.a.l. ferskastir í minni hjá þessum svífandi hugum sem nenntu ekki að horfa á öll lögin, en sáu þó síðasta lagið...
Skandinavía er ekki til í þessari keppni eins og reglunum er háttað í dag.
Eins og allir vita þá snýst þetta um nágrannapólitík.
Þeir félagar fyrir "austan" eru einfaldlega miklu fleiri en við og ráða þ.a.l. keppninni. Þannig að hvorki við né frændur okkar eigum ekki fræðilegan möguleika á því að finna lyktina af toppsætunum...